Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 56
Náttúrufræðingurinn
56 Náttúrufræðingurinn 91 (1–2) bls. 56–63, 2021
Lúsflugan snípuludda
Ornithomya chloropus
á Íslandi: Lífsferill og ásætur
Svavar Ö. Guðmundsson, Karl Skírnisson og Ólafur K. Nielsen
FIÐURMÍTLAR (Astigmata: Analgoidea) og naglýs (Phthiraptera) eru algeng
ytri sníkjudýr á fuglum. Mikilvægt er að þekkja bæði smitleiðir sníkjudýra og
hýsilsérhæfingu þeirra þegar fjallað er um samskipti hýsils og sníkjudýrs. Lífsferill
fiðurmítla og naglúsa er einfaldur og tíðast að smitleiðin sé á milli einstaklinga
sömu tegundar, en lúsflugur (Hippoboscidae) geta líka komið við sögu sem smit-
ferjur. Þetta hlutverk lúsflugna var hvatinn að rannsókn okkar. Við vildum svara
því hvaða sníkjudýr nýta sér snípuluddu (Ornithomya chloropus) til dreifingar
á Íslandi og skrá jafnframt lífsferil flugunnar. Við rannsökuðum 650 lúsflugur
sem safnað var af 13 tegundum fugla 1999–2011, tegundagreindum þær og
leituðum að ásætum. Öll eintökin voru snípuluddur og fundust frá 16. júní til
11. október. Kynjahlutföll í stofni voru skekkt kvenflugum í vil og í september-
október var yfir 90% af veiðinni kvenflugur. Engar kvenflugur komnar að goti
fundust í júní-júlí, en 18,5–29,4% í ágúst-október. Líkast til lifir ein kynslóð á
ári miðað við kynjahlutföll og got. Þrjár tegundir ásætna fundust, allt kvendýrs
fiðurmítlar: Myialges borealis (smittíðni 24,3%), Promyialges pari (4,3%) og
Microlichus avus (0,3%). Mítlarnir voru tíðastir síðsumars (ágúst-september)
og samband þeirra við snípuluddu var mismunandi, M. borealis og P. pari
voru fastir við snípuluddur, urpu á þær og nýklaktar lirfur smituðust á fugla,
M. avus notuðu lúsfluguna til að komast á milli hýsla. Niðurstöður okkar styðja
að ein lúsflugutegund, snípuludda, sé landlæg og við lýsum lífsferli hennar.
Einu ásæturnar sem fundust voru þrjár tegundir fiðurmítla, allar ósérhæfðar
með tilliti til hýsla. Engin tilvik fundust um að naglýs festu sig við snípuluddu.
INNGANGUR
Lúsfluguættin Hippoboscidae tilheyrir
ættbálki tvívængja (Diptera). Innan
ættarinnar eru þekktar um 200 tegundir
og eru þær allar sníkjudýr á fuglum og
spendýrum. Lúsflugur finnast um heim
allan en mestur er fjölbreytileiki þeirra
á hitabeltissvæðum Afríku og Asíu.
Flugurnar eru flatar og leðurkenndar og
hafa sterkar klær og bursta.1 Hér verður
fjallað um lúsflugur af ættkvíslinni Orn-
ithomya. Til hennar heyra 29 tegundir
sem eru sníkjudýr á fuglum og lifa
flestar í Evrópu, Asíu og Afríku.2 Þrjár
tegundir eru algengar í Norður- og Vest-
ur-Evrópu, O. avicularia, O. chloropus
og O. fringillina.1 Ornithomya-flugur
nærast á blóði, drekka um það bil þyngd
sína á þremur til sex sólarhringum og
geta lifað fjarri hýsli að hámarki um
sjö daga.1,3 Í Evrópu eru Ornithomya-
-flugur á kreiki frá lokum júní fram
í lok október en einstaka flugur geta
fundist alveg fram í desember.1 Við klak
eru kynjahlutföll í stofni aðeins skekkt
og þá kvenflugum í vil.1,4,5 Karlflugur O.
chloropus lifa skemur en kvenflugur og
því skekkjast kynjahlutföll enn frekar
þegar líður á sumarið.1
Tímgun Ornithomya-flugna er sér-
stök og kallast á ensku larviparous. Eftir
mökun þroskast frjóvgað egg í afturbol
kvenflugunnar og þar klekst lirfan og
nærist á vökva sem framleiddur er í sér-
stökum „mjólkurkirtlum“.1 Eftir þrjá til
átta daga „gýtur“ móðirin svonefndri
forpúpu (e. prepupae) sem verður að
púpu innan klukkutíma frá goti.1,6 Púp-
unni er oftast gotið á hýsilinn og fellur af
honum til jarðar. Hver fluga gýtur 12–15
púpum um ævina. Lirfur sem púpa sig
síðsumars og á haustin lifa fram á næsta
sumar á púpustigi.1 Fjórar tegundir
Ornithomya-flugna hafa fundist hér
á landi, O. avicularia, O. chloropus, O.
fringillina og O. podicipis.7 O. chloropus
er sú eina sem talin er vera landlæg og
kallast á íslensku snípuludda, hinar eru
slæðingar. Snípuludda finnst í öllum
landshlutum og á ýmsum tegundum
mófugla.8,9
Áhugi okkar á lúsflugum tengist
rannsóknum sem tveir okkar (ÓKN og
KS) hafa tekið þátt í og fjalla um heil-
brigði rjúpunnar (Lagopus muta).10
Sníkjusýking leikur þar mikið hlutverk,
og í allri umfjöllun um heilbrigði fugla
og samskipti hýsils og sníkjudýrs er mik-
ilvægt að þekkja smitleiðir sníkjudýra
og getað flokkað þau eftir hýsilsérhæfni.
Algeng ytri sníkjudýr á fuglum eru nag-
lýs (Phthiraptera) og mítlar (Acari) og á
rjúpum finnast þrjár tegundir naglúsa,
fjórar tegundir fiðurmítla (Astigmata)
Ritrýnd grein / Peer reviewed