Þjóðmál - 01.03.2018, Side 35
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 33
Það er jafnvel búið að telja borgarbúum trú
um að hæsta útsvar skili ekki betri þjónustu
þar sem stærðin vinni á móti hagkvæmni. Í
reynd virðist sem lögmál hagfræðinnar vinni
á öfugan hátt í Reykjavík en víða annars
staðar í hinum stóra heimi. Aukin notkun
rafmagns leiði til hækkana, fleiri bílar þurfi
þrengri götur og sameina þurfi skóla þó að
börnum fjölgi. Kannski er staðan í Reykjavík
eitt skýrasta dæmi um hversu áhrifarík
umræða vinstri afla er. Eða kannski er það
svo að Reykjavík þrífst í skjóli vel rekinna
nágranna sveitarfélaga og þangað flytur
ungt fólk og tekjuhærri fjölskyldur. Er það
jöfnuðurinn sem vinstrimenn vilja?
Samband við kjósendur
þarf að styrkja
Eitt sterkasta vopn Sjálfstæðisflokksins er
hugmyndfræði flokksins, árangur hans og
kjörnir fulltrúar hans sem tala fyrir frelsis-
stefnunni. Flokkurinn býr við eitt besta skipu-
lag stjórnmálaflokka á Íslandi, hefur skýrar
reglur og marga flokksmenn. Starf og stærð
landsfundarins undirstrikar styrk sjálfstæðis-
manna. Niðurstaða kosninga um Icesave
gaf einnig skýrt til kynna að landsmenn vilja
sjálfstæði og kjósa að fara með sín mál sjálfir.
Frelsisstefna Sjálfstæðisflokksins á því fullt
erindi við landsmenn.
Tæknivæðing hefur fært nýjar áskoranir í
samskiptum. Í fyrstu varð hagræðing til þess
að tækni leysti mannfólkið af og samskipti
urðu ópersónulegri. Á árunum 2006 til
2008, þegar samfélagsmiðlar tókust á flug,
breyttust þau á nýjan leik. Í grein sem birtist í
Harvard Business Review fyrir tæpum þremur
árum var fjallað um hvernig þróun heildar-
verðmæta fyrirtækja sýnir svo ekki verður um
villst að samband við viðskiptavini skiptir nú
meira máli en fyrir tíu árum og trompar nú
virði ímynd fyrirtækja. Fyrirtæki eru að setja
aukinn kraft og mannauð í að styrkja sam-
band við viðskiptavini. Þetta má heimfæra
upp á stjórnmálin.
Það eru ekki ný vísindi að það sé dýrara
að afla nýrra viðskipta en að efla þau sem
fyrir eru. Það sama á við um kjósendur.
Við þurfum að efla tengsl og samskipti við
flokksmenn og kjósendur okkar. Við þurfum
að miðla árangri, vinnu og stefnu flokksins
en ábyrgðin er líka hjá kjörnum fulltrúum
og flokksmönnum öllum. Við höfum eignað
okkur efnahagsmálin og árangur á því sviði
en við eigum líka heilmikið inni í öðrum
málaflokkum sem stundum má segja að aðrir
hafi eignað sér óverðskuldað heiðurinn af. Við
þurfum að taka umræðuna í okkar hendur og
efla flokksmenn til þátttöku. Dreifileiðirnar
eru til staðar en efnisveituna skortir.
Stundum er talað um að hægrisinnað fólk
forðist að stíga inn í þann forarpytt sem
umræðan er á stundum. Við getum hins vegar
verið stolt af verkum Sjálfstæðisflokksins og
eigum að eigna okkur þau með afgerandi
hætti. Breytum þessu og blásum til sóknar!
Það er mikilvægt að umræður á opinberum
vettvangi verði ekki eftirlátnar vinstri-
mönnum og hægrimenn sitji hljóðir hjá.
Eignum okkur umræðuna og stöðvum
dylgjur og rætnar árásir. Höldum teinrétt til
sigurs í sveitarstjórnarkosningum, stöðvum
óstjórn Reykjavíkurborgar og tengjum starf
okkar við árangur í þágu landsmanna. Allir
vilja lægri skatta, frelsi til athafna og sjálf-
stæði til ákvörðunartöku. Það eru fyrstu
skrefin til að brjóta þrjátíu prósenta fylgis-
múrinn á landsvísu.
Höfundur er formaður
Landssambands sjálfstæðiskvenna.
Tæplega helmingur kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins er konur,
þar af eru 13 konur oddvitar í sveitarstjórnum og 19 karlmenn.