Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 34
Hjá Margréti Erlu Maack
hefur skapast óvenjuleg hefð
á aðfangadagskvöld.
thordisg@frettabladid.is
„Fjölskylduhefðin er sú að það er
aldrei það sama í matinn á aðfanga-
dagskvöld. Einn til tveir sjá um
að elda jólamatinn á meðan aðrir
fjölskyldumeðlimir mega ekkert
vita fyrr en sest er til borðs,“ ljóstrar
Margrét Erla Maack, sjónvarpskona
með meiru, upp um jólahaldið með
stórfjölskyldunni.
Hún segir hefðina hafa skapast
nokkuð óvænt og alveg óvart.
„Þetta gerðist af sjálfu sér og átti
sér fleiri en einn aðdraganda. Fyrst
þegar mamma vann á tímabili
í barnafataversluninni Bangsa í
Bankastræti og var lítið heima í
desember. Þegar aðfangadagur
rann upp var hún búin á því. Á öðru
tímabili var pabbi oftar en ekki að
messa á aðfangadagskvöld og kom
að loknum aftansöng beint heim
í mat. Í seinni tíð er ég sjálf oft og
iðulega að veislustýra við manna-
mót á aðventunni og komin með
yfrið nóg af jólamat þegar jólin loks
koma,“ greinir Margrét Erla frá um
ástæður óvenjulegrar jólahefðar
fjölskyldunnar á aðfangadagskvöld.
„Hefðin er ótrúlega skemmtileg
og það er engin regla á því hver fær
að sjá um matseldina. Ég er frekust
og fæ nú að elda í þriðja sinn í röð.
Við systurnar sáum fyrst um þetta
aleinar þegar ég var sautján ára og
hún átta ára. Þá vorum við með
innbakaða kengúrulund með mole.
Önnur eftirminnileg jól vorum við
með indverskt tvist á jólamatnum,
tandoori-humar og vindaloo-mar-
inerað hreindýr. Þetta hefur alltaf
heppnast vel og við höfum aldrei
þurft að grípa til frosinnar pitsu af
því jólamaturinn misheppnaðist.
Ein jólin bauð pabbi upp á reyktan
hana en gleymdi því að mér þætti
reykt kjöt ekkert spes. Það slapp
fyrir horn því haninn var aðeins
einn aðalréttur af þremur og auð-
vitað var nóg af gómsætu meðlæti.“
Besta hrósið sem Margrét Erla
hefur uppskorið fyrir jólamatseld-
ina á aðfangadagskvöld fékk hún
frá systur sinni.
„Eftir að hafa borðað tvo fulla
diska með öllu og annan með bara
meðlætinu lagðist hún fyrir með
fullt staup af jólasósunni sem hún
dreypti á yfir pökkunum,“ rifjar
Margrét Erla upp og hlær að minn-
ingunni.
Kalkúnn með saltkringlum
Í fyrra voru fyrstu jólin sem
systurnar voru báðar með lítil börn.
„Þá var ekki alveg hægt að vera
með margrétta jólakvöldverð
sem tæki of langan tíma að elda,
borða og njóta. Það þurfti að vera
matur sem „stæði vel“. Ég eldaði því
kalkún með alls konar meðlæti og
Enginn veit jólamatinn
fyrr en sest er til borðs
Margrét Erla
sá fyrst um
jólamatinn á að-
fangadagskvöld
þegar hún var
sautján ára og
naut þá liðsinnis
átta ára systur
sínnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Hugmyndaflug
ræður ríkjum í
jólamatseldinni
hjá Margréti Erlu
Maack.
MYND/AÐSEND
gef hér uppskrift að mjög skemmti-
legri kalkúnafyllingu og góðu
salati,“ segir Margrét Erla sem mælir
með að þíða kalkún í skemmti-
legum vökva.
„Í fyrra bjó ég til lög úr saltvatni,
hátíðarblöndu, anís, rósmarín,
mandarínum og fennelfræjum. Ég
notaði kalkúnabringur því mér
finnst auðveldara að elda þær en
heilan kalkún, og svo mæli ég með
að skreyta þær á skemmtilegan
hátt, til dæmis með saltkringlum,
rósmaríni og granateplafræjum.“ n
Piparkökuhnappastöffing
Margrétar Erlu
Hér gildir að setja mikið af því sem
þú fílar, minna af öðru eða sleppa
því.
Piparkökuhnappar
Beikon
Valhnetur
Sellerí
Grænt epli
Skalottlaukur
Fullt af smjöri
Má líka setja sveppi og döðlur
Steikið beikonið í litlum bitum.
Það má einnig nota beikonkurl.
Þegar beikonið er orðið stökkt má
setja smjörið út í. Þegar smjörið
bráðnar skal setja skalotlauk,
valhnetur og piparkökuhnappa
saman við og merja hnappana
aðeins. Í lokin fer epli og sellerí út
í og er fyllingunni haldið heitri í
ofninum þar til hún er borin fram.
Mandarínusalat
stórfjölskyldunnar
Þetta salat er rosalega gott með
kalkún, önd og hnetusteik.
3 mandarínur, skerið hvern bát í
þrjá bita
1 fennel
30 myntulauf (sirka)
½ granatepli (best er að taka það í
sundur í skál fullri af vatni)
Smávegis salt og pipar
Gjafabréf Icelandair er ávísun á eitthvað alveg einstakt.
Hvert sem förinni er heitið, vestur eða austur, geturðu gefið
draumaferð einhvers sem þér þykir vænt um byr undir báða vængi.
icelandair.is
19. nóvember 2021 jól 2021 14 fréttablaðið