Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
9
Ritrýnd grein / Peer reviewed
þeim tíma og því svæði þar sem hann
dvelst. Einnig breytist fæðan eftir því
sem þorskurinn vex.19–21 Því eru helstu
fæðutegundir þorsks mismunandi milli
árstíma og svæða. Almennt er loðna
aðalfæða þorsks síðla vetrar og fram
á vor en á öðrum árstímum eru rækja,
ísrækja, ljósáta og ýmsar fisktegundir
meðal algengra fæðutegunda.20–24
Ferlar frá rafeindamerkjum sem
hafa verið lengur en tvö ár í sjó sýna að
þorskar eru á svipuðu dýpi og við svipað
hitastig á sama árstíma ár eftir ár. Þeir
virðast því ekki breyta um atferli; ef
þeir sýna grunnfar eitt ár þá er líklegt
að þeir geri það aftur næsta ár.8 Til eru
þorskar sem falla ekki inn í þessa tvo
hópa (6. mynd).25 Þeir dveljast til dæmis
lengur á grunnslóðinni áður en þeir
fara á djúpslóð. Einnig virðast djúpfars-
þorskar sem hrygna við Norðausturland
ekki fara eins djúpt og þeir sem hrygna
fyrir suðvestan land, sem bendir til að
þeir sæki á önnur fæðuöflunarsvæði.
FAR Á ÍSLANDSMIÐUM
Þorskur finnst allt í kringum landið og
ferðast töluverða vegalengd á Íslands-
miðum (7. mynd). Yfirgripsmesta sam-
antekt um merkingar þorsks við Íslands
er rit Jóns Jónssonar frá árinu 1996.5
Þar gerir hann grein fyrir merkingum
tæplega 85 þúsund þorska á næstum
40 ára tímabili (1948–1986). Þar af
endurheimtust um 11 þúsund merki
eða 13% af merktum þorskum. Mest-
megnis var um að ræða kynþroska fisk
sem var merktur á hrygningartíma suð-
vestanlands, en einnig kynþroska og
ókynþroska fisk sem var merktur vítt
og breitt umhverfis land að sumarlagi.
Niðurstöðurnar gáfu vísbendingar um
að kynþroska fiskur dveldist um hríð
á hrygningarslóð við Suðvesturland og
haldi síðan í ætisgöngu norður á bóginn
að lokinni hrygningu, gjarnan réttsælis
með viðkomu í Faxaflóa, en einnig voru
dæmi um rangsælis göngur norður fyrir
land. Merkingartilraunir frá árinu 1991
styðja þessar niðurstöður. Þær sýna
einnig að flestar endurheimtur á hrygn-
ingartíma eru á hrygningarsvæðunum
og utan þeirra á fæðutíma (7. mynd).
Meginhrygningarsvæði þorsks er við
Suðvesturland3 en þó hrygnir þorskur
allt í kringum landið.26,27 Vísbendingar
eru um að frá árinu 2007 hafi þorskur
farið að hrygna í meira mæli en áður í
Breiðafirði og Faxaflóa.28 Ýmsar rann-
sóknir benda til þess að við Ísland séu
nokkrir aðgreindir hópar þorsks.29–31
Endurheimtur úr merkingum hafa sýnt
að kynþroska þorskur er heimakær og
fer gjarnan á sömu hrygningarslóð að
vori.32 Heimasvæði þessara hópa er lítið
yfir hrygningartímann en stækkar eftir
hrygningu þegar þeir fara í fæðuleit
og nær 95%-heimasvæði þorsks sem
hrygnir við Suðvesturland frá Horni
suður og austur um að Gerpi (8. mynd).
Heimasvæði á hrygningartíma skarast
lítið en á fæðuslóð geta blandast saman
þorskar frá mismunandi hrygningar-
svæðum. Skörunin er þó mismikil milli
svæða (8. mynd). Þorskar sem hrygna
í Breiðafirði33 og á Austfjörðum16 sýna
einnig tryggð við sín hrygningarsvæði.
Þeir þorskar hafa því annað farmynstur
en þeir sem hrygna við Suðvesturland.
Að hrygningu lokinni fer þorskur í
fæðuleit en mislangt er frá hrygningar-
svæðum að fæðusvæðum. Þorskur sem
hrygnir við Suðvesturland fer ýmist
í fæðuleit úti af Vesturlandi og Vest-
fjörðum eða í austurátt meðfram suður-
ströndinni (8. mynd D). Hins vegar fer
þorskur sem hrygnir við Suðausturland
frekar í austurátt í fæðuleit (8. mynd C).
Hrygningarþorskur við Suðausturland
er nær alfarið aðskilinn þorski í Breiða-
firði (8. mynd A) sem fer nær ekkert
suður fyrir Reykjanes. Þetta hegðunar-
mynstur veldur því að hóparnir tveir
haldast að mestu aðskildir árið um
kring. Við það bætist að djúpfarsþorskur
fer í fæðuleit í hitaskilin fyrir norð-
vestan og austan landið en grunnfars-
þorskur heldur sig á grunnslóðinni. Til
að mynda sýndu staðsetningar tveggja
grunnfarsþorska úr Faxaflóa að þeir
héldu sig í Faxaflóa, Breiðafirði og við
sunnanverða Vestfirði en fóru hvorki
norður né suður fyrir land og ekki af
grunnslóðinni.8 Þetta hefur verið hægt
0
2
4
6
8
10
200
150
100
50
0
H
it
as
ti
g
(°
C
) /
T
e
m
p
e
ra
tu
re
Grunnfar / Coastal Djúpfar / Frontal
D
ýp
i (
m
) /
D
e
p
th
Maí Júl Sep Nóv Jan Mar Maí Júl Sep Nóv Jan Mar
0
2
4
6
8
10
600
500
400
300
200
100
0
H
it
as
ti
g
(°
C
) /
T
e
m
p
e
ra
tu
re
D
ýp
i (
m
) /
D
e
p
th
0
100
200
300
400
500
Janúar Apríl Júlí Október
0
2
4
6
8
10
Janúar Apríl Júlí Október
6. mynd. Ferlar sem sýna meðaldýpi og meðalhitastig sex þorska; blágrænt = dæmigert grunn-
far, grænt = dæmigert djúpfar, aðrir litir sýna frávik frá þessum dæmigerðu ferlum. – Mean
depth and mean temperature of six cods; bluegreen = typical coastal, green = typical frontal,
other colors show deviations from these typical behaviour types.