Þjóðmál - 01.03.2018, Page 11

Þjóðmál - 01.03.2018, Page 11
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 9 Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður alþingis, var boðaður á fund þingnefndarinnar og þótt hann segðist ekki rannsaka sömu atriði og væru til athugunar hjá nefndinni ákvað nefndin, að tillögu Helgu Völu, á fundi sínum 6. febrúar að gera hlé á rannsókn sinni „á embættisfærslum Sigríðar Andersen dóms- málaráðherra í tengslum við skipun dómara“ í Landsrétt á meðan málið væri til skoðunar hjá umboðsmanni alþingis. Umboðsmaður tilkynnti nefndinni um fjórum vikum síðar að hann sæi ekki ástæðu til að rannsaka neitt varðandi þátt dómsmálaráðherra. Hann hefði fengið fullnægjandi skýringar frá ráðherranum varðandi ákvörðun hennar við skipun landsréttardómaranna. Landsfundi Samfylkingarinnar lauk sunnudaginn 4. mars. Þar fluttu Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi flokksformaður, og Logi Einarsson, núverandi formaður, ræður sem snerust um að leggja bæri höfuðáherslu á að „bjarga“ vinstri grænum úr stjórnarsamstarfinu við höfuðóvinina sjálfstæðismenn og framsóknarmenn. Björgunarstarf Loga hófst strax að kvöldi mánudags 5. mars þegar hann lagði fram tillögu um vantraust á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra. Meðflutningsmaður var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokks- formaður Pírata. Tilgangur tillögunnar var að sjálfsögðu ekki að bjarga neinum heldur að valda VG sem mestum vandræðum. Jóhanna og co. í Samfylkingunni hafa aldrei fyrirgefið Steingrími J. Sigfússyni og félögum hans að stofna VG þegar sameina átti alla vinstrisinna í Samfylkingunni árið 2000. Logi vissi að Katrín Jakobsdóttir stæði vörð um ráðherra í stjórn sinni og þar með stjórnar samstarfið. Atkvæði um tillöguna féllu þannig þriðjudaginn 6. mars að 33 þing- menn lýstu trausti á dómsmálaráðherra en 29 vantrausti, einn þingmaður Mið flokksins greiddi ekki atkvæði.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.