Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
11
Ritrýnd grein / Peer reviewed
að meta með dýpisferlum rafeinda-
merkja þegar þorskur er nógu lengi
(nokkra klukkutíma) nálægt botninum
til að greina megi sjávarföll í dýpisferl-
inum. Dýpisferlar merkjanna eru bornir
saman við sjávarfallalíkan þar sem búið
er að kortleggja landgrunnið með tilliti
til sjávarfalla í tíma og rúmi. Að teknu
tilliti til dýpis og fjarlægðar frá síð-
asta stað8,34 er fundin út líklegasta stað-
setning þorsksins.
Þorskur hrygnir í mars-maí hér við
land. Þá koma báðar atferlisgerðirnar
á grunnslóð til að hrygna og þá jafn-
vel á sömu hrygningarsvæði þótt þær
haldist aðskildar innan svæðanna.35 Ef
rafeindamerki eru nógu lengi í sjó er
hægt að sjá hvenær þorskurinn kemur
til hrygningar og hvenær henni lýkur.
Tíminn á hrygningarsvæðinu er vel
skilgreindur í rafeindamerkjunum þar
sem fiskurinn breytir um hegðun og
heldur sig á svipuðu dýpi í nokkurn
tíma á meðan á hrygningu stendur (5.
mynd). Niðurstöður rafeindamerkja
hafa einnig sýnt að þorskur getur sleppt
úr hrygningu11 en það gerir hann meðal
annars ef hann vantar orkuforða til að
framleiða hrogn eða svil.36
Göngur ungþorsks hafa minna verið
rannsakaðar en göngur kynþroska
þorsks. Helstu uppeldissvæði þorsks
við Ísland eru á grunnsvæði og inni á
fjörðum26 og er þéttleiki þorskseiða oft
mikill á fjörðum vestan- og norðanlands
á haustin.37 Eldri þorskur leitar utar og
dýpra og því eru uppeldissvæðin að ein-
hverju leyti aðskilin búsvæðum eldri
þorsks. Rannsóknir benda til að þorskur
sé nokkuð staðbundinn meðan hann er
ókynþroska en þegar kynþroska er náð
fari hann af uppeldissvæðum á hrygn-
ingarsvæði.38–40 Far frá uppeldissvæði á
hrygningarsvæði var þó breytilegt sam-
kvæmt rannsóknunum, en þorskur í
Húnaflóa færði sig fremur yfir á hrygn-
ingarsvæði úti af Suðvesturlandi en
þorskur í Breiðafirði, sem hélt sig frekar
nær Breiðafirði. Þorskur í Húnaflóa
synti því langa vegalengd á móti straumi
á hrygningarsvæðið.
FYRSTU NIÐURSTÖÐUR ÚR
MERKINGUM ÁRIÐ 2019
Nýjustu merkingar sýna að margir
þorskar sem merktir voru í mars 2019
á Vestfjarðamiðum endurheimtust á
Kolbeinseyjarhrygg á fæðuöflunar-
tíma og einnig leituðu þeir austur með
Norðurlandi (9. mynd). Þetta stangast
á við niðurstöður úr fyrri rannsóknum
sem bentu til þess að takmarkaður sam-
gangur væri á milli norðvestur- og norð-
austurmiða.41 Fréttir frá sjómönnum
herma að erfiðlega hafi gengið að
veiða þorsk á hefðbundnum slóðum á
Vestfjarðamiðum seinni hluta áranna
2019 og 2020 og er það í samræmi við
niðurstöðu merkinganna, sem benda
til að þorskur hafi að hluta fært sig
af hefðbundinni fæðuslóð fyrir norð-
vestan land yfir á nyrðri slóðir. Þessar
niðurstöður gætu bent til að far þorsks
við Ísland sé að breytast. Hvort það
er tímabundið er erfitt að segja til um.
Niðurstöðurnar sýna jafnframt að mikil-
vægt er að stunda merkingar reglulega
þannig að hægt sé að fylgjast með breyt-
ingum á fari þorsksins.
FAR Á ÖNNUR HAFSVÆÐI
Þótt þorskur merktur hér við land
endurheimtist sjaldan utan íslenskrar
lögsögu gætir tengsla við aðliggjandi
svæði. Á árunum 1924–1939 voru 8.424
þorskar merktir við Ísland og endur-
heimtust rúmlega 1.000 þeirra, þar af
19 við Grænland.42 Árin 1948–1986 voru
tæplega 85 þúsund þorskar merktir við
Ísland og aðeins 38 af um 11 þúsund
endurheimtum fengust á öðrum haf-
svæðum (18 við A.-Grænland/Dohrn-
banka, 4 við V.-Grænland, 6 við Fær-
eyjar, 3 í Norðursjó og 7 við Noreg).5
Frá árinu 1991 til 2021 hefur þorskur
sem merktur var við Ísland ekki endur-
heimst við Grænland. Nokkrir hafa
verið endurheimtir á Íslands-Færeyja-
hrygg og einn við Færeyjar á fæðutíma
(7. mynd).
Árið 2018 veiddist hrygnandi þorskur
við Jan Mayen en lítið hefur verið um
hrygnandi þorsk á því svæði. Rann-
sóknir Norðmanna á erfðaefni úr afla
bentu til að hluti hans væri kominn
frá Íslandi.43 Einhver samgangur virð-
ist vera á milli Íslands og Jan Mayens.
Þrír þorskar sem merktir voru við
Jan Mayen árið 1930 endurheimtust
við Ísland (við Norðurland og Vest-
mannaeyjar).44 Merkingum á Kolbeins-
Lengdargráða / Longitude Lengdargráða / Longitude
63°
64°
65°
66°
67°
63°
64°
65°
66°
67°
27° 24° 21° 18° 15° 12°27° 24° 21° 18° 15° 12°
Mars–maí Mars−maí
Júní−febrúar Júní−febrúar
A) B)
C) D)
B
re
id
d
ar
g
rá
ð
a
/
L
at
it
u
d
e
B
re
id
d
ar
g
rá
ð
a
/
L
at
it
u
d
e
Lengdargráða / Longitude Lengdargráða / Longitude
Merkingarstaðir / Tagging locations Endurheimtustaðir / Recapture locations
B
re
id
d
ar
g
rá
ð
a
/
L
at
it
u
d
e
62°
64°
66°
68°
62°
64°
66°
68°
−25° −20° −15° −10° −5° −25° −20° −15° −10° −5°
63°
64°
65°
66°
67°
68°
−24° −20° −16° −12°
Lengdargráða / Longitude
B
re
id
d
ar
g
rá
ð
a
/
L
at
it
u
d
e
9. mynd. Endurheimtur úr merkingum árið 2019. Bláir punktar sýna
endurheimtur á hrygningartíma (mars-maí), rauðir á fæðutíma (júní-
febrúar) en grænir tákna að endurheimtumánuður er óþekktur.
Svartir punktar eru merkingarstaðir. Brotalínur sýna stystu leið á
milli merkingarstaðar og staðarins þar sem fiskurinn endurheimtist.
– Recaptures from tagging in 2019. Blue points are recaptures at
spawning time (March-May), red points during feeding time (June-
February) and green where month of recapture is unknown. Black
points are tagging locations. Broken lines show the shortest distance
between tagging and recapture locations.