Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 78

Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 78
Náttúrufræðingurinn 78 náttúrufræðifélags og reyndist félaginu traustur bakhjarl. Þingvallavatn og rannsóknir á því voru þema heftisins sem kom út að hans frumkvæði. Pétur hóf viðamiklar vistfræði- rannsóknir á vatninu með 59 vísindamönnum frá mörgum löndum á árunum 1974 til 1992, þegar aðrir, margir hverjir nemendur og samstarfsmenn Péturs, tóku við. Heftið var lengi í undirbúningi og komu margir höfundar við sögu en að auki var þörf á aðstoð við ritstjórn. Styrkir til útgáfunnar fengust frá ýmsum aðilum en þess ber að geta að Pétur var í forsvari fyrir Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn sem veitti félaginu myndarlegan styrk, að upphæð tvær milljónir króna, til útgáfunnar. Auk sérheftisins komu á árinu út tvö tvöföld hefti af Náttúrufræðingnum, full af áhugaverðu efni og prýdd glæsilegum myndum. 90. árgangur tímaritsins er þá: 1. hefti (um Þingvallavatn), 2.–3. hefti og 4.–5. hefti, samtals 308 blaðsíður. Í tilefni 90 ára afmælis útgáfunnar var ákveðið að tímaritið eignaðist sitt eigið vefsetur þar sem efni verður birt jafnframt prentútgáfunni. Styrkur fékkst frá umhverfis- og auðlinda- ráðuneytinu til verkefnisins en talsverðan tíma hefur tekið að vinna að mótun vefjarins, sem nú er í vinnslu og verður tekinn í notkun á þessu ári. Í framtíðinni er áætlað að allt efni verði birt með opnum aðgangi á vefnum en eftir er að leysa fjármögnun og opinn aðgang greina. Sjá nánar að neðan. RITSTJÓRNARSTEFNA Stjórn endurskoðaði ritstjórnarstefnu Náttúrufræðingsins og hafa eftirfarandi drög verið kynnt forstöðumanni Náttúru- minjasafns Íslands og ritstjórn til umsagnar. Tilgangur og markmið eru í samræmi við það sem áður hefur verið og hljóðar sá kafli svo: „… að glæða áhuga fólks á náttúrufræðum og náttúru Íslands, auka náttúrulæsi og miðla nýrri þekkingu á náttúru Íslands í riti og á heimasíðu með fjölbreyttu móti. Ritið er ætlað félögum Hins íslenska náttúrufræðifélags og áhuga- fólki um umhverfismál, náttúrufræði og vísindi á öllum aldri. Í ritinu eru greinar almenns eðlis, ritrýndar greinar sem skrifaðar eru á þann hátt að þær höfði til hins almenna lesanda og annað efni um íslenska náttúru. Efni er miðlað bæði í tímariti Náttúrufræðingsins og á vef tímaritsins sem er öllum opinn. Unnið er að því að opna aðgang fyrir alla að greinum og efni Náttúrufræðingsins. Auk efnis sem birtist í tímaritinu heldur Náttúrufræðingurinn úti heimasíðu sem miðlar ítarefni, efni úr ritinu auk annars efnis sem fellur að tilgangi Náttúrufræðingsins. / Öllum er heimilt að skrifa í Náttúrufræðinginn en efnið skal vera á íslensku og falla í einn af tíu efnisflokkum. Ritstjórn Náttúrufræðingsins fer yfir efnið og ákveður hvað á að birta. Auk þessa semur rit- stjórnin við ákveðna aðila um að vera fastir pennar bæði í óritrýnt prentefni og á heimasíðu.“ Nauðsynlegt þótti að brýna stefnuna svo ritstjórn hefði gott viðmið til að mæta nýjum birtingarformum, svo sem vefsetri tímaritsins. Þá var ákveðið að stefna að því að opna aðgang að öllum greinum í stað þriggja ára biðar eins og nú er. Á vef- setrinu verður hægt að miðla aukaefni og ítarefni auk annars efnis sem fellur að tilgangi og stefnu Náttúrufræðingsins. Fjallað er sérstaklega um efnisflokka og þær kröfur sem þarf að uppfylla fyrir hvern flokk. Jafnframt er lögð aukin áhersla á efni sem höfðað gæti til yngri lesenda. Helsta verkefni stjórnar til að ná þessum markmiðum er fjármögnun útgáfunnar og verður fjárhagslegt öryggi félags- ins að ráða því hvenær hægt verður að opna fyrir aðgang efnis að fullu. Á aðalfundi HÍN, 25. febrúar 2020, hélt Þóra Björg Andrésdóttir jarðfræðingur erindi sem nefndist: Ef gýs á Reykjanesskaga, hvar eru líklegustu upptaka- svæðin? – Ekki grunaði menn þá hversu stutt var raunverulega í að jörðin opnaðist á svæðinu en gos hófst einmitt á þessum slóðum þann 19. apríl 2021. Myndin er tekin með flygildi yfir Geldingadölum daginn eftir að gosið hófst. Myndina tók Birgir V. Óskarsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.