Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Qupperneq 20
18
Áburður og uppskera í kg á ha var þannig þessi tvö ár:
Uppsk.1913 Uppsk. 1911
a. Enginn 10000 600
b. 10000 kg hrossatað 11000 1500
c. 20000 - - 17000 3000
d. 30000 - - 17300 5700
e. 480 kg kalí, 470 kg superf., 1180 kg Chilesaltp. 26100 14500
Uppskeran síðara árið er mjög léleg, og vaxtaraukinn a£ hrossataðinu
er furðu lélegur, en mjög sæmilegur eftir tilbúna áburðinn.
Af þessum tilraunum má draga eftirfarandi ályktanir:
Aburðarþörfin í tilraunastöðinni d Eiðum virðist hafa verið mikil,
þegar tilraunastarfið hófst þar. Einkum var fosfórskorturinn áberandi,
en lika nokkur skortur á kalí og köfnunarefni. Búfjáráburður gefur þar
fremur lélega raun, einkum hrossatað og sauðatað. Hugsanlegt er, að þessu
valdi að einhverju leyti það, að geymsla lirossataðsins hafi verið léleg og
það því lélegur áburður, en sauðataðið hafi notazt illa vegna þurrka og
ófullnægjandi vinnslu.
t
2. Samanburður á áburðartímum fyrir búfjáráburð 1928—1941!
Tilraun þessi hefst 1928 og er haldið áfram brotalaust í 14 ár. Liðir
eru fjórir og endurtekningar sömuleiðis. Stærð reita er 20 x 5 = 100 m2,
og liggja þeir hver við annars hlið í einni röð. Milli sláttureita voru
tveggja metra varðbelti og einnig var stýft af endum reitanna, svo að
sláttureitirnir urðu 50 m2. Borinn var á búfjáráburður einvörðungu, og
var öll árin notuð kúamykja. Fyrstu fjögur árin er áburðarmagnið 22 þús.
kg á ha, en er aukið í 33 þúsund árið 1932 og í 45 þúsund 1933 og er ó-
breytt síðan þar til tilrauninni lýkur.
Liðir tilraunarinnar eða viðfangsefni eru þannig:
a. Áburðinum dreift á þíða jörð í september.
b. Áburðinum dreift á freðna jörð í október.
c. Áburðinum dreift í apríl á auða jörð.
d. Áburðinum dreift í maíbyrjun á auða jörð.
Fyrstu þrjú árin er áburðurinn unninn nokkuð niður þegar eftir dreif-
inguna og svo auðvitað aftur að vorinu, en frá 1931 er hann allur unninn
í maímánuði og þá venjulega herfaður tvisvar eða þrisvar sinnum og svo
hreinsað í byrjun júní. Ofast nær er tekið fram, að mjög lítið afrak hafi
komið af haustbreiddu reitunum, en miklu meira af þeim vorbreiddu.