Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 34
Náttúrufræðingurinn
34
Ritrýnd grein / Peer reviewed
og nágrenni. Við skoðun á þessu yfirliti
kemur vel í ljós frumkvæði erlendra
manna að mörgum hálendisferðum hér-
lendis framan af þessu tímabili, ekki síst
á Vatnajökul.
Segja má að undir lok 18. aldar hafi
erlendir landmælingamenn riðið á vaðið
í ferðum um ótroðnar slóðir hérlendis.
Ber þar að nefna Norðmanninn Hans
Frisak (1773–1834) sem hér starfaði í
tólf ár samfellt, 1803–1814, að strand-
mælingum, þar á meðal við sunnan-
verðan Vatnajökul. Hann gekk ásamt
fylgdarmanni á Hnapp vestari (1851 m) í
Öræfajökli 19. júlí 1813. Frisak hélt dag-
bók um ferðir sínar.35 Framhald á því
starfi var síðan kortlagning Björns Gunn-
laugssonar fyrir miðja 19. öld uns við
tók um aldamótin 1900 vinna á vegum
danska herforingjaráðsins og Geodætisk
Institut (16. mynd). Henni lauk farsæl-
lega árið 1943 með heildarkortlagningu
alls landsins. Því verðmæta framlagi
verða ekki gerð hér frekari skil en á
hinn bóginn stiklað á ferðum útlendra
fjallgöngumanna og jarðfræðinga inn á
Vatnajökul frá árinu 1875 að telja fram
um miðja 20. öld og rannsóknum þeirra
á jaðarsvæðum hans, að Öræfajökli með-
töldum (17. mynd).
Upphafið markast af alkunnri ferð
Englendingsins Williams Lords Watts
(1851–1920) norður yfir Vatnajökul í
fylgd vaskra Íslendinga undir forystu
Páls jökuls Pálssonar árið 1875 og Páls-
fjall er nefnt eftir.36 Í formála að riti
sínu segist Watts tala um sína fimm
íslensku félaga eins og sjálfan sig. –
„Því bið ég alla að gæta þess, að hvernig
svo sem þeir meta för vora, ber mér ekki
meiri orðstír en þeim, hinum hraustu
drengjum, sem fylgdu mér og reyndu
með mér háska og mannraunir.“ Það
sama á eflaust við um flesta fylgdar-
menn útlendinga í slíkum ferðum.
Hinn 17. ágúst 1891 náði breskur
ferðalangur, Frederick Howell (1857–
1901), að komast upp á Hvannadals-
hnjúk, fyrstur manna svo vitað sé. Fyrr
í sömu ferð klifraði Howell upp á vest-
ari Hnapp og sá þaðan að Hvannadals-
hnjúkur myndi vera hærri.37 Howell
var flinkur teiknari og ljósmyndari og
eftir hann kom út ritið Icelandic pict-
ures drawn with pen and pencil.38 Hann
drukknaði í Héraðsvötnum 1901 og
er jarðsettur að Miklabæ. Þeim fjölg-
14. mynd. Papafjörður, Brunnhorn og
Kamphorn sunnan Lóns. Til hægri skarðið
Kex, leið yfir í Hornsvík þar sem var mikið
útræði. – Papafjörður with picturesque peaks
south of Lón. The pass Kex to the right leads
to Hornsvík, an old fishing place. Ljósmynd/
Photo: Hjörleifur Guttormsson, 29. ágúst
1989.
15. mynd. Skinneyjarhöfði á Mýrum með
útræði frá Höfðasandi í Skinneyjarvík. Bæir
á Mörk í Suðursveit og fjallgarðurinn vest-
an Staðardals. – Skinneyjarhöfði with small
boats rowing from Höfðasandur east of the
cape. Ljósm./Photo: Hjörleifur Guttormsson,
29. ágúst 1989.