Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 74
Náttúrufræðingurinn
74 Náttúrufræðingurinn 91 (1–2) bls. 74–80, 2021
Skýrsla stjórnar Hins íslenska
náttúrufræðifélags fyrir starfs-
árið 2020 – flutt á rafrænum
aðalfundi 25. febrúar 2021
Aðalfundur HÍN fyrir starfsárið 2019 var haldinn í Öskju,
Háskóla Íslands, hinn 24. febrúar 2020, að loknu erindi Þóru
Bjargar Andrésdóttur um hugsanleg gos á Reykjanesskaga.
SKIPUN STJÓRNAR
Á aðalfundinum rann út kjörtímabil þriggja stjórnarmanna
auk formanns. Það voru þau Snæbjörn Guðmundsson gjald-
keri, Jóhann Þórsson félagsvörður og Margrét Hugadóttir rit-
ari. Auk þess óskaði Sveinbjörg Hlíf Gunnarsdóttir fræðslu-
stjóri eftir því að láta af stjórnarsetu eftir þrjú ár. Það er full
ástæða til að þakka öllum ofangreindum fyrir störf þeirra og
framlag til félagsins.
Kosningar til stjórnar fóru þannig: Ester Rut Unnsteins-
dóttir var endurkjörin formaður og Snæbjörn Guðmundsson
gjaldkeri. Til viðbótar voru kosnir þrír nýir stjórnarmenn:
Helena Westhöfer Óladóttir, Anna Heiða Ólafsdóttir og Gróa
Valgerður Ingimundardóttir. Gróa var kosin til eins árs í stað
Sveinbjargar Hlífar og látið reyna á hvernig það gengi þar sem
hún er búsett erlendis. Í stuttu máli hefur það gengið býsna
vel og engin ástæða til að útiloka fólk frá stjórnarsetu þótt það
sé búsett annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu.
Helena er umhverfisfræðingur og kennari að mennt.
Hún hefur starfað á vettvangi umhverfismála frá því hún
lauk meistaraprófi við Háskóla Íslands 2005. Hún vann að
innleiðingu sjálfbærni í leik- og grunnskólum Reykjavíkur-
borgar, hefur starfað að umhverfis- og gæðastjórnun ásamt
ráðgjöf um sjálfbærni og samfélagsábyrgð. Helena hefur
kennt við Menntavísindasvið HÍ síðan 2016 og starfar nú hjá
Lyfjastofnun. Anna er fiskifræðingur á uppsjávarsviði Haf-
rannsóknastofnunar. Hún lærði fiskifræði við Memorial-
háskólann á Nýfundnalandi í Kanada, og lauk þaðan bæði
meistara- og doktorsprófi. Frá Kanada lá leið hennar til Fær-
eyja þar sem hún vann á færeysku hafrannsóknastofnuninni
í nokkur ár áður en hún fluttist aftur til Íslands. Gróa Val-
gerður hefur meistarapróf í grasafræði frá HÍ og er í dokt-
orsnámi í flokkunarfræði plantna við Lundarháskóla í Sví-
þjóð. Áður en hún flutti til Svíþjóðar 2011 vann hún hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands og þar áður hjá Líffræðistofnun
Háskóla Íslands. Aðrir stjórnarmenn á síðastliðnu starfsári
voru þær Bryndís Marteinsdóttir meðstjórnandi og Hrefna
Sigurjónsdóttir varaformaður.
Skoðunarmenn reikninga voru kjörnir þeir Steinþór Níels-
son og Sveinbjörn Egill Björnsson.
Nýjum og fyrri stjórnarmönnum er þakkað kærlega fyrir
þeirra ómetanlega framlag til félagsins. Það er ekki sjálfsagt
að fólk gefi tíma sinn til slíkra starfa án þess að krefjast neins
í staðinn.
STJÓRNARFUNDIR
Á fyrsta stjórnarfundi starfsársins skipti stjórnin með sér
verkum og var þannig skipuð á starfsárinu 2020: Ester Rut
formaður, Hrefna varaformaður, Gróa Valgerður ritari, Snæ-
björn gjaldkeri, Helena fræðslustjóri, Anna Heiða félags-
vörður og Bryndís meðstjórnandi.
Frá síðasta aðalfundi hefur stjórn haldið tíu hefðbundna
stjórnarfundi auk sex aukafunda vegna sérstakra mála. Kór-
ónuveirufaraldurinn skall á rétt eftir aðalfund 2020 og hafa
fundirnir síðan alfarið verið haldnir með fjarfundarbúnaði.
Núverandi stjórn hefur því aldrei komið öll saman í raun-
heimum. Kemur það ekki að sök og voru samskiptamiðlar
þess í stað notaðir til hins ýtrasta.
Hluti stjórnar fór og heimsótti Hilmar J. Malmquist í
framtíðarhúsakynnum Náttúruminjasafnsins á Seltjarnarnesi
í desember og var útvarpsþættinum Samfélagið í nærmynd
útvarpað þaðan. Spjallað var við Hilmar um áform um upp-
byggingu safnsins á þessum stað og við Ester Rut um félagið
og baráttu þess fyrir Náttúruminjasafni. Að lokum var rætt
við Helenu um hið nýja hlaðvarp, „Hinir íslensku náttúru-
fræðingar“. Nánar verður fjallað um hlaðvarpið og Náttúru-
minjasafnið hér á eftir.