Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 75
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
75
ÁLYKTANIR OG UMSAGNIR
Stjórn sendi eftirfarandi umsagnir til Alþingis og stjórnvalda
vegna málefna sem tengjast náttúrufræðum á liðnu starfsári:
Í nóvember var send inn umsögn í samráðsgátt stjórn-
valda vegna tillögu um breytingu á viðmiðunarstundaskrá
grunnskóla. Þar var því fagnað að náttúrufræðigreinar
fengju aukið vægi en jafnframt ítrekað mikilvægi sí- og
endurmenntunar kennara í faginu. HÍN benti á mikilvægi
tímaritsins Náttúrufræðingsins annars vegar og Náttúru-
minjasafnsins hins vegar í þessu samhengi.
Í febrúar voru sendar tvær umsagnir vegna lagafrumvarpa
sem eru til umfjöllunar á Alþingi:
Hálendisþjóðgarður. Frumvarpinu var fagnað og hvatt til
þess að nýta það sem gott hefur reynst en læra af því sem
verr hefur gengið, svo sem í Vatnajökulsþjóðgarði.
Endurskoðun laga um vernd, velferð og veiðar á villtum
fuglum og spendýrum. Frumvarpinu fagnað en því mót-
mælt að lögin ættu ekki að ná til sela og hvala. Jafnframt
var hvatt til þess að fara í meira mæli eftir tilmælum starfs-
hóps um endurskoðun laganna sem skilaði skýrslu árið
2013, en lagafrumvarpið er sagt byggjast á henni.
Auk þess birtist í nóvember grein eftir stjórnarmenn í Frétta-
blaðinu um Náttúruhús á Seltjarnarnesi, sjá nánar síðar.
FULLTRÚAR Í NEFNDUM OG RÁÐUM
Hrefna Sigurjónsdóttir var valin fulltrúi í nefnd umhverfis-
og auðlindaráðuneytisins til að velja það fyrirtæki sem fékk
Kuðunginn árið 2020. Hún var einnig valin í þriggja manna
tengihóp frjálsra félagasamtaka um náttúruvernd við ráðu-
neytið, sem miðlar upplýsingum til félaganna frá ráðuneytinu
og sér um að finna fulltrúa í nefndir og ráð. Í hópnum eru auk
Hrefnu Sævar Þór Halldórsson og Brynhildur Bergþórsdóttir
og hafa þau þegar tilnefnt í nokkrar nefndir og ráð sem kosið
er um meðal aðildarfélaganna. Nýverið var Ester Rut Unn-
steinsdóttir tilnefnd í Kuðungsnefndina fyrir árið 2021, ásamt
Auði Önnu Magnúsdóttur hjá Landvernd.
STYRKIR
Félagið veitti Íslenska vistfræðifélaginu 200 þúsund kr. styrk
til að mæta kostnaði við að halda Vistfræðiráðstefnuna OIKOS
í mars 2020. Merki félagsins blasti við á kynningarglæru sem
birt var á stórum skjá í öllum fyrirlestrarsölum ráðstefnunnar.
Nokkur bókaverðlaun voru veitt stúdentum sem skil-
uðu framúrskarandi árangri í náttúrufræði. Jafnframt voru
nemendafélögum í náttúrufræðigreinum í Háskóla Íslands
veittir styrkir.
Félagið hlaut styrk frá jarðfræðifélaginu Hamrinum, sem
var lagt niður á árinu, að upphæð 250,000. kr.
FÉLAGSMENN
Fjöldi félagsmanna var 1.062 í árslok 2020, þar af 7 heiðurs-
félagar, 3 ævifélagar, 1 kjörfélagi, 24 nemar og 94 fyrirtæki,
stofnanir og félagasamtök. Félagsmönnum fækkaði um 89 frá
fyrra ári þar sem nýir félagar voru 40 en 129 hættu.
Félagið er að okkar mati alltof fáliðað og er markmið
stjórnar að auka fjölda félagsmanna, laða fleira fólk að
félaginu og fá það til inngöngu. Leiðin til þess virðist auðveld,
einfaldlega að fylla út í formið á heimasíðunni og þá er málið
leyst: https://hin.is/gerast-felagi/. Við stefnum áfram ótrauð
að því markmiði að fjölga félögum.