Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
47
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Náttúrufræðingurinn 91 (1–2) bls. 46–55, 2021
1. mynd. Myndir af vettvangi æðarfugla-
dauðans á Hrauni vorið 2018. Fuglarnir liggja
dauðir í sömu stellingunni, og einnig fuglar
af öðrum tegundum. – Photos from Hraun,
North Iceland, site of the first avian chol-
era outbreak in wild birds in Iceland. Dead
birds were found in positions typical of avi-
an cholera and birds of other species were
found dead as well. Ljósm./Photo: Merete
Rabølle, Hrauni.
INNGANGUR
Í júní 2018 mátti lesa í fjölmiðlum að
fjöldi æðarfugla (Somateria mollissima)
hefði drepist í æðarvarpinu á Hrauni
á Skaga ásamt nokkrum gæsum og
máfum.1,2 Tilraunastöð Háskóla Íslands
í meinafræði að Keldum fékk fuglana
til rannsóknar og greindi sjúkdóms-
valdinn sem fuglakóleru, bakteríusýk-
ingu af völdum Pasteurella multocida.a
Vorið 2019 endurtók sagan sig og er
talið að um 900 æðarkollur hafi drepist
á þessum tveimur árum. Það samsvar-
aði 38% varpfugla á Hrauni.3 Veturinn
2019–2020 stofnaði Æðarræktarfélag
Íslands starfshóp um viðbragðsáætlun
við fuglakóleru í æðarvörpum, í sam-
starfi við Matvælastofnun og Háskóla
Íslands.4 Vorið 2020 var því áfram fylgst
með en nú fundust aðeins þrír dauðir
æðarfuglar, og þar af drápust tveir lík-
lega af öðrum orsökum en úr fugla-
kóleru (Merete Rabølle í tölvupósti til
höfundar 20.6. 2020).
Munu dauðsföllin á Hrauni 2018 og
2019 (1. mynd A og B) vera fyrstu skráðu
tilfelli fuglakóleru í villtum fuglum
hérlendis, en áður voru þekkt tilfelli í
hænsnabúum.5,6 Hér verður fjallað um
fuglakóleru og áhrif sjúkdómsins á villta
fugla með sérstakri áherslu á æðarvörp,
meðal annars til að menn geti brugð-
ist við mögulegum frekari sjúkdóms-
hrinum í æðarvörpum hér á landi.
Fuglakólera (Pasteurellosis avium; e.
avian cholera, avian pasteurellosis) er
bráðsmitandi sjúkdómur sem veldur
bráðri blóðeitrun og getur drepið sýkta
fugla á 6–12 tímum þótt algengara sé
að sjúkdómsferlið sé 4–9 dagar. Ytri
einkenni eru sjaldan áberandi sökum
þess að sjúkdómurinn leiðir til dauða
á nokkrum dögum eftir sýkingu. Fyrir
kemur þó að lifandi fuglar sýna merki
lasleika, þeir eiga erfitt með flug eða
að halda jafnvægi, virðast slappir og
hægt er að komast óvenju nálægt þeim
áður en þeir grípa til flugs.7 Fuglarnir
fá krampaflog, synda í hringi eða kasta
höfðinu aftur áður en þeir drepast. Yfir-
leitt verða sjúkdómshrinur fuglakóleru
á svæðum þar sem farfuglar koma
saman í tugþúsundatali og bakterían
getur varðveist í umhverfinu í allt að 7
vikur áður en sjúkdómshrinur skella á,
oft þannig að þúsundir eða tugþúsundir
fugla drepast samtímis.7–9
Innri einkenni sem sjást við krufn-
ingu eru staðbundnar vefjaskemmdir
á lifur, hjarta og stundum fóarni eða
öðrum innri líffærum.10 Smáir gulir eða
hvítir blettir sjást á lifur, í meltingar-
vegi eru oft kekkir fylltir glæru slími og
í smágirni sjást bólgur og blæðingar (2.
mynd). Sýking af völdum fuglakóleru
er staðfest með einangrun P. multocida
úr hjarta, lifur, beinmerg eða öðrum
vefjum.11 Svipuð innri einkenni sjást í
sýktum alihænsnfuglum.5
a Þessi baktería er alls óskyld Vibrio cholerae sem veldur kóleru í mönnum.