Þjóðmál - 01.03.2018, Blaðsíða 39
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 37
Viðtal
Trump er svartur svanur
Tom G. Palmer, fræðimaður hjá Cato-hugveitunni í Bandaríkjunum og varaformaður stjórnar
Atlas Network-stofnunarinnar, hefur í rúm 40 talað fyrir frjálshyggju og klassísku frjálslyndi
víða um heim. Hann hefur skrifað bækur um efnið, kennt í háskólum og ferðast víða um heim
til að tala fyrir frjálsum viðskiptum, friði og aukinni velmegun með frjálslyndi að leiðarljósi.
Gísli Freyr Valdórsson, ritstjóri Þjóðmála, settist niður með Palmer þegar hann var staddur
hér á landi nýlega. Í samtali við Þjóðmál fer Palmer yfir stöðu mála nú þegar Donald Trump
hefur verið forseti Bandaríkjanna í rúmt ár, um það hvernig falsfréttir hafa nýst honum og
stuðningsmönnum hans, um stöðu ríkisvaldsins og fleira sem tengist bandarískum stjórnmálum
í dag. Þá fjallar Palmer stuttlega um stöðuna í Venesúela, þar sem hann þekkir vel til.
Palmer kom við á Íslandi á leið sinni til Danmerkur, Svíþjóðar og Litháen. Tilgangur ferðalagsins var að funda með og
halda fyrirlestra fyrir samtök frjálslyndra stúdenta sem nú starfa víðs vegar um Evrópu, m.a. á Íslandi. Palmer ferðast
töluvert um heiminn í þeim tilgangi að vinna með ungu fólki sem hefur hug á því að láta til sín taka í baráttunni fyrir auknu
frelsi. Í heimsókn sinni hér kom hann fram á fundi Frjálshyggjufélagsins. Myndir: HAG