Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 37
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
37
Ritrýnd grein / Peer reviewed
Þetta sama sumar, 1935, fóru þrír
Austurríkismenn, Rudolf Jonas, Franz
Nusser og Franz Stefan suður um vest-
anverðan Vatnajökul, frá Holuhrauni
við jaðar Dyngjujökuls að Grímsvötnum
og þaðan að Kerlingum og Pálsfjalli
og suður Síðujökul austan Háganga.
Voru góðar ljósmyndir hluti af upp-
skeru þeirra.53
Um austasta hluta Vatnajökuls ferð-
uðust 1935 tveir fyrrnefndra Þjóðverja
ásamt með Guðmundi Einarssyni frá
Miðdal. Voru það Rudolf Leutelt og Karl
Schmid og fylgdu heimamenn frá Hof-
felli þeim inn Hoffellsdal og Vesturdal að
Goðaborg. Þaðan fóru þremenningarnir
um Goðahnjúka, gengu á Grendil, fóru
síðan suðvestur um Breiðubungu og til
baka niður með Hoffellsjökli að austan,
þar sem Guðmundur lýsir vel uppistöðu-
lónum.54 Ásamt alkunnri listiðkun sinni
var Guðmundur í fremstu röð íslenskra
fjallgöngumanna, stórhuga og hvetjandi
og stofnaði meðal annars félagsskapinn
Fjallamenn 1939.
Á árunum 1936–1938 stundaði sænsk-
íslenskur hópur rannsóknir á Vatnajökli
undir forystu landfræðingsins Hans
Ahlmanns og veðurfræðingsins Jóns
Eyþórssonar, frumkvöðuls að stofnun
Jöklarannsóknafélags Íslands árið 1950.
Leiðangurinn hófst með för upp Hof-
fellsjökul með sleðahunda sem drátt-
ardýr og á eftir fylgdi sögulegur ótíðar-
kafli í Djöflaskarði. Með í för var meðal
annars Sigurður Þórarinsson, þá ungur
jarðfræðinemi við Stokkhólmsháskóla.55
Í mars 1951 fóru leiðangurs-menn
í Fransk-íslenska Vatnajökulsleið-
angrinum svonefnda upp Breiða-
merkurjökul til að rannsaka dýpt Vatna-
jökuls með jarðsveiflumælingum. Jón
Eyþórsson veðurfræðingur og Frakkinn
Alain Joset jarðeðlisfræðingur stjórn-
uðu leiðangrinum sem fór vítt um jökul-
inn á tveimur snjóbílum í mánaðartíma.
Var hér um sögulega nýung að ræða og
markaði tímamót.56
Loks er að geta breskra stúdenta frá
Nottingham undir forystu Jacks D. Ives,
síðar heimsþekkts fjallasérfræðings.
Hópurinn stundaði jöklarannsóknir í
Öræfum á árunum 1952–1954. Dvöldu
þátttakendur meðal annars í jökla-
búðum við Miðfellstind. Tveir úr
hópnum fórust síðsumars 1953. Búnaður
þeirra fannst á Skaftafellsjökli 2006.2,57
Við staðnæmumst hér á sjötta áratug
liðinnar aldar. Eins og sjá má af þessu
stutta yfirliti bættust forvitnir og fjöl-
menntaðir útlendingar við fámennan
hóp Íslendinga sem á 19. öld létu sig
varða hálendið og jökla landsins. Smám
saman fjölgaði í síðarnefnda hópnum og
á seinni hluta 20. aldar er hægt að tala
um vakningu þegar hálendi og jöklar
landsins eru annars vegar. Verkefnið er
að vernda þessa gersemi, einnig fyrir
áníðslu af völdum okkar sjálfra.
FYRSTA ALÍSLENSKA
JÖKLAFERÐIN Í SEINNI TÍÐ
Eðlilega voru það Skaftfellingar sem
öðrum fremur varðveittu minni um
kynni forfeðranna af Vatnajökli og
gerðu sjálfir tilraunir til að rifja þau upp
á 19. öld, auk þess að gerast fylgdarmenn
aðkomumanna. Í Hornafirði höfðu
lengi lifað sagnir um að fjallvegur hafi
fyrr á öldum legið frá Hoffelli norður
yfir jökul og verið notaður fram á 17.
öld. Leið þessi hafi aðallega verið farin
til Fljótsdals og verið talin rösk dagleið
bæja milli. Þá á sauðfé að hafa gengið
saman milli Möðrudals og Hoffells
og menn þekktu dæmi þess að kindur
hefðu runnið suður yfir jökulinn.
Um miðjan júlí 1926 fóru þrír ungir
bændasynir úr Hornafirði í óvana-
lega ferð norðvestur yfir Vatnajökul
(20. og 21. mynd).34 Þetta voru Helgi
Guðmundsson í Hoffelli, Sigurbergur
Árnason í Svínafelli og Unnar Bene-
diktson í Einholti. Þeir lögðu upp frá
Svínafelli í Nesjum inn eftir Hálsaheiði
á jökul, stigu þar á skíðin, með léttan
búnað sinn á sleða, og héldu norðvestur
um hájökulinn. Til öryggis höfðu þeir
fengið að láni vasakompás, ferðaprímus,
landabréf og vöðlur, einnig mannbrodda
og snjógleraugu, en sólarvörn gleymd-
ist. Sváfu þeir í þrjár nætur í engja-
tjaldi og notuðu göngustafi sína sem
tjaldsúlur. Voru þeir saman í hvílupoka
úr seglstriga klæddum loðskinni. Þeir
náðu niður af Dyngjujökli vestur undir
Kistufelli eftir þriggja daga göngu yfir
80 km á jökli í misjöfnu veðri og færð.
Sleðann, skíðin og þyngsta búnaðinn
skildu þeir eftir nærri jökulrönd og vitj-
uðu þessa þar í bakaleið. Frá jökli héldu
þeir yfir Ódáðahraun að Svartárkoti í
Bárðardal en gengu síðan sömu leið til
baka og varð ekki misdægurt þrátt fyrir
rysjótt veður, þoku og rigningu. Ferðin
21. mynd. Hornfirðingarnir sem ungir fóru
norðvestur yfir Vatnajökul 1926: Helgi Guð-
mundsson (1904–1981) í Hoffelli, Sigurbergur
Árnason (1899–1983) í Svínafelli og Unnar
Benediktson (1894–1973) í Einholti. – The 3
young men from Hornafjöður crossing Vatna-
jökull in 1926. – Ljósm./Photos: Jökull 1984.
20. mynd. Leið þriggja ungra Hornfirðinga
yfir Vatnajökul 1926. – The route of 3 young
men from Hornafjörður across Vatnajökull
in 1926. – Uppdráttur/Map: Guðmundur Ó.
Ingvarsson.