Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 20
Náttúrufræðingurinn 20 Ritrýnd grein / Peer reviewed 6. mynd. Súluhraukur á Langakambi á Hornströndum sumurin 2017–2020. – A nest of Northern Gannet at Langikambur in the Hornstrandir Nature Reserve (NW-Iceland) in summers 2017–2020. Ljósm./Photo: Cristian Gallo. skaga. Þar hefur súlubyggðin lítið breyst, að minnsta kosti eftir 1983.1,4,5 Í ljósi stofnaukningar er ekki óvænt að nýjar byggðir myndist. Undanfarna áratugi hafa súlur verið að nema nýjar varpstöðvar norðar við austanvert Atlantshaf, svo sem norður með Noregs- ströndum og allt til Kólaskaga í Rúss- landi. Þar hafa myndast nýjar byggðir síðustu áratugi, sumar þó lagst af aftur.23 Vel kann að vera að þetta gerist á Horn- ströndum þegar fram líða stundir. Væri ánægjulegt ef ný fuglategund hreiðraði um sig í friðlandinu til frambúðar. Nýjar tilraunir til súlu- varps á Hornströndum Langikambur er um 280 km frá næstu súluvarpstöð á Norðurlandi, í Rauða- núpi á Melrakkasléttu, og 370 km frá þeirri næstu sunnan við, í Eldey (sbr. 1. og 2. mynd). Súlur sjást allt í kringum land á sumrin. Á Hornströndum má helst búast við geldfuglum sem enn eru óbundnir ákveðnum varpbyggðum en súlur verpa ekki fyrr en þær eru 4–5 ára.24 Varpfuglar fljúga á annað hund- rað kílómetra frá varpstöð í leit að æti.25 Fjarlægðir frá núverandi súluvarp- stöðvum til Hornstranda eru mun meiri en því nemur. Súluhraukur fannst á Langakambi 2014, og á sama stað öll árin frá 2016 til 2020. Nokkuð ljóst má vera að milli sumra hafi hreiðurefni fokið eða skolast burt í vetrarveðrum. Nýju hreiðri virðist því hafa verið hróflað upp á hverju ári. Algengast er að notaðir súluhraukar séu 30–40 cm á hæð. Hreiðurgerð er hins vegar óásjálegri hjá fuglum sem verpa í fyrsta sinn og sama virðist hafa verið tilfellið á Langakambi. Varp hefur enn ekki tekist þar. Ef svo væri hefðu ungar verið komnir þegar flestar athuganir fóru fram, í ljósi þess að aðalvarptími súlna við Ísland er í apríl.20 Hugsan- legt er að þarna sé of mikil truflun. Fólk getur gengið fast að hreiðurstaðnum, að ekki sé talað um refi sem eru einkar algengir á þessum slóðum.17–18 Refir eða önnur landspendýr (að mannfólki undanskildu) komast ekki að öðrum súluvarpstöðum við Ísland til að ræna eggjum eða ungum. Súlur eru reyndar stórir fuglar með beitt nef og gætu hugs- anlega varið hreiður sitt fyrir slíkum rándýrum. Fuglar geta á hinn bóginn tekið súluegg í öllum súlubyggðum. Eggin eru hvít og því frekar áber- andi þegar hreiðurfuglarnir eru ekki á staðnum. Hingað til hafa engin egg sést í hreiðri á Langakambi. Súluvarp á Hornströndum fyrr á öldum Örnefnið Súlnastapi (einnig er til heitið Súlustapi) vísar eflaust til fuglanna og bendir til þess að þarna hafi súlur orpið fyrrum. Súluvarp er til dæmis í Súlnaskeri í Vestmannaeyjum og hefur verið lengi (8.925 hreiður árið 20145). Þrátt fyrir það er möguleiki að skerið 3.7.2017 28.6.2018 27.6.2019 2.7.2020
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.