Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 25

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 25 Ritrýnd grein / Peer reviewed Vatnajökull og grennd í tímans rás – 3. grein: Endurvakin kynni en breytt erindi Hjörleifur Guttormsson MEÐ ÞESSARI GREIN lýkur þriggja þátta syrpu um Vatnajökul og grennd í tímans rás allt frá því land byggðist og fram undir okkar daga. Í þeirri fyrstu er getið takmarkaðra ritaðra heimilda um jökulinn framan af öldum, lítillar þekkingar þeirra sem fjær bjuggu um stærð hans og aðstæður á jöklum og ólíkra nafngifta í tímans rás. Hins vegar er fjallað um náin samskipti fólks í Skaftafellssýslum við úthafið framundan og sjósókn frá breytilegum en gjöfulum útróðrarstöðum, sem drógu menn að suður yfir jökul. Einnig eru raktar heimildir um hnignun gróðurfars á afréttum norðan Vatnajökuls og lýst aðstæðum í helstu núverandi gróðurvinjum, sem og minjum um forna byggð.1 Í annarri grein eru raktar heimildir um samskiptin yfir jökul forðum tíð frá Fljóts- dalshéraði og úr Norðurlandi til sjósóknar allt fram um 1600, tengd ítökum í jarðeignum og útræði. Náin tengsl Skriðuklausturs við Borgarhöfn á 16. öld eru tekin sem dæmi, en einnig raktar vísbendingar um ferðir suður yfir jökul úr Þingeyjarsýslum og Eyjafirði. Þá er einnig getið heimilda um gagnkvæm ítök Möðrudals og Skaftafells yfir jökul og munnmæla um ferðaleiðir þar á milli.2 Í lokagreininni er fjallað um ástæður þess að ferðir yfir Vatnajökul lögðust af og að hálendið varð flestum lokuð bók í hátt í tvær aldir. Síðla á 18. öld beindust sjónir manna á ný að hálendisleiðum, þar á meðal fram með Vatnajökli norðan- og austanverðum. Sérstaklega er fjallað um Grímsvötn fyrr og síðar, en þau eru að líkindum nafngjafi Vatnajökuls. Greint er frá könnunarferðum um hálendið og vaxandi áhuga lærðra og leikra á óbyggðunum. Það voru útlendingar sem höfðu frumkvæði að ferðum um Vatnajökul á tímabilinu 1875–1956. Ungir Hornfirðingar létu þó til sín taka árið 1926 og frá því um miðja 20. öld hafa Íslendingar haft forystu um jöklaferðir og rannsóknir. INNGANGUR Hér eru raktar ritaðar heimildir og munnmæli um ferðir á hestum yfir Vatnajökul allt frá 10. öld fram yfir 1600. Helsta tilefni þeirra voru fiskveiðar Norðlendinga og Austfirðinga frá ver- stöðvum við ströndina sunnan jökuls og ferðir til baka með fiskafurðir. Vitað er að Vatnajökull var langtum minni á fimm fyrstu öldum byggðar en síðar varð vegna hlýrra loftslags. Stór svæði sem síðar þöktust skriðjöklum voru þá jökullaus og sumpart gróin. Þá var hálendið norðan jökulsins líka mun betur gróið, meðal annars vegna minni sauðfjárbeitar. Gerð er grein fyrir helstu núverandi gróðurvinjum næst jöklinum að norðanverðu. Skriðjöklar fóru fyrst að ganga fram að ráði um og eftir 1300. Með vaxandi jökulfargi tók landið að síga og við það spilltust lendingar við ströndina eins og glöggar heimildir eru um, meðal annars frá Hálsahöfn í landi Borg- arhafnar í Suðursveit. Þar er að finna rústir verbúða sem sagðar eru hafa Náttúrufræðingurinn 91 (1–2) bls. 25–40, 2021
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.