Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 93
Margar fjölskyldur spila borðspil í
jólaboðum.
sandragudrun@frettabladid.is
Hjá mörgum er það ómissandi
hluti jólanna að hittast og spila
einhvern tímann yfir hátíðirnar.
Stórfjölskyldan spilar oft í jóla-
boðum eða vinahópar hittast og
spila borðspil og borða piparkökur
og drekka malt og appelsín eða
jafnvel jólabjór.
Sumar fjölskyldur spila sama
spilið ár eftir ár til að halda í
hefðina. En þegar Trivial Pursuit
útgáfan frá árinu 1985 er spiluð í
hundraðasta skiptið og allir vita að
svarið við íþróttaspurningunum er
nær alltaf Sovétríkin og svarið við
dægurmálaspurningunum er til
skiptis Frankie goes to Hollywood
og Eurythmics þá er kominn tími
til að breyta til. Þá væri kannski ráð
að gefa nýtt borðspil í möndlugjöf.
Þar sem Íslendingar eru mjög
spilaglöð þjóð er til mjög fjölbreytt
úrval af spilum á íslensku, bæði
spurningaspil, orðaleikir, partíspil
og herkænskuspil. Það er til eitt-
hvað sem hentar öllum hópum
fólks á öllum aldri. ■
Spilajól
Kaffið um hátíðarnar má gjarnan
vera vel kryddað með kanil og fleiri
hlýjum kryddum. Fréttablaðið/Getty
johannamaria@torg.is
Jólin eru strembinn tími fyrir
marga og desember er, ásamt
janúar, dimmasti mánuður ársins.
Þá er gott að geta sötrað á ljúffengu
kaffi til að víkka út skilningar-
vitin og kveikja aðeins á orkunni
í skammdeginu. Svo er síður en
svo verra ef kaffið minnir okkur
hressilega á jólin með dökkum
kryddilmi og sætu bragði.
Til eru margar útfærslur af kaffi-
drykkjum, en þessi kryddblanda
klikkar ekki í desember.
Innihaldsefni
Tvöfaldur espressó
1 msk. hlynsíróp eða púðursykur
½ tsk. kanill, mulinn
½ tsk. allrahanda, mulið
¼ tsk. engiferduft
¼ tsk. múskatduft
Hrærið saman uns sykurinn er
uppleystur.
Heitri og freyddri mjólk er hellt
yfir. Tegund og magn eftir smekk.
Ekki er verra að toppa drykkinn
með léttþeyttri rjómaslettu og rífa
smá múskathnetu yfir. ■
Hlýr og kryddaður kaffidrykkur
Þurr jólatré skapa mikla eldhættu.
Fréttablaðið/Getty
oddurfreyr@frettabladid.is
Það er mikilvægt að vökva jólatrén
sín, því þurr jólatré geta skapað
mikla eldhættu og þau brenna
hraðar en dagblöð. Þetta kom fram
í nýlegri viðvörun frá stofnun sem
sinnir öryggismálum fyrir neyt-
endur í Bandaríkjunum.
Stofnunin birti viðvörunina á
Twitter-síðu sinni ásamt mynd
af brennandi beinagrind að stíga
út úr jólatré í jólalegri stofu. Joe
Galbo, samfélagsmiðlasérfræðing-
ur hjá stofnuninni, segir að logandi
jólatré geti kveikt í heilu herbergi
á örfáum sekúndum, þannig að
þó að þetta sé dramatísk viðvörun
sýni hún hættuna á viðeigandi
hátt.
Eldsvoðar eru algengir á jólun-
um, þegar ótal ný ljós og kerti loga
á heimilum fólks og fólk er að elda
alls konar mat. Því er mikilvægt að
passa vel upp á að jólaskreytingar
með ljósum skapi ekki hættu og að
skilja kertaljós aldrei eftir eftirlits-
laus, auk þess sem kerti eiga alltaf
að geta brunnið út hættulaust. Það
er líka mikilvægt að huga vel að
jólaseríum og athuga hvort þær séu
í heilu lagi og ganga þannig frá að
þær skapi ekki hættu.
Svo er líka mikilvægt að setja
upp reykskynjara á heimilum og
passa að þeir virki örugglega, auk
þess sem slökkvitæki eiga að vera á
öllum heimilum. ■
Vökvið jólatrén
fréttablaðið 7319. nóvember 2021 jól 2021