Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1957, Síða 80
78
Af tilrauninni verður ekki ráðið, að mikill munur hafi verið á hafra-
tegundunum, en þar sem sömu tegundir hafa ekki verið reyndar öll árin,
eru þær ekki fyllilega sambærilegar. Einkum er fyrsta árið óeðlilegt, því að
þá er áburðarmagnið, sem notað er, svo lítið. Það er ekki heldur tekið með
í meðaltalið og hlutfallsreikninginn. Tvær tegundir hafa aðeins verið sitt
árið hvor í tilrauninni.
Samanburður á höfrum til grænfóðurs hefur einnig verið gerður í
Gróðrarstöðinni í Reykjavík og á Akureyri. Þó aðeins eitt ár á Akureyri
með nokkrar þeirra tegunda, sem voru í Eiðatilrauninni, og líka nokkrar
aðrar. Ekki mun niðurstöðum bera saman. Á Eiðum virðast Sigurhafrarnir
hafa gefið beztan árangur, og líklega hafa þeir einnig reynzt vel í Reykja-
vík, að minnsta kosti voru þeir lengi notaðir mest til grænfóðurræktar.
Nú er hætt að nota þá og hafrar teknir án undangenginnar reynslu til
þessara nota. Enginn vafi er þó á því, að hafrar eru mjög misjafnlega not-
hæfir til grænfóðurs, blaðvöxtur misjafn, þeir fara misfljótt í ax o. s. frv.
Þetta minnir á, að ennþá er aðkallandi að gera samanburð á höfrum til
grænfóðurræktar.
15. Samanburður á fóðurrófum 1932—1936.
Árið 1932 hefst samanburður á fóðurrófum, og er hann gerður í
nokkur ár. Sá galli er á tilraun þessari eða öllu heldur á bókuninni um
hana, að sumt af því, sem æskilegt væri að vita, er ekki nefnt á nafn, svo
sem áburður. Þetta skiptir þó ekki mestu máli, þar sem áburður hefur
vafalaust verið eins fyrir alla tilraunina, en engu síður er fróðlegt að
vita, hvaða áburður var notaður, búfjáráburður eða tilbúinn, hve mikið
og í hvaða hlutföllum. Lakara er það, að hvergi verður séð beinlínis, hve
stórir reitir hafa verið notaðir, en af rófnafjölda í reit og með hliðsjón af
venjulegu vaxtarrými má ætla, að reitastærð hafi verið 10 m2, og er reikn-
að með því hér. Rófnafjöldi úr reit er alltaf talinn fram. Svo sem eðlilegt
er, verður hann nokkuð misjafn, en þar sem samreitir eru 4—6 (ekki eins
margir öll árin), jafnast þetta nokkuð út, og þótt einhverju skeiki til þess
að jafnt verði, getur aukið vaxtarrými, þar sem rófurnar eru eitthvað
færri, jafnað mismuninn að verulegu leyti. í töflu XXI er færður rófna-
fjöldi á 100 m2, til þess að gefa hugmynd um þetta. Liðafjöldinn er ekki
alltaf eins, veltur á 5—7. Fimm tegundir eru öll árin, ein í þrjú ár og ein
aðeins eitt ár. Engar skýrslur eru um árið 1933 og engin skýring á því
gefin.
Sáning og upptaka fór fram sem hér segir:
Árið 1932 var sáð 6. júní, en ekki er vitað, hvenær upp var tekið.
Árið 1934 var sáð 29. maí og tekið upp 9. október.