Þjóðmál - 01.03.2018, Qupperneq 75

Þjóðmál - 01.03.2018, Qupperneq 75
ÞJÓÐMÁL Vor 2018 73 Honum þótti það þó ekki vandamál vegna þess að hann sagði „ekki alla Hamasmenn vígamenn“. Samvinnan heldur því áfram, sem er alls ekki saklaust. UNRWA hefur ráðið hryðjuverkamenn Nefna má Awad al-Qiq til sögunnar til að sýna að hér er ekki um saklaust samstarf að ræða. Hann var ráðinn sem efna- og eðlisfræðikennari við UNRWA-skóla, eftir margra ára starf var hann hækkaður í tign og gerður að stjórnanda Rafah-drengjaskólans, ekki léttvæg staða. Auk kennslustarfanna var al-Qig í fremstu röð sprengjugerðar- manna í þágu heilags stríðs íslamista, hann var drepinn þegar farin var eftirlitsferð um sprengjugerðarstöð skammt frá skólanum. Með öðrum orðum vann hann nálægt skólanum við að búa til sprengjur til árása á almenna borgara í Ísrael á sama tíma og hann innrætti nemendum sínum að gera það sama. Hann þurfti engar greiðslur frá íslamísku stríðsmönnunum af því að hann var á launum hjá SÞ í gegnum UNRWA. Ísraelar eiga þannig ekki aðeins í höggi við Hamas. Þeir glíma einnig við falinn og voldugan fjandmann í SÞ sem annaðhvort á allsherjarþinginu eða í gegnum undirstofnanir sínar svarar jafnan fullyrðingum Ísraela um brot á öllum samþykktum með ásökunum sem eiga mjög lítið skylt við raunveruleikann. Þetta á ekki síst við um öryggisráð SÞ og mannréttindaráð SÞ. Öryggisráðið hefur samþykkt 131 ályktun, mannréttindaráðið 45 ádrepur. Hve oft hafa SÞ til dæmis fordæmt valdhafana í Súdan, Sádi-Arabíu, Líbíu og Alsír? Í þessum löndum hafa verið – og eru enn – stunduð mikil fjöldamorð á Aröbum. En uss,uss – ekki tala um það. Hjálparstofnanir gagnrýnar á Ísrael Flestar hjálparstofnanir í Danmörku eru gagn- rýnar á Ísrael og neikvæðust er Hjálparstofnun kirkjunnar. Stofnunin hefur oft sent frá sér boðskap sem er tvímælalaust pólitískur. Þar er ekki aðeins lýst efasemdum um tilverurétt Ísraelsríkis heldur einnig um hlut Gyðinga í sögu svæðisins með yfirlýsingum eins og „fyrstu kristnu mennirnir voru Palestínumenn“ og um „fátæka Arabadrenginn Jesús“. Gagnrýnin er alltaf skökk. Þegar Hamas- liðar skjóta af ásetningi frá skólum, sjúkra- húsum og moskum í von um að með því að svara hitti Ísraelar almenna borgara setja félagasamtök kíkinn á blinda augað svo að sjaldan er minnst á þessi mannréttindabrot. Þá láta helstu fjölmiðlar einnig hjá líða að geta um raunverulega undirrót átakanna: Ósk Arabanna um að ná fram hefndum á þjóð sem þeir hafa í meira en 1.000 ár talið: 1. Óvini Guðs (trúarlega ástæðan). 2. Fyrirlitlegt undirmálsfólk (þjóðlega ástæðan). „Það nagar sálir okkar að svo lítið land sem Ísrael með aðeins sjö milljónir íbúa geti staðist 350 milljónum Araba snúning. Það niðurlægir sameiginlegt egó okkar.“ – Ahmed Sheikh, ritstjóri Al Jazeera, í Die Weltwoche, tilvitnun frá Thomas Friedman í NY Times. Það er með öðrum orðum óskin um hefnd sem er raunverulegur aflvaki deilunnar og þess vegna verður hún ekki leyst nema sigur vinnist á Ísrael og landið verði upplausn að bráð. Skoðanakannanir sýna að þetta er viðhorf meirihluta Araba, án tillits til þess hvar þeir búa. Þetta snýst um arabísk/íslamska smán og heiður, þar er að finna lykilinn að greiningunni. Textinn er saminn á grunni framlags frá Geoffrey Cain, Ole Groth-Andersen, Bernard Gilland og Torben Snarup Hansen.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.