Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 12

Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 12
Náttúrufræðingurinn 12 Ritrýnd grein / Peer reviewed 60° 62° 64° 66° 68° 70° −50° −40° −30° −20° −10° Lengdargráða / Longitude B re id d ar g rá ð a / L at it u d e eyjarhrygg í mars 2019 er meðal annars ætlað að kanna hvort þorskur sem kom- inn er svo langt norður fyrir land færi sig yfir til Jan Mayen. Niðurstöður merkinga við Græn- land benda til þess að á hverju ári gangi þorskur af Grænlandsmiðum á Íslands- mið. Hinn 23. mars 1927 gerðist það fyrst að þorskur merktur við Grænland veiddist á Íslandsmiðum.44 Þetta þóttu óvænt tíðindi og í framhaldinu voru fleiri þorskar merktir, bæði við Ísland og Grænland, til að kanna betur tengslin á milli þessara hafsvæða. Töluverður fjöldi þorska sem merktir voru við Grænland á árunum 1924 til 1933 fór yfir að Íslandi. Af 7.064 merktum þorskum endurheimtust 296 þorskar, þar af 137 við Ísland en 159 við Grænland.44 Til ársins 1952 voru 25.073 þorskar merktir við Grænland og veiddust 27,4% endur- heimtra við Ísland.45 Frá árinu 1991 til 2021 endurheimtust við Ísland rúmlega 200 þorskar sem voru merktir við Græn- land (10. mynd). Flestir endurheimtust þeir við Suðvesturland, við Vesturland og úti af Vestfjörðum en aðeins örfáir á svæðinu frá Eyjafirði austur um að Vestmannaeyjum. Þorskur sem er merktur við Græn- land og endurheimtist við Ísland er að öllum líkindum upprunninn við Ísland. Þorsklirfur berast með straumum frá hrygningarsvæðum við Suðvesturland á uppeldissvæði fyrir norðan land. Hluti lirfnanna getur þó borist með straumum til Grænlands en misjafnt er milli ára hvort og þá hve mikið berst til Græn- lands. Sá hluti sem lifir af elst upp við Grænland en þegar kynþroska er náð fara þessir þorskar aftur til Íslands að hrygna.46 Líkt og þorskur sem elst upp fyrir norðan þá gengur þorskur frá Grænlandi á móti straumi langar vegalengdir til að komast á hrygningar- svæðið, í þessu tilviki yfir 1.000 km.46 Í gegnum tíðina hafa þorskveiðar á Íslandsmiðum aukist mjög í kjölfar Fiskifræðingar geta aðeins unnið úr merkingargögnum ef fiskar endurheimtast, og skil á merkjum eru því forsenda þessara rann- sókna. Sjómenn og starfsfólk í fiskvinnslu hafa verið öflugir liðs- menn í merkingarverkefnum og er þátttaka þeirra ómetanleg. Þeir sem finna merktan fisk eru beðnir að senda merkin til Hafrann- sóknastofnunar. Hægt er að senda fiskinn í heilu lagi eða fjarlægja bæði merki og kvarnir úr honum og senda. Upplýsingar þurfa að fylgja um hnit, veiðistað, dýpi, dagsetningu og tegund veiðarfæris. Einnig er mikilvægt að fá upplýsingar um lengd fisksins, kyn, kyn- þroska og að kvarnir séu fjarlægðar. Mikilvægt er að kvarnirnar fylgi merkinu í sendingunni. Ekki má heldur gleyma að senda með upp- Merkingardauði. Alltaf drepst eitthvað af fiski í sjálfu veiðiferlinu. Því dýpra sem fiskurinn veiðist og því meiri hitamunur sem er milli botns og yfirborðs sjávar, þeim mun erfiðara er fyrir fiskinn að lifa af ferðina um borð í skipið. Að sama skapi er merkingardauði yfirleitt meiri á sumrin þegar munur er meiri á hitastigi milli botns og yfir- borðs48 og hækkun hitastigs