Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 57
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
57
og einn fjaðurstafamítill (Prostigmata).
Samsvarandi úttekt ytri sníkjudýra er
ekki til nema fyrir eina aðra íslenska
fuglategund, fálkann (Falco rusticolus).11
Miðað við þekkingu á útbreiðslu slíkra
sníkjudýra hjá fuglum almennt12,13 má
gera ráð fyrir að allar fuglategundir sem
hér búa hýsi samfélög naglúsa og mítla.
Þessi sníkjudýr smitast oftast beint milli
einstaklinga sömu tegundar, annað-
hvort á milli móður og afkvæmis („lóð-
rétt“) eða við önnur samskipti skyldra
eða óskyldra einstaklinga („lárétt“), en
lúsflugur og þar á meðal snípuludda
koma líka hér við sögu. Sumar tegundir
naglúsa og mítla nota nefnilega lúsfl-
ugur við að komast á milli hýsla. Enska
orðið um slíka dreifingu er phoresy,
hugtak sem við leggjum til að fái heitið
ferjun á íslensku, og lúsflugan er þá í
hlutverki smitferju (e. vector). Dreifi-
máti sníkjudýranna tengist líka hýsil-
sérhæfingu þeirra og þar með þróunar-
sögu hýsils og sníkjudýrs. Væntanlega
eru þau sníkjudýr sem nýta lúsflugur
ósérhæfð með tilliti til hýsla, líkt og lús-
flugurnar sjálfar, en þau sníkjudýr sem
smitast beint milli einstaklinga sömu
tegundar eru þá hýsilsérhæfð og þar
eiga samskipti hýsils og sníkjudýrs sér
langa sögu.
Snípuludda er algengt sníkjudýr á
rjúpu á Íslandi og við vissum að hún
gegndi hlutverki við að ferja mítilinn
M. borealis,14 sem er sníkjudýr á rjúpu,
en við vissum ekki hvort það sama gilti
um dreifingu annarra fiðurmítla eða
naglúsa. Sérstaklega höfðum við þó
áhuga á að vita hvort tveir af fiðurmítlum
rjúpunnar kæmu hér við sögu, það er
fiðurmítlarnir Strelkoviacarus holoaspis
og Metamicrolichus islandicus, en sá síð-
arnefndi er meinvirkur og veldur kláða
(sjá mynd 4.2 hjá Stenkewitz14 af kláða-
rjúpu). Vitað er að tegundir af bæði Strel-
koviacarus- og Metamicrolichus-ætt-
kvíslunum nota lúsflugur til dreifingar.15
Þessi spurning tengist áhuga okkar á
samsetningu og uppruna sníkjudýra-
fánu íslensku rjúpunnar. Ef þessar tvær
ofangreindu tegundir nota lúsflugu til
dreifingar má gera ráð fyrir að þær séu
ósérhæfðar með tilliti til hýsils og því
ekki hluti af upprunalegri sníkjudýra-
fánu íslensku rjúpunnar. Engar lús-
flugur finnast á Grænlandi16 þar sem
íslenski rjúpnastofninn á sínar rætur.17
Við söfnuðum snípuluddum af sem
flestum tegundum fugla til að svara
almennt tveimur meginspurningum: (1)
Hver er lífssaga snípuluddu á Íslandi,
það er hvenær eru flugur á kreiki, hver
eru kynjahlutföll og þungunartíðni? (2)
Hver er þáttur snípuluddu við að dreifa
ytri sníkjudýrum milli fugla?
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Söfnun lúsflugna
Til rannsóknar voru 650 lúsflugur
sem safnað var á árunum 1999–2011;
351 flugu var safnað við rannsóknir á
heilbrigði rjúpu og 299 flugum söfn-
uðu fuglamerkingamenn við sína iðju.
Flugum var safnað af sex tegundum
vaðfugla (spóa, heiðlóu, stelk, sand-
lóu, hrossagauk og jaðrakan), tveimur
tegundum spörfugla (maríuerlu og
skógarþresti), grágæs, smyrli, fálka,
rjúpu og kríu (1. tafla og 1. mynd). Ætlun
okkar var ekki að meta smithlutfall
fyrir hinar ýmsu tegundir hýsla, heldur
að fá lúsflugur sem víðast að og af sem
flestum tegundum hýsla, og reyna að
Tegund hýsils
Host species
Fjöldi flugna
Number of flies
%
Grágæs (Anser anser) 1 0,2
Fálki (Falco rusticolus) 16 2,5
Smyrill (Falco columbarius) 6 0,9
Rjúpa (Lagopus muta) 528 81,2
Heiðlóa (Pluvialis apricaria) 43 6,6
Hrossagaukur (Gallinago gallinago) 3 0,5
Jaðrakan (Limosa limosa) 1 0,2
Sandlóa (Charadrius hiaticula) 8 1,2
Spói (Numenius phaeopus) 24 3,7
Stelkur (Tringa totanus) 1 0,2
Kría (Sterna paradisaea) 6 0,9
Maríuerla (Motacilla alba) 3 0,5
Skógarþröstur (Turdus iliacus) 5 0,8
Án hýsils / no host 5 0,8
Samtals / total 650 100
1. tafla. Fjöldi snípuluddna af 13 tegundum fugla á Íslandi á árabilinu 1999–2011.
– Number of Ornithomya chloropus collected from 13 bird hosts in Iceland 1999–2011.