Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 44
Náttúrufræðingurinn
44
4. mynd. Upptakasvæði skriðunnar séð með flygildi um viku eftir skriðufallið. Brotstálið er farið að falla saman og greinilegir
samfrosnir sethnullungar sitja í skriðunni og við upptök hennar. Ljósm.: Náttúrufræðistofnun Íslands, 13. október 2020.
nefndir frostbrestir, eru vel þekktir bæði
í jarðvegi, ís og snjó sem brestur skyndi-
lega. Hvers vegna setbunkinn sprakk
fram á þessari stundu, það er meðal
annars viðfangsefni jarðvísindamanna
næstu misserin. Áþekk tilfelli eru einnig
viðfangsefni jarðvísindamanna í Ölp-
unum, í Noregi og víðar. Slík skriðuföll
virðast raunar vaxandi ógn sem steðjar
að vegna hlýnandi loftslags og áhrifa
þess á sífrera í fjalllendi.1,2,3,4
Neðan til í skriðunni var talsverður
hluti efnisins jarðvegur og mór með
stöku birkilurkum sem voru allt að 10
cm þykkir. Vatnsmettuð jarðvegseðja
var áberandi næst jöðrum skriðunnar en
skriðuset af öllum kornastærðum meira
áberandi miðsvæðis í skriðuflákanum
ofan bæjanna. Þetta þykir samræmast
lýsingum Birgis á gusuganginum þegar
skriðan kom niður í grónar og jarðvegs-
huldar fjallsræturnar og á undirlendið.
Frá undanförnum árum eru nokkur
dæmi um skriðuföll þar sem frosið
set hefur borist niður á láglendi ofan
úr setbunkum hátt í fjöllum, svo sem
í Árnestindi á Ströndum, Móafells-
hyrnu í Fljótum og Torfufelli í Eyja-
firði.5 Rannsóknir á sífrera í fjöllum
Tröllaskaga benda til að ofan 800 m
hæðar sé sífreri talsvert útbreiddur
og koma þessi skriðuföll vel heim og
saman við það.6,7 Segja má að á undan-
förnum áratug hafi sjónir vísinda-
manna sem stunda rannsóknir á skriðu-
föllum æ meira beinst að mögulegu
samhengi milli stórra skriðufalla og
þiðnandi sífrera í fjalllendi af völdum
hlýnandi loftslags.
Nú þegar er unnið að nánari kort-
lagningu og undirbúningi frekari rann-
sókna á skriðunni við Gilsá og er ætlunin
að afla frekari gagna á komandi sumri,
með það að markmiði meðal annars að
skilja betur orsök og eðli skriðunnar,
ásamt því að efla almenna þekkingu um
stór skriðuföll og ekki síst um mögulegt
samhengi þeirra við breytingar á sífrera
í fjalllendi landsins.