Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 37

Þjóðmál - 01.03.2018, Síða 37
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 35 Í vetrarhefti Þjóðmála í desember sl. skrifaði ég um vandamál sem hugsanlega kæmu upp í framtíðinni vegna íslenskrar löggjafar um heimagistingu og þær takmarkanir sem ríkisstjórn Íslands leggur á eignarétt. Þetta er ein afleiðingin af aukinni ferðamennsku og verndarsjónarmiðum löggjafans. Önnur neikvæð hliðaráhrif eru, að minnsta kosti að mati sumra, breytingarnar á miðborg Reykjavíkur. Með fleiri ferðamönnum verðum við að gera ráð fyrir breyttu þjónustustigi, hækkandi verði á veitingahúsum og aukinni ásókn í að byggja hótel. Að öllu þessu samanlögðu mun borgarumhverfið breytast, en ekki endilega til hins verra þótt skiptar skoðanir séu á því. Mikilvægt er að hafa í huga að það er aukin eftirspurn sem kallar á þessar breytingar og að aukinn ferðamanna- straumur skapar atvinnutækifæri og hefur jákvæð áhrif á efnahag landsins. Neikvæðu áhrifin af auknum ferðamanna- straumi eru hins vegar mikil. Náttúran sem auðlind eða neysluvara hefur einkenni almenningsgæða þrátt fyrir að ekki sé hægt að líta á hana sem hreinræktuð almennings- gæði. Að vissu marki hefur aðgangur minn að íslenskri náttúru ekki áhrif á aðgang annarra. Þetta á hins vegar ekki við þegar fjöldi ferðamanna eykst að því marki að náttúran fær ekki nægan tíma til að jafna sig eða þegar tilteknir staðir eru svo yfirfullir af fólki að upplifunin verður ekki sem skyldi. Þetta er eitt af því sem ég hef veitt athygli á milli fyrstu komu minnar til Íslands og þeirrar síðustu. Í fyrstu heimsókn minni voru staðirnir sem ég fór á tiltölulega ósnortnir af mannavöldum. En sumarið 2017 fór ég á staði þar sem hluti landslagsins hafði verið girtur af til að halda ferðamönnum frá ákveðnum svæðum þar sem náttúran hafði verið troðin niður, þótt sumir þeirra létu sér fátt um finnast. Annað sem einkennir bæði náttúruupplifun og almenningsgæði er að erfitt er að útiloka tiltekna einstaklinga frá því að njóta þeirra, en þó er það ekki ómögulegt. Hnignun íslenskrar náttúru, sem er greinileg næstum hvar sem litið er, stafar af því að sífellt fleiri ferðamenn þurfa ekki að greiða raunverulegan kostnað af náttúruskoðun sinni. Alltaf þegar markaðsverð tekur til alls kostnaðar reiknum við með ofneyslu. Eins og ég nefndi að ofan er erfitt að útiloka einhverja tiltekna einstaklinga frá því að njóta náttúrunnar sem neysluvöru, einkum þegar þeir koma bara á staðinn, en þó eru til leiðir til þess. Ræðum nokkrar af þeim leiðum sem hægt er að fara til að láta greiðslu standa undir sjálfbærari nýtingu á náttúrunni. Í fyrsta lagi geta stjórnvöld lagt skatt á ferðamenn. Með því að leggja viðbótarskatt á til dæmis gesti sem koma til landsins eða hótelgesti hækkar hlutfallslegt verð á ferðum til Íslands samanborið við ferðir á aðra staði sem ferðamenn eiga völ á. Afleiðingin verður sú að færri ferðamenn koma og þar af leiðandi minnkar álagið á náttúruna. Auk þess getur ríkisstjórnin notað skattinn til að hrinda af stað náttúruverndarverkefnum. Neikvæðar hliðar eru á þessari lausn og ein af þeim augljósu er að engin afmörkuð og bein tengsl eru á milli ferða til Íslands og náttúruskoðunar þótt hún sé markmið margra ferðamanna. Bjögunaráhrifin eru þau að ýtt er undir að ferðamenn sem hafa lítinn eða engan áhuga á náttúrunni heldur aðeins borgarlífinu í Reykjavík velji frekar aðra áfanga staði. Íslenska náttúru [þarf ] að vernda á einhvern hátt. Langskilvirkasta leiðin til þess er að gefa greiðslufyrirkomulagið frjálst og leyfa landeigendum að taka það gjald sem þeir telja að dugi til að draga úr álaginu á náttúruna og jafnframt afla nægra tekna til náttúruverndar og nauðsynlegra fjárfestinga.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.