Þjóðmál - 01.03.2018, Page 13
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 11
Logi og Helga Vala hafa líklega farið í smiðju
til Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns.
Hann krafðist þess fyrir landsrétti að einn
dómara sem ekki var á lista dómnefndar
en á lista ráðherrans lýsti sig vanhæfan til
að dæma í máli sem sneri að umbjóðanda
Vilhjálms H. Landsréttur úrskurðaði að
dómarinn væri ekki vanhæfur.
Hæstiréttur vísaði fimmtudaginn 8. mars
vísaði frá kæru Vilhjálms H. og sagði í
dóminum:
„... snúa röksemdir varnaraðila [Vilhjálms
H.] í hvívetna að því að ekki hafi verið farið
að lögum við skipun þessa dómara. Jafnvel
þótt á það yrði fallist gæti það .... aldrei
orðið til þess að krafa varnaraðila yrði tekin
til greina. Hefur hann því í málatilbúnaði
sínum klætt það álitaefni, sem hann í raun
leitar úrlausnar um, ranglega í búning
kröfu um að dómarinn víki sæti í málinu.
Úrskurður Landsréttar 22. febrúar 2018
snýr þannig ekki að réttu lagi að ágreiningi
um það efni og getur hann af þeim sökum
ekki átt undir kæruheimild til Hæstaréttar
samkvæmt b. lið 1. mgr. 211. gr. laga nr.
88/2008. Máli þessu verður því án kröfu
vísað frá Hæstarétti.“
Málatilbúnaður Vilhjálms H. Vilhjálmsson er
í raun blekking að mati hæstaréttar. Kemur
það í sjálfu sér ekki á óvart þegar hann á í
hlut. Að lögmaðurinn sé síðasta haldreipi
Samfylkingar og Pírata í þessu máli segir allt
sem segja þarf um málstaðinn. Er nú mál að
linni.
III.
Sumir telja að „mál málanna“ á því alþingi
sem nú situr sé flutt af Silju Dögg Gunnars-
dóttur, þingmanni Framsóknarflokksins
í Suðurkjördæmi. Frumvarpið felur í sér
breytingu á almennum hegningarlögum um
að við því getið legið allt að sex ára fangelsi
að umskera drengi. Með þessu er vegið að
siðvenju gyðinga og múslima og hún „glæpa-
vædd“ eins og það hefur verið orðað.
Lögmennirnir Brynjar Níelsson alþingismaður
og Jón Steinar Gunnlaugsson, fv. hæstaréttar-
dómari, hafa bent á að frumvarpið sé flutt af
vanþekkingu, í íslenskum hegningarlögum
séu þegar ákvæði sem banni mönnum að
valda börnum líkamsmeiðslum.
Í frumvarpi Silju Daggar segir: „Hver sem með
líkamsárás veldur tjóni á líkama eða heilsu
barns eða konu með því að fjarlægja kynfæri
að hluta eða öllu leyti skal sæta fangelsi allt
að 6 árum.“ Flutningsmenn nýja frumvarpsins
grafa með því undan almenna ákvæðinu um
bann við líkamsmeiðslum á börnum. Þeir vilja
greinilega sérgreina refsiverða verknaði í stað
þess að treysta almenna ákvæðið í sessi.
Nokkur hundruð íslenskir læknar hafa ritað
undir yfirlýsingu þar sem segir meðal annars:
„Læknisfræðilegar ábendingar fyrir
umskurði eru til, en þær eru fáar. Við teljum
að án slíkra ábendinga gangi umskurður
á ungbörnum gegn Genfaryfirlýsingu
lækna og samræmist því síður grundvallar-
viðmiðum Helsinki-yfirlýsingar lækna um
réttinn til sjálfsákvörðunar og upplýsts
samþykkis.“
Frá því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur var mynduð 1. desember 2017
hefur verið gerð hörð hríð að Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra. Stjórnar-
andstæðingar litu strax á hana sem skotmark til að fella ríkisstjórnina.