Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 78
Ef börn
finna að þú
elskar
þennan
tíma og
nýtur þess
að undir-
búa hann,
verður
hann
töfrandi
fyrir þau
líka.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Kennaraneminn Unnur
Gígja Ingimundardóttir er
Sveinka í hjáverkum.
„Þegar ég hugsa um barnæskuna sé
ég mömmu fyrir mér í eldhúsinu,
svona eins og í jólalögunum; eitt-
hvað að baka og undirbúa. Ég gat
ekki sofnað eða vaknaði aftur og
mamma tók á móti mér með bros
á vör í eldhúsinu og leyfði mér
að narta í smákökur á meðan við
spjölluðum og hlustuðum á jóla-
lögin í útvarpinu.“
Þetta segir Unnur Gígja, móðir
þriggja ára tvíbura og níu ára
snáða í Hafnarfirði, um dýrmæta
minningu frá jólum fortíðar.
Fyrir henni er aðdragandi
jólanna hátíð.
„Kærleikurinn sem umlykur alla
á þessum árstíma, samveran með
fjölskyldunni og töfrarnir sem
maður leyfir sér að trúa á aftur,
eins og lítið barn. Ég er enn þannig
að ég á erfitt með að sofna á Þor-
láksmessukvöld vegna spennings
fyrir jólunum, orðin þrítug konan,“
segir Unnur hlæjandi og strax farin
að undirbúa jólin.
„Ég reyni að halda aftur af mér
fram í nóvember, en um leið og
haustar er ég oft byrjuð að huga
að jólum. Jólasveinninn byrjar
að safna í pokann sinn í október,
skrautið læðist upp í byrjun nóv-
ember og svo bætist smám saman
við það.“
Gefur töfra í skóinn
Unnur heldur úti blogginu gigi.is
þar sem hún skrifar niður hug-
myndir að gjöfum og samveru
undir viðurnefninu Sveinka.
„Sveinka lýsir mér vel. Ég er
mikið jólabarn og fékk löngun til
að fanga þennan árstíma og sam-
eina hann áhugamálum mínum,
ásamt því að fá útrás fyrir jólagleð-
ina,“ segir Unnur um hugmyndina
að Sveinku, sem var upphaflega að
safna þrettán gjöfum í einn kassa.
„Það átti að hjálpa jólasvein-
unum við stressið fyrir jól. Við
þurfum að passa að jólasveina-
gjafir séu litlir töfrar sem birtast
í skóm barna á meðan þau sofa
og oft eru það töfrarnir sem
skipta máli en ekki hvað leynist
í skónum. Frumburðinn minn,
orðinn níu ára, trúir ekki lengur
á jólasveinana en ég tala samt við
hann um töfra og að allt þetta sé til
á meðan hann trúir,“ segir Unnur.
Þá þurfi að hugsa um pyngjuna í
dýrtíð sem oft fylgir jólum.
„Jólasveinar þurfa að gefa
mörgum börnum og hafa ekki
efni á að gefa stórar gjafir. Látum
jólin ekki snúast um gjafir heldur
kennum börnum okkar að vera
þakklát og nægjusöm. Mínar eftir-
minnilegustu gjafir, og þær sem
mér þykir vænst um, eru handa-
vinna frá ömmum mínum og gjafir
frá börnunum mínum sem þau
gerðu af ást og umhyggju,“ segir
Unnur.
Hún byrjar snemma að horfa í
kringum sig eftir litlum gjöfum á
haustin og kaupir smátt og smátt
fram að desember, enda þarf hún
að finna 39 skógjafir handa börn-
unum sínum þremur.
„Ég skrifa líka niður hugmyndir
fyrir lesendur því margir eru hug-
myndasnauðir. Þar tel ég upp hluti
Á enn erfitt með að
sofna á Þorláksmessu
Föndurleir fyrir jólaskraut
Þessi leir er snilld til að útbúa
skraut á jólatré eða skreyta
jólapakkana.
2 dl vatn
100 g kartöflumjöl
300 g matarsódi
Öll hráefni sett í pott og
hitað yfir vægum hita. Fyrst
er blandan blaut en eftir smá
tíma þéttist hún í leir. Passið
að hræra stöðugt og vel í svo
ekkert brenni við. Látið kólna
og hnoðið deigið líkt og brauð-
deig í smá stund. Fletjið út eins
og piparkökudeig og mótið
með formum. Stingið gat efst
í hverja fígúru og látið þorna í
sólarhring hið minnsta. Þræðið
þurrar fígúrur á band.
sem gætu vantað og ef fólk er fyrir
föndur eða handavinnu má búa
til gjafirnar sjálfur því hver segir
að jólasveinar kaupi allt? Eru þeir
ekki í hellinum sínum allt sumarið
að búa til gjafirnar?“
Börn skynja gleði fullorðinna
Unnur leggur stund á kennaranám
með áherslu á textílmennt. Þar
hefur hún unnið að verkefnum
fyrir börn á grunnskólaaldri.
„Mér finnst mikilvægt að leyfa
börnum taka þátt í undirbúningi
jólanna og upplifa með þeim og í
Unnur Gígja
Ingimundar-
dóttir með
stásslegan
jólasvein sem
hún vann sem
föndurverkefni
fyrir grunn-
skólabörn í
kennaranáminu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Mestu dýrgripir jólanna eru föndur
barna handa ástvinum sínum.
Þessi fallegi
Múmín-órói er
verk Unnar og
barnanna. Upp-
skrift af leir til
slíks sköpunar-
verks er hér á
síðunni.
gegnum þau. Ekki hugsa of mikið
um að þurfa að gera allt fyrir jól
heldur meira hvað okkur langar
að gera og hvað gerir jólin dýrmæt
fyrir okkur. Ég hef tengt stress við
að fólk er á síðustu stundu