Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 60
Náttúrufræðingurinn
60
Mánuðir
Months
n Smittíðni (%)
Prevalence (%)
95% öryggismörk
95% cl
Meðalsmitmagn
Mean intensities
95% öryggismörk
95% cl
Júní – June 9 0,0
Júlí – July 71 2,8 0,5–9,7000 5,5 ...
Ágúst – August 158 35,4 28,1–43,300 6,4 5,0–8,00
September – September 55 90,9 80,2–96,300 15,3 13,1–17,9
Október – October 353 13,9 10,6–18,000 12,2 9,7–15,4
2. tafla. Mánaðarleg smittíðni og meðalsmitmagn mítilsins Myialges borealis á 157 af 646 rannsökuðum snípuluddum sem safnað var á Íslandi
1999–2011. – Monthly prevalence of infestation and mean intensities of the mite Myialges borealis parasitizing 157 of 646 Ornithomya chloropus
collected and examined in Iceland 1999–2011.
Ath./Note: Söfnunardag vantaði fyrir fjórar flugur (þar af eina smitaða). Samkvæmt Fisher’s exact-prófi jókst smittíðni marktækt júlí til ágúst (p < 0,001) og
aftur ágúst til september (p < 0,001), en síðan lækkaði hún marktækt september til október (p < 0,001). Samkvæmt Bootstrap t-prófi var enginn munur
á meðalsmitmagni í júlí og ágúst (t = -0,188, p = 0,62), meðalsmitmagn jókst marktækt frá ágúst til september (t = -6,083, p < 0,0001) en enginn munur
var á smitmagni í september og október (t = -1,589, p = 0,115). – Date was missing for four flies (including one infected). According to results of Fisher’s
exact tests prevalence increased significantly from July to August (p < 0.001), and again from August to September (p < 0.001), and then decreased from
September to October (p < 0.001). According to results from Bootstrap t-tests there was no difference in mean intensities for July and August (t = -0,188,
p = 0,62), it increased significantly from August to September (t = -6,083, p < 0,0001), and did not differ in September and October (t = -1,589, p = 0,115.
6. mynd. Kláðamítillinn Promyialges pari. A. Fullvaxið
kvendýr sem safnað var neðan af væng snípuluddu.
B. Tugir klakinna eggja, fimm egg með nær full-
þroskaðar lirfur og sex nýleg egg P. pari á neðra borði
snípuludduvængs. Fullorðna kvendýrið sem sat í
miðjunni er horfið. C. Nær fullþroska P. pari-lirfa í eggi.
– The mite Promyialges pari. A. Adult P. pari female
collected from the lower surface of an O. chloropus
wing. B. Dozens of hatched eggs, five eggs with fully
developed larvae and six maturing eggs of P. pari in
situ on the lower surface of O. chloropus wing. The
female formerly located in the centre is missing. C. P.
pari egg with an almost fully developed larva. Ljósm./
Photo: Karl Skírnisson.
mörk 2,6–5,7%, n = 650). Margir P. pari-
mítlar voru horfnir af flugum og klakin
egg eða lirfur ein eftir (6. mynd). Með-
alsmitmagn miðað við þær 11 flugur
þar sem mítlar sátu enn var 1,6 mítill
(95% öryggismörk 1,09–3,09). Á hinum
flugunum 14 voru engir fullorðnir
kvenmítlar en aðeins egg og nokkrar
nýklaktar lirfur á tveimur þeirra. Allar
þessar smituðu flugur fundust á rjúpum,
5 í ágúst og 20 í október.
Microlichus avus
Af tegundinni M. avus fundust tvö
fullorðin kvendýr (7. mynd). Smittíðni
M. avus var 0,3% (95% öryggismörk
0,1–1,1%, n = 650). Í báðum tilvikum
fannst einn laus M. avus-mítill, annars
vegar innan um M. borealis-mítla
á afturbol flugunnar og hins vegar
undir væng hennar innan um P. pari.
Báðum eintökunum var safnað af rjúpu
í ágúst 2011.
UMRÆÐA
Lúsflugur á Íslandi
Við fundum aðeins snípuluddu í okkar
rannsókn og er það í samræmi við fyrri
rannsóknir á Íslandi.8,9,25 Þrjár aðrar
Ornithomya-tegundir eru slæðingar
hér, þar á meðal O. avicularia og O.
fringillina sem báðar eru útbreiddar
í Evrópu.1,7 Það er viðbúið að þessar
tvær tegundir berist hingað reglu-
lega með flækingsfuglum. Á Bret-
landseyjum eru ofangreindar Ornit-
homya-tegundir frekar takmarkaðar
af búsvæðagerð en tegundum hýsla,
og snípuludda er bundin við ber-
svæði og lifir hærra í landinu en hinar
tegundirnar tvær, sem kjósa þéttan
gróður.1 Samfara hlýnun og aukinni
útbreiðslu skóga á Íslandi og auknum
fjölda skógarfugla er líklegt að þær
nemi hér land.