Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 130
Hugmyndir hans fólust
meðal annars í því að
gera hagkvæm húsakynni
til sveita þar sem kynd-
ingarkostnaður var hár og
þurfti að nýta hvern
fermetra.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæra
Grétars Ottós Róbertssonar
læknis.
Elín Þorgerður Ólafsdóttir
Ásdís Lovísa Grétarsdóttir Kjartan Jóhannsson
Guðríður Anna Grétarsdóttir Sindri Hans Guðmundsson
Heiður Grétarsdóttir Sveinbjörn Þórðarson
Tumi Kjartansson, Troels Andri Kjartansson,
Teitur Kjartansson, Elín Ebba Sindradóttir
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Dagmar
Oddgeirsdóttir
(Sigga)
Hlöðum, Grenivík,
lést 17. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
24. nóvember kl. 13.00.
Vegna fjöldatakmarkana verður streymt frá athöfninni á:
laef.is/sigridur-dagmar-oddgeirsdottir/
og á mbl.is/andlát
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Bók um ævi og störf Þóris Bald-
vinssonar arkitekts verður gefin
út um helgina, 120 árum eftir
fæðingu hans.
arnartomas@frettabladid.is
Á morgun, laugardaginn 20. nóvem-
ber, verða liðin 120 ár frá fæðingu Þóris
Baldvinssonar arkitekts. Sama dag
gefur Sögumiðlun út bók um líf Þóris
sem var í senn framúrstefnumaður í
arkitektúr og hugsjónamaður í baráttu
fyrir bættum húsakosti til sveita.
„Þórir fæddist í Köldukinn fyrir norð-
an og ólst upp við kröpp kjör,“ segir
Ólafur Jóhann Engilbertsson sem rit-
stýrði bókinni. „Hann dreymdi um að
nema arkitektúr og þrátt fyrir að skipa-
ferðir gátu verið erfiðar komst hann að
lokum, eftir margra mánaða ferðalag,
til San Francisco.“
Vestanhafs bjó Þórir í sjö ár og lagði
stund á nám í arkitektúr og starfaði
einnig fyrir byggingarfyrirtæki sveit-
unga sinna í Þingeyjarsýslu. Árið 1926
veiktist Þórir alvarlega af lömunarveiki
og var um skeið vart hugað líf. Hann lá
mánuðum saman á sjúkrahúsi og var
frá störfum til ársins 1928. Það var svo
Jónas frá Hrif lu, gamall sveitungi Þóris
úr Kinninni, sem fékk Þóri til að koma
heim til Íslands til að vinna að Teikni-
stofu landbúnaðarins þar sem Þórir
gegndi forstöðu í fjóra áratugi og varð
hans helsta starf. „Hugmyndir hans fól-
ust meðal annars í því að gera hagkvæm
húsakynni til sveita þar sem kynding-
arkostnaður var hár og þurfti að nýta
hvern fermetra. Á starfstíma Þóris voru
f lestar eða nær allar jarðir endurhýstar
bæði að íbúðar- og útihúsum.
Þórir var frumkvöðull í gerð funkis-
húsa sem var nýr byggingarstíll á þeim
tíma,“ segir Ólafur Jóhann. Þar á meðal
má nefna funkishúsin við Ásvallagötu
í Reykjavík og við Helgamagrastræti á
Akureyri. Þórir varð þekktur fyrir fjöl-
margar byggingar er risu eftir teikn-
ingum hans bæði í Reykjavík og víða
um landið, kaupfélagshús og héraðs-
skóla, einnig Alþýðuhúsið á Ísafirði og
Mjólkurstöð KEA á Akureyri sem nú
hýsir Listasafn Akureyrar.“
Þórir teiknaði einnig opinberar bygg-
ingar í Reykjavík eins og Alþýðuhúsið
við Hverfisgötu og mjólkurstöðina
við Laugaveg sem nú hýsir Þjóðskjala-
safnið.
Auk Ólafs skrifa greinar í bókina Árni
Daníel Júlíusson, Jóhannes Þórðarson,
Ólafur Mathiesen og Pétur H. Ármanns-
son sem jafnframt tekur saman verka-
skrá Þóris. Úlfur Kolka, barnabarna-
barn Þóris, sér um útlit bókarinnar en
hann hefur tekið ljósmyndir af helstu
húsum hans um víða um landið.
„Ég elti hann eiginlega á vissan hátt
sjálfur, því ég f lutti sjálfur til Kaliforníu
og bjó þar í nokkur ár,“ segir Úlfur og
bætir við að bókin hafi verið ansi lengi
í bígerð. „Það eru komin næstum tíu ár
síðan við ákváðum að gera bókina. Ég
var sjálfur búinn að gera ljósmyndabók
um hann 2008 þegar ég var að útskrifast
úr grafískri hönnun en náði þá bara að
gera húsin hans í Reykjavík.“
Aðspurður hvort eitthvað af húsum
Þóris standi upp úr er Úlfur f ljótur að
svara.
„Uppáhaldshúsið mitt eftir hann er í
eigu fjölskyldu minnar, gamla heimilið
hans við Fornhaga,“ segir hann.
Útgáfuhóf verður í Safnahúsinu á
Húsavík á laugardag klukkan 15. n
Funkisfrumkvöðull frá Köldukinn
Húsaröð á Ásvallagötu árið 1934 í funkis-stíl Þóris. MYND/VIGFÚS SIGURGEIRSSON
Þórir ásamt fjölskyldu sinni árið 1948. MYND/AÐSEND
Þórir hannaði gömlu mjólkurstöðina þar sem nú er Þjóðskjalasafnið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1493 Kristófer Kólumbus og fylgdarlið hans gengur á
land á eyju sem hann fann degi áður. Eyjan hlaut
nafnið San Juan Bautista en þekkist nú undir nafn-
inu Púertó Ríkó.
1794 Bandaríkin og Bretland undirrita Jay-samkomu-
lagið en með því var stefnt að því að binda enda á
ýmis vandamál sem hlutust af frelsisstríði Banda-
ríkjanna.
1899 Fríkirkjusöfnuðurinn stofnaður í Reykjavík.
1917 Indira Gandhi fæðist.
1919 Félag íslenskra hjúkrunarkvenna stofnað.
1944 Bandaríkin hefja sölu á skuldabréfum fyrir fjórtán
milljarða Bandaríkjadollara til að fá fjármagn fyrir
stríðsrekstur sinn.
1946 Ísland gengur inn í Sameinuðu þjóðirnar.
1959 Auður Auðuns kjörin borgarstjóri í Reykjavík fyrst
kvenna. Auður sat í embætti í tæplega ár ásamt Geir
Hallgrímssyni.
1969 Apollo 12 nær til tunglsins og verða Peter Conrad
og Alan Ben númer þrjú og fjögur til að drepa fæti
niður á tunglinu.
1969 Knattspyrnugoðsögnin Pelé skorar sitt þúsundasta
mark.
1974 Geirfinnur Einarsson hverfur í Keflavík.
2004 Slagsmál brjótast út milli leikmanna og stuðn-
ingsmanna Indiana Pacers og Detroit Pistons í
NBA-deildinni í körfubolta þegar tæp mínúta er til
leiksloka.
Merkisatburðir
SÞ
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 19. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR