Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 58
Náttúrufræðingurinn
58
Júní / June Júlí / July Ágúst / August Sept. / Sept. Okt. / Oct.
N=9 N=71 N=156 N=55 N=353
Júní / June Júlí / July Ágúst / August Sept. / Sept. Okt. / Oct.
N=5 N=49 N=97 N=51 N=340
%
k
ve
n
flu
g
u
r
/
%
f
e
m
a
le
fl
ie
s
%
k
ve
n
flu
g
n
a
m
eð
f
an
g
i /
%
f
e
m
a
le
g
ra
vi
d
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
50
40
30
20
10
0
2. mynd. A. Kvenfluga snípuluddu með nær
fullþroska lirfu innvortis, samanber svörtu
nabbana sem sjást í gegnum húð á aftur-
bol. Á neðra borði vængja sjást fimm eggja-
þyrpingar Promyialges pari-mítla (örvar). B.
Nýgotin púpa snípuluddu fundin í fjaðurham
rjúpu (Lagopus muta). – A. Female Ornit-
homya chloropus carrying an almost mature
larva as seen by two dark knobs close to the
surface of the lower abdomen. Five clusters
of Promyialges pari eggs are located under
the wings (arrows). B. Newly deposited O.
chloropus pupa obtained from the plumage
of Rock Ptarmigan Lagopus muta. Ljósm./
Photo: Svavar Ö. Guðmundsson (A); Karl
Skírnisson (B).
Tölfræði
Smittíðni var mæld sem hlutfall sýktra
einstaklinga í úrtaki og meðalsmitmagn
sem meðalfjöldi sníkjudýra á sýktan
einstakling. Við notuðum forritið QP til
að reikna smittíðni og meðalsmitmagn
fyrir kláðamítla.24 Öryggismörk fyrir
smithlutfall og hlutfall vanfærra kven-
flugna var fundið með aðferð Sterns,
fyrir kynjahlutföll með aðferð Blakers,
og fyrir meðalsmitmagn með Bootstrap-
-aðferðinni. Við notuðum forritið einnig
til að bera saman fyrir kláðamítilinn M.
borealis annars vegar mun á smittíðni á
milli tímabila með Fisher’s exact-prófi
og hins vegar mun á meðalsmitmagni á
milli tímabila með Bootstrap t-prófi.
NIÐURSTÖÐUR
Snípuludda
Allar lúsflugur í rannsókninni voru
greindar sem snípuluddur, O. chloropus.
Fyrsta snípuluddan veiddist 16. júní og sú
síðasta 11. október. Miðað við þetta eru
snípuluddur á kreiki í að minnsta kosti
fjóra mánuði á ári. Hlutfall kvenflugna
var 55,6–69,0% í júní til ágúst. Í september
og október var það mun hærra eða 92,7%
og 96,3% (3. mynd). Engar snípuluddur
komnar að goti fundust í júní og júlí. Það
var ekki fyrr en 2. ágúst að fyrsta kven-
flugan með þroskaða lirfu fannst. Í sýnum
frá ágúst voru 21,6% kvenflugnanna rétt
ógotnar, og það hlutfall hélst svipað í sept-
ember (29,4%) og október (18,5%; 4. mynd).
spanna allt skeiðið þegar flugur eru á
kreiki. Við söfnun var fluga gripin með
fingrunum, sett í 5 ml glas með 70%
etanóli og glasið merkt með dagsetn-
ingu, stað, tegund fugls og aldri. Þannig
voru flest sýni tengd ákveðnum einstak-
lingi af þekktri tegund og aldri. Sum sýni
voru safnsýni, það er allar flugur saman
í glasi voru af hýsli sömu tegundar frá
sama stað og degi. Fimm flugur náðust á
víðavangi án þess að nokkur hýsill væri
nærri, en höfðu sest á þann sem safnaði.
Greining á flugum
Flugurnar voru skoðaðar við 10–40-
falda stækkun undir víðsjá. Við
tegundargreiningu var stuðst við lýs-
ingar frá Hutson1 og Petersen o.fl.18
Flugurnar voru kyngreindar á ytri kyn-
færum. Fullþroska kvenflugur geta gotið
nokkrum sinnum í hverjum mánuði.
Skömmu fyrir got sést móta fyrir lirf-
unni og svartir blettir á enda hennar
sjást gegnum húðina á afturbol móður-
innar (2. mynd). Við skráðum fyrir allar
kvenflugur hvort þetta sæist.
Leit að mítlum og naglúsum
Við leituðum í víðsjá við 20–40-falda
stækkun að fiðurmítlum og naglúsum
á frambol, afturbol og höfuðlið, gang-
limum og vængjum hverrar flugu og í
geymsluvökva glasanna þar sem flug-
urnar voru varðveittar. Einu ásæturnar
sem við fundum voru mítlar og væru þeir
til staðar töldum við þá, skráðum hvar á
líkama flugunnar þeir voru og áætluðum
fjölda eggja á flugu. Var þar miðað við
þrjá flokka: 1 = 1–9 egg, 2 = 10–99 egg, og
3 = 100–999 egg. Við losuðum mítla frá
flugum með fíngerðri sprautunál sem
beitt var líkt og hnífsegg, fluttum þá yfir
á smásjárgler og steyptum í Hoyer’s inn-
steypingarefni undir þekjugleri.19 Sýnin
voru svo þurrkuð yfir nótt í hitaskáp við
60°C. Við notuðum smásjá til að tegunda-
og kyngreina mítla á glerjum. Við grein-
ingu á M. borealis, P. pari og M. avus var
stuðst við greiningarlykla.15,20–23 Sergey V.
Mironov við dýrafræðideild Rússnesku
vísindaakademíunnar í Sankti Péturs-
borg staðfesti greiningar P. pari og M.
avus. Smásjármyndir voru teknar með
stafrænni myndavél (Nikon DS-Vi1) og
var hún fest á DMLB Leica-smásjá sem
útbúin var með skerpuaukandi linsum
(Nomarski Interference Contrast).
1. mynd. Hýslar og söfnunartími snípuluddu 1999–2011.
– Hosts and collection time for Ornithomya chloropus 1999–2011.
Annað / Other
Sandlóa / Ringed Plover
Fálki / Gyrfalcon
Spói / Whimbrel
Heiðlóa / Golden Plover
Rjúpa / Rock Ptarmigan
Júní / June
E
in
tö
k
/
S
p
ec
im
en
Júlí / July Ágúst / August Sept. / Sept. Okt. / Oct.
400
350
300
250
200
150
100
50
0