Þjóðmál - 01.03.2018, Qupperneq 7
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 5
Nú er að vísu margbúið að taka þessa
umræðu, skipa vinnuhópa, gefa út skýrslur
og þannig mætti áfram telja. Við vitum samt
fyrir fram að ef niðurstaðan verður ekki eins
og forsvarsmenn Viðreisnar vill að hún sé fer
allt í háaloft. Þannig varð flokkurinn til.
***
Annar innantómur frasi er að Viðreisn sé
frjálslyndur flokkur. Því fer fjarri. Það eina sem
flokkurinn skildi eftir sig í síðustu ríkisstjórn
var jafnlaunavottun, sem er auðvitað ekkert
annað en þvingunaraðgerð af hálfu ríkisins og
kostar fyrirtækin í landinu talsvert fjármagn.
Frjálslyndur flokkur hefði það á stefnuskrá
sinni að lækka skatta og minnka umsvif
ríkisins. Í ræðu sinni minntist Þorgerður
Katrín ekki einu orði á lækkun skatta en talaði
aftur á móti fyrir því að hækka svokallaða
græna skatta, skatta á ferðaþjónustu og að
sjálfsögðu um hækkun veiðigjalda.
***
Til að reyna að höfða til lægstu hvata sam-
flokksmanna sinna sagði Þorgerður Katrín að
hluti af þeim verðmætum sem skapast hefðu
í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum lægi nú í
fjárfestingum í Korputorgi (eins og það sé
slæmt). Þess í stað færi betur á að innheimta
hærri veiðigjöld til að nýta í samfélagsupp-
byggingu í Vestmannaeyjum. Hinn frjálslyndi
flokkur vill með öðrum orðum að ríkið taki
meira til sín til að dreifa verðmæt unum aftur
til almennings. Af því að það gengur svo vel
þar sem það hefur verið reynt?
***
Sjálfsagt hefur enginn tölu á því hversu
miklum verðmætum sjávarútvegsfyrirtæki,
hvort sem er í Vestmannaeyjum eða annars
staðar, hafa skilað til samfélagsins. Þó mætti
ætla að sjávarútvegurinn í Vestmannaeyjum
hafi skilað meiri verðmætum til samfélagsins
þar en ríkið myndi nokkurn tímann gera í
formi úthlutunar sem alltaf yrði á forræði
stjórnmálamanna hverju sinni.
***
Viðreisn er smáflokkur, minnsti flokkurinn
á þingi, með tæplega 7% fylgi og fjóra
þingmenn. Þorgerður Katrín er sjálf sjöundi
þingmaðurinn í sínu kjördæmi. Og af hverju
er þá verið að verja dýrmætu plássi á síðum
Þjóðmála í að svara smáflokkum?
Jú, það er af því að árásir Þorgerðar Katrínar
og Viðreisnar munu halda áfram. Það eru
bara örvæntingarfullir stjórnmálamenn sem
tala með þeim hætti sem Þorgerður Katrín
gerði og örvæntingarfullir stjórnmálamenn
reyna ítrekað að höfða til lægstu hvata
almennings. Það að tala í innan tómum
frösum, segja sjálfan sig berjast fyrir
almanna hagsmunum gegn sérhagsmunum í
annarri hvorri setningu og ítreka í sífellu eigið
frjálslyndi er popúlísk hegðun. Slíkri umræðu
þarf að svara.
Við eigum ekki að þurfa að vera í þeim
sporum eftir nokkur ár að þurfa að líta til
baka og hugsa, ef við hefðum bara svarað
þessum popúlísku dylgjum miklu fyrr.
Gísli Freyr Valdórsson
Frjálslyndur flokkur hefði það á stefnuskrá sinni að lækka skatta og minnka
umsvif ríkisins. Í ræðu sinni minntist Þorgerður Katrín ekki einu orði á lækkun
skatta en talaði aftur á móti fyrir því að hækka svokallaða græna skatta,
skatta á ferðaþjónustu og að sjálfsögðu um hækkun veiðigjalda.