Þjóðmál - 01.03.2018, Side 38

Þjóðmál - 01.03.2018, Side 38
36 ÞJÓÐMÁL Vor 2018 Önnur leið er náttúrupassi. Gestir sem fara í þjóðgarða í Bandaríkjunum hafa lengi þurft að kaupa náttúrupassa til að komast inn í þá. Samanborin við skattlagningu ferðamanna sem koma til landsins er þessi leið beintengd náttúruskoðun og væri þess vegna skilvirkari. Og á sama hátt og skattur leiðir þessi leið til aukinna tekna ríkissjóðs, sem þýðir að nægilegu fjármagni þyrfti að úthluta til land- eigenda og einnig til verndaraðgerða á landi í eigu ríkisins. Ekki er líklegt að stjórnmála- menn geti aflað nauðsynlegra upplýsinga til að útdeila tekjunum þangað sem þörfin er mest eða að þeir séu fúsir að gera það þótt þeir hefðu nauðsynlegar upplýsingar. Þvert á móti er líklegt að þeir noti þær til að tryggja eigið endurkjör og áframhaldandi völd. Þriðja mögulega leiðin, sem tryggir í senn að þeir sem vilja njóta náttúrunnar greiði réttlátt gjald og að fénu sé varið til náttúru- verndar þar sem þörfin er mest, er að úthluta nýtingarrétti á náttúrunni. Þetta er auðvelt að gera við land sem er í einkaeigu, með því að leyfa landeigendum að innheimta gjald af gestum, til dæmis með bílastæðagjaldi eða aðgangseyri. Ef landeigendur geta sjálfir krafist greiðslu er líklegra að þeir geri það vegna þess að þeir eru þá að gæta eigin hagsmuna með því að nota tekjurnar til að viðhalda landinu og geta þannig laðað fleiri ferðamenn til sín í framtíðinni. Hvaða leið sem verður valin er það sann- færing mín að íslenska náttúru þurfi að vernda á einhvern hátt. Langskilvirkasta leiðin til þess er að gefa greiðslufyrirkomu- lagið frjálst og leyfa landeigendum að taka það gjald sem þeir telja að dugi til að draga úr álaginu á náttúruna og jafnframt afla nægra tekna til náttúruverndar og nauðsynlegra fjárfestinga. Ef ekkert er að gert er hugsanlegt að ferðamönnum til Íslands fækki, þar sem offjölgun veldur því að náttúrupplifunin verður æ minna aðlaðandi og eftirsóknarverð. Höfundur er lektor í fasteignafræðum við Háskólann í Lundi. Þriðja mögulega leiðin, sem tryggir í senn að þeir sem vilja njóta náttúrunnar greiði réttlátt gjald og að fénu sé varið til náttúruverndar þar sem þörfin er mest, er að úthluta nýtingarrétti á náttúrunni. Þetta er auðvelt að gera við land sem er í einkaeigu, með því að leyfa landeigendum að innheimta gjald af gestum, til dæmis með bílastæðagjaldi eða aðgangseyri.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.