Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 18
Náttúrufræðingurinn
18
Ritrýnd grein / Peer reviewed
2. mynd. Á Langakambi undir Hælavíkur-
bjargi fannst súluhreiður árið 2014, og síðan
árlega frá 2016 til 2020. Grænu deplarnir á
Íslandskortinu sýna hvar súlubyggðir er nú að
finna á Íslandi. – On the dyke Langikambur at
Hælavíkurbjarg were Northern Gannets dis-
covered with nests in summer 2014, and then
annually 2016 to 2020. The green dots on the
Iceland map show the location of present-day
Gannet colonies.
Árið 2016
Hinn 25. maí 2016 sást súla á hreiðri
á Langakambi og var ljósmynduð (4.
mynd). Upphaflega var talið að varp-
staðurinn væri í Súlnastapa (66.453133N,
-22.540165V), um 30 m háum drangi eða
stapa skammt undan Hælavíkurbjargi,
rúmlega 500 m frá Langakambi. Við nánari
athugun og samanburð á ljósmyndum
reyndist svo ekki vera. Súlnastapi var hins
vegar varpstaður súlna fyrr á öldum eins
og fjallað er um í umræðukafla.
Ekki er vitað hvort egg var í hreiðrinu
þetta skipti eða fyrr um sumarið. Súlur
verpa aðeins einu eggi og er aðalvarptími
þeirra í apríl en fyrstu fuglarnir verpa um
mánaðamót mars-apríl.20 Sumarið eftir
3. mynd. Súluhreiður á Langakambi undir
Hælavíkurbjargi í friðlandi Hornstranda árið
2014. – Northern Gannet nest at Langi-
kambur at Hælavíkurbjarg bird cliff, Horn-
strandir Nature Reserve (NW-Iceland) in 2014.
Ljósm./Photo: Böðvar Þórisson / Náttúrustofa
Vestfjarða 10.7. 2014.
(2017) skráði einn höfunda (YK) hjá sér
eftir landverði (Vésteinn M. Rúnarsson
munnl. uppl.) að stök súla hafi haldið til
yst á Langakambi sumarið 2016 en engar
upplýsingar fylgdu um hreiðurgerð.
Árið 2017
Þetta ár voru tveir höfunda (CG og YK)
við athuganir á Langakambi 3. júlí og var
þá hreiðurhraukur yst á berggangnum á
sama stað og árið áður (5. mynd). Stök
súla var á hreiðurstaðnum 3. júlí en
ekkert egg var í hreiðrinu (6. mynd).
Ekki er vitað hvort egg hefur verið þar
um vorið, en eins og áður segir verpa
súlur frekar snemma miðað við aðra
íslenska fugla.20
Árið 2018
Sem og árin á undan var einn höfunda
(CG) við fuglaathuganir í Hornstranda-
friðlandi í lok júní. Þrjár súlur sátu yst á
Langakambi 28. júní. Þarna var hreiður-
hraukur á sama stað og árin áður og sat
ein súlan á barmi hans (7. mynd). Ekki
var egg í hreiðrinu en hreiðurhrauk-
urinn var greinilega mun verr úr garði
gerður í lok júní 2018 en bæði árin áður
og eftir (sjá 6. mynd). Kann vel að vera
að hreiðrið hafi litið betur út fyrr um
sumarið. Það var að minnsta kosti farið
að láta á sjá fyrir viðhaldsleysi þegar
komið var fram á mitt sumar.