veldur aukinni súrefnisþörf.49 Einhver merkingardauði er óumflýjanlegur, jafnvel þótt reynt sé að fara eins varlega og hægt er. Veiðarfæri eru hífð hægt um borð í skipið til að fiskarnir aðlagist betur breytingum á dýpi. Reynt er að setja fiska strax í sjókör eftir að þeir eru komnir um borð og þeim leyft að jafna sig áður en þeir eru merktir. Aðeins þeir sem virðast í góðu ásig- komulagi eru merktir og þeim sleppt. Tilraunir hafa sýnt um 12% merkingardauða þorsks eftir merkingu með hefðbundnum merkj- um.50 Mikil hætta er á að slappir smáfiskar verði étnir fljótlega eftir merkingu, sérstaklega ef mikið er af stærri fiskum á svæðinu.51 Náttúruleg afföll. Fiskar sem lifa af merkinguna geta drepist síðar af náttúrulegum orsökum, bæði vegna líffræðilegra þátta, svo sem afráns, fæðuskorts, sjúkdóma og/eða sníkjudýra, eða ólífrænna þátta, svo sem hitastigs, seltu eða strauma.36 Náttúrulegur dauði minnkar eftir því sem fiskarnir stækka og áhrif ólífrænna þátta eru líklega óverulegri eftir því sem fiskarnir eru stærri. Með fjölbreyttari fæðu verða líkur á fæðuskorti minni þegar einstaklingar stækka.19,21 ENDURHEIMTUR Merkjatap. Sýnt hefur verið fram á að um 10% merkja, hvort sem um slöngu- eða rafeindamerki er að ræða, geti tapast árlega.7 Einnig hafa tvímerkingar á þorski, þar sem hver þorskur var merkt- ur með rafeindamerki og slöngumerki, bent til þess að árlega tapist um 15–18% slöngumerkja fyrstu tvö til þrjú árin eftir merkingu.6 Sýnileiki merkja. Þrátt fyrir tvímerkingu er ekki víst að sjómenn taki eftir merktum fiski í afla. Í þorskmerkingartilraun á árunum 2005– 2007 í Arnarfirði komu 80% endurheimtra merkja frá sjómönnum og 20% frá fiskvinnslufólki.7 Ljóst er því að töluvert af merktum fiski fer framhjá sjómönnum þegar þeir meðhöndla fiskinn. Þegar fiskur er slægður er erfitt að taka ekki eftir rafeindamerki sem er í kvið- arholinu. Hins vegar eru slöngumerki baklæg á fiskinum og ekki alltaf vel sýnileg þegar hann liggur á hliðinni. Tvímerkingar eiga að auka sjáanleika merkjanna þar sem merki á þá að sjást sama á hvorri hliðinni fiskurinn liggur. Merkjum ekki skilað. Þótt búið sé að finna merki og taka frá, þá gleymist stundum að senda þau til Hafrannsóknastofnunar og þau geta dagað uppi hjá finnandanum. Þetta er bagalegt af því að skil merkja eru einn mikilvægasti þáttur merkinganna og hvert endurheimt merki skiptir máli fyrir niðurstöður rannsóknanna. Ekki er vitað hve hátt hlutfall endurheimtra merkja skilar sér til Hafrannsóknastofnunar. lýsingar um þann sem sendir merkið. Hafrannsóknastofnun greiðir 2.000 krónur fyrir skil hvers hefðbundins slöngumerkis og 10.000 krónur fyrir rafeindamerki. Aðeins hluti merkjanna endurheimtist og því er mikilvægt að merkja marga einstaklinga. Aldur við merkingu hefur áhrif á endurheimtur – því yngri sem fiskurinn er þegar hann er merktur þeim mun lengur má gera ráð fyrir að hann endist í stofninum og þar með skila endur- heimtur sér yfir lengra tímabil. Að meðaltali má gera ráð fyrir að um það bil 13–16% af þeim merkjum sem fara í sjó endurheimtist. Nokkrar ástæður eru fyrir því að fiskar og merki skila sér ekki:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.