Náttúrufræðingurinn - 2021, Qupperneq 13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
13
Ritrýnd grein / Peer reviewed
60°
62°
64°
66°
68°
70°
−50° −40° −30° −20° −10°
Lengdargráða / Longitude
B
re
id
d
ar
g
rá
ð
a
/
L
at
it
u
d
e
10. mynd. Endurheimtur við Ísland
úr merkingum við Grænland á árun-
um 1991–2016. Bláir punktar tákna
endurheimtur á hrygningartíma
(mars-maí), rauðir á fæðutíma (júní-
febrúar) en grænir tákna að endur-
heimtumánuður er óþekktur. Svartir
punktar sýna merkingarstaðina. 100
og 500 m dýptarlínur eru sýndar.
– Recaptures in Icelandic waters
from taggings in Greenlandic
waters in 1991–2016. Blue points
are recaptures at spawning time
(March-May), red at feeding time
(June-February) and green where
month of recapture is unknown.
Black points are tagging locations.
Depth contours at 100 and 500 m.
stórra Grænlandsgangna. Þetta gerðist
um 1930 þegar 1922- og 1924- árgangarnir
héldu uppi veiðunum og aftur á árunum
1948–1960 þegar árgangar frá 1943,
1945 og 1950 voru áberandi í aflanum.5
Minna framlag af þorski af Grænlands-
miðum á árunum 1960–2000 mátti rekja
til breyttra umhverfisskilyrða og/eða
lítils hrygningarstofns við Ísland, en
almennt er talið að með stærri hrygn-
ingarstofni aukist líkur á reki þorsklirfna
til Grænlands.
LOKAORÐ
Merkingar hafa veitt mikilvægar upp-
lýsingar um atferli og far þorsks við
Ísland í rúma eina öld. Reglulegar
merkingar er liður í vöktun á göngum
og atferli þorsks en huga þarf að því að
merkja þorsk á mismunandi svæðum
og tíma árs til að fá sem víðtækastar
upplýsingar um göngumynstrið. Niður-
stöður úr merkingum hafa sýnt ákveðin
göngumynstur hjá íslenska þorskinum
á síðustu öld en fyrstu niðurstöður
úr merkingunum árið 2019 benda til
að þorskur gangi meira norður fyrir
land en áður. Þetta sýnir að mikilvægt
er að fylgjast reglulega með göngu-
mynstri þorsks.
Þróun rafeindamerkja seint á síð-
ustu öld var mjög mikilvæg og opnuðu
merkin á ýmsa möguleika í rannsóknum
á atferli þorsks og annarra fiskitegunda.
Mikill kraftur var í rafeindamerkingum
til ársins 2004 og skiluðu þær mikil-
vægum niðurstöðum um atferli þorsks
en síðan hefur þorskur ekki verið raf-
eindamerktur við Ísland. Á síðustu
árum hafa rafeindamerki þróast enn
frekar og mæla nú líka seltu, halla, átt og
hjartslátt. Með hjartsláttarmælingum er
meðal annars hægt að meta áhrif utan-
aðkomandi þátta sem geta valdið streitu,
svo sem samspil bráðar og afræningja.
Í ljósi þess að ástand sjávar við landið
breytist ört og breytingar séu að verða
í göngumynstri fisksins er mikilvægt að
hefja aftur atferlisrannsóknir á þorski.
Nauðsynlegt er að auka þekkingu
okkar á mismunandi atferlisgerðum
þorsks. Enn er lítið vitað um hlutfall
þeirra á tilteknum svæðum og árstíma.
Til að fá um það upplýsingar þyrfti að
vera hægt að greina á milli atferlis-
gerða með öðrum og ódýrari aðferðum
en nú þegar eina örugga leiðin til
aðgreiningar er að skoða hitastigs- og
dýpisferla úr rafeindamerkjum. Vegna
kostnaðar og fæðar fiska sem merktir
eru með rafeindamerkjum eru gögnin
takmörkuð og nýtast varla í þessum
tilgangi. Aðferðir, svo sem erfðafræði-
legar aðferðir47 og athugun á lögun
kvarna,25 benda til að greina megi á
milli atferlisgerða þótt þær aðferðir
gefi ekki eins áreiðanlegar upplýsingar
og rafeindamerkingar. Skoða þarf betur
möguleikann á að nýta aðferðirnar í
þessum tilgangi.
SUMMARY
Migration and behaviour
of Icelandic cod
Tagging studies have been used to
study migration of Icelandic cod since
1904. Results from data storage tags
(DSTs) have revealed two different
behaviour patterns, coastal cod that
mainly inhabits coastal waters shal-
lower than 200 m and frontal cod
migrating to offshore frontal areas
during the feeding period where it
shows frequent changes in temperature
and depth.
Cod is found all around Iceland and
it migrates substantial distances within
Icelandic waters. Tagging conducted
in 1948–1986 indicated that after
spawning off the south-west coast, cod
migrated north to the feeding grounds,
mainly along the west coast but also
the east coast. However, not all indi-
viduals follow this pattern. Cod shows
high fidelity to the spawning grounds
and there is low spatial overlap among
a number of spawning components
around Iceland.
Cod tagged around Iceland is rarely
recaptured outside Icelandic waters,
whereas cod tagged off Greenland fre-
quently migrate to Iceland. Cod eggs
and larvae drift with currents from Ice-
land to Greenland and when they have
reached maturity, they show fidelity
towards Icelandic spawning grounds.