Þjóðmál - 01.03.2018, Page 42
40 ÞJÓÐMÁL Vor 2018
Palmer rifjar í framhaldinu upp kvöld-
verðarboð sem hann sótti nýlega, þar
sem saman var kominn hópur hægri-
manna. Sumir þeirra voru stuðnings-
menn Trumps en aðrir ekki. Palmer
rifjar upp orð eins þeirra, sem sagði
að Trump væri líklega ógeð felldasti
stjórnmálamaður sem Bandaríkja-
menn hefðu nokkurn tímann fengið
að kynnast, en sá hefði þó bætt því
við að hann væri ekki Hillary. Það sé
algengt viðhorf meðal hægrimanna
vestanhafs.
„Ég sagði við einn stuðningsmanna
Trumps að ég hefði af því áhyggjur að
Trump myndi ekki fara eftir stjórnar-
skránni og þekkti ekki þau mörk sem
hún setti honum,“ segir Palmer.
„Hann brást við með orðum sem ég
ætla ekki að endurtaka hér, en bætti
síðan við að Trump væri í raun sama
hvað stæði í stjórnarskránni; hann
hefði ekki lesið hana, þekkti ekki
innihald hennar en væri þess í stað
maður sem horfði á stóru myndina.
Það gerir það þó að verkum að hann
skilur ekki og þekkir ekki þau takmörk
sem stjórnarskráin setur honum og
það er full ástæða til að hafa áhyggjur
af því. Honum er í raun sama. Það
kemur honum sífellt á óvart þegar
ráðgjafar hans, þ.e. þeir sem þora,
segja honum að hann geti ekki gert
eitthvað.“
Palmer lauk doktorsprófi í
stjórnmálafræði frá Oxford-
háskóla en þá hafði hann áður
lokið mastersprófi í heimspeki og
BA-prófi í hugvísindum.