Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 16
Það er
vonandi að
kröftug
umræða
eigi sér
stað í
aðdrag-
anda
ársþings
KSÍ.
16 Íþróttir 19. nóvember 2021 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 19. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR
Nýliðum efstu deildar karla
í handbolta hefur síðustu
ár gengið illa að hala inn
stig. Bilið milli efstu deildar
og þeirrar næstefstu virðist
vera umtalsvert. Handbolta-
þjálfarinn Guðlaugur Arnars-
son segir að leita verði leiða til
þess að minnka þetta bil.
hjorvaro@frettabladid.is
Nú þegar fyrsta þriðjungi Olís-
deildar karla í handbolta er lokið
hafa nýliðar deildarinnar, HK og
Víkingur, leikið samtals 15 leiki án
þess að hafa náð í stig.
Raunar hefur Víkingur spilað 18
leiki í röð í efstu deild án þess að
bera sigur úr býtum og síðasti sigur-
leikur liðsins á þeim vettvangi kom
í lok nóvember árið 2017.
Síðan liðunum var fjölgað úr 10
í 12 í efstu deild fyrir keppnistíma-
bilið 2017 til 2018, hefur bilið milli
liðanna sem falla aukist ár frá ári.
Það tímabil náði Fjölnir að hala
inn 10 stig og var tveimur stigum frá
fallsvæði deildarinnar. Akureyri var
þremur stigum frá öruggu sæti vorið
2019 og HK fimm stigum árið eftir.
Á síðustu leiktíð var Þór Akur-
eyri fimm stig frá því að bjarga sér
frá falli og ÍR fór í gegnum deildar-
keppnina án þess að næla sér í stig.
Línur geta skýrst um helgina
Næstkomandi sunnudag getur
Grótta farið langt með að fella Vík-
ing fari Seltirningar með sigur af
hólmi í leik liðanna í Fossvoginum.
HK mætir Stjörnunni á morgun
og bíði Kópavogsliðið ósigur í þeim
leik er fallbaráttan nánast ráðin um
miðjan nóvember.
„Það er umhugsunarefni hversu
mikill getumunur er á milli efstu og
næstefstu deildar og að liðin sem
fara upp nái ekki að styrkja sig nógu
mikið á milli ára til þess að halda sér
uppi.
Benda má hins vegar á að Grótta
var klók á leikmannamarkaðnum
fyrir síðasta tímabil, þar sem liðið
nær í unga og efnilega stráka, sem
og leikmenn sem höfðu ekki náð
að festa sig í sessi hjá stóru liðunum
og héldu sér uppi,“ segir þjálfarinn
margreyndi Guðlaugur Arnarsson,
um stöðu mála hjá liðunum sem
farið hafa á milli efstu deildanna
síðustu árin.
Huga þarf að landsbyggðinni
„Að mínu mati á ekki að fækka
liðum aftur niður í 10 í efstu deild.
Það þarf að gefa 12 liða efstu deild
meiri séns og fara frekar í það að
finna leiðir til þess að styrkja betur
þau lið sem komast upp í efstu deild.
Það ætti að mínu viti að hverfa
frá því að lið geti sett 16 leikmenn
á leikskýrslu og fækkað svo aftur
niður í 14 leikmenn. Það myndi
auka líkurnar á því að leikmenn
númer 12 til 16 í bestu liðum lands-
ins fari til minni liðanna.
Ungmennaliðin hafa sannað
mikilvægi sitt í deildarkeppnum og
við ættum ekki að koma í veg fyrir
veru þeirra í deildunum til þess að
ýta ungum leikmönnum til ann-
arra liða. Fremur ættum við að huga
því að leita leiða til þess að styrkja
handboltastarfið á landsbyggðinni.
Við sjáum núna að Hörður er að
gera frábæra hluti fyrir vestan en
það er áhyggjuefni að það sé ekkert
lið frá Reykjanesi eða fyrir austan
með lið í deildarkeppni,“ segir Guð-
laugur. Hörður situr þessa stundina
á toppi Grill 66-deildarinnar með
fullt hús stiga.
Hörður sýnt að þetta er hægt
Harðarmenn eru með góða blöndu
af heimamönnum og sterkum
erlendum leikmönnum sem leika
undir styrkri stjórn Spánverjans
Carlos Martin Santos.
„Auðvitað þarf fjármagn, áhuga
og metnað til þess að setja á lagg-
irnar samkeppnishæft meistara-
flokkslið, en það er ekki jafn mikið
og í fótboltanum til að mynda.
Það er hins vegar ein af lausnun-
um til þess að gera næstefstu deild
sterkari að fjölga þeim meistara-
flokksliðum sem eru að gera hlutina
jafn vel og Hörður er að gera þessa
stundina,“ segir hann.
Framtíðin björt hjá nýliðunum
„Það þarf hins vegar að taka það
fram að mér finnst vera flott fram-
tíðarsýn hjá HK og margir spenn-
andi leikmenn í þeirra herbúðum.
Þá er einnig verið að keyra á ungum
uppöldum leikmönnum í Víkinni.
Sú leið er skynsamlegri en að
tjalda til einnar nætur með því að
styrkja liðið með misgóðum erlend-
um leikmönnum.
Þeir leikmenn stoppa oftast stutt
og eru fæstir ekki nógu öflugir til
þess að gera það að verkum að liðin
festi sig í sessi í deild þeirra bestu,“
segir Húsvíkingurinn. n
Brúa þarf bilið á milli deildanna
Víkingur hefur átt afar erfitt uppdráttar í upphafi keppnistímabilsins í Olís-deild karla í handbolta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Að mínu mati á ekki
að fækka liðum aftur
niður í 10 í efstu deild.
Guðlaugur Arn-
arsson, hand-
boltaþjálfari
Knattspyrna karla á Íslandi stendur
á krossgötum. Landsliðið er í frjálsu
falli og deildarkeppnin á Íslandi
hefur sjaldan verið á verri stað ef
miðað er við styrkleikalista UEFA.
Íslenska úrvalsdeildin er þar sú
fjórða slakasta. Gíbraltar, Malta og
Færeyjar eru á undan okkur. Ljóst
er að grípa þarf í taumana og það
af nokkrum krafti því afreksstarf í
fótboltanum á undir högg að sækja.
Eins og hugsunin er núna eiga allir
að fá að vera með, sem er í grunninn
gott markmið en öflugt afreksstarf
þarf að fylgja með.
Undirritaður var nú ekki merki-
legur knattspyrnumaður á sínum
yngri árum en þegar ég gekk upp í
2. f lokk karla hjá Breiðabliki ákvað
þjálfarinn að vísa mönnum sem
ekki voru líklegir til afreka í burtu.
Um var að ræða afreksstarf þó
ekki væri talað neitt hátt um það.
Flokkurinn taldi þá rétt rúmlega
20 leikmenn og það voru þung spor
fyrir suma unga menn þegar þeir
fengu skilaboðin um að þeim væri
ekki lengur boðið. Mættu hreinlega
ekki mæta aftur.
Úr þessum fámenna hópi urðu til
sex atvinnumenn. Nokkrir höfðu
þegar farið í atvinnumennsku og
enn f leiri skiluðu sér í efstu deild
hér á landi. Ég slapp þegar niður-
skurðarhnífurinn var mundaður, en
það náði ekki lengra en það – sem
segir meira um mig en starfið, sem
var frábært.
Það er vonandi að kröftug
umræða eigi sér stað í aðdraganda
ársþings KSÍ sem fer fram í febrúar.
Íþróttir eiga að vera fyrir alla en það
þarf að setja meiri kraft og athygli á
afreksstarfið svo hægt verði að snúa
Þér er ekki boðið
Landsliðið stendur höllum fæti og íslenska deildin er ekki hátt skrifuð.
MYND/FRÉTTABLAÐIÐ
n Utan vallar
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
við blaðinu í íslenskum fótbolta. Ef
markmiðið er að skara fram úr þá
er ekki hægt að bjóða öllum að vera
með.
Hægt væri að fjölga æfingum yngri
landsliða í miðri viku og skapa þann-
ig öflugt umhverfi fyrir okkar bestu
ungu leikmenn. Önnur leið væri að
hefja sameiningu liða bæði á lands-
byggðinni og á höfuðborgarsvæðinu,
þannig væri hægt að búa til stærri
hóp af góðum leikmönnum sem
hægt væri að sinna betur. Þeir sem
vilja svo vera með geta haldið áfram
að æfa en á öðrum forsendum en þeir
sem geta og stefna langt. n
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Heilstey ptur leik ur
úkraínska liðsins Kharkiv reyndist
skera úr um sigurvegara leiksins
þegar Breiðablik mætti Kharkiv í
Meistaradeild Evrópu í gærkvöld.
Blikar áttu sína kafla í leiknum en
náðu ekki að nýta meðbyrinn í upp-
hafi fyrri og seinni hálfleiks til að ná
marki sem hefði brotið leikinn upp.
Eftir markalaust jafntefli í fyrri
leik liðanna náði Kharkiv betri
stjórn á leiknum. Liðinu tókst að
loka vel á sóknarleik Blika og skapa
sér nóg af færum til að taka stigin
þrjú af landi brott.
Blikar eru því með eitt stig þegar
tveir leikir eru eftir og eru mögu-
leikarnir á því að komast áfram á
næsta stig afar litlir. n
Kharkiv átti svör
við sókn Blika
Blikar komust lítið áleiðis í sóknar-
leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Kim Kardashian, Leeds
United og ónefndur rabbíni í New
York sáu til þess að um þrjátíu efni-
legar knattspyrnukonur frá Afgan-
istan komust í öruggt skjól í London
í vikunni. Alls voru 130 manns um
borð í f lugvél sem fór frá Pakistan
og eru nú komnir í sóttkví í Bret-
landi.
Fjölmargir hafa flúið Afganistan
frá því að talibanar náðu völdum
fyrr á þessu ári. Réttur kvenna til
íþróttaiðkunar hefur farið minnk-
andi undir núverandi stjórn. Kha-
lida Popal, fyrrverandi leikmaður
kvennalandsliðs Afghanistan, sem
hefur aðstoðað íþróttakonur við að
komast úr landi, lýsti létti yfir að
stúlkurnar væru komnar í öruggt
skjól. n
Kim Kardashian
átti þátt í björgun
knattspyrnuliðs
15
Víkingur og HK hafa
nú spilað 15 leiki í efstu
deild karla án þess að ná
að hala inn stig á töfluna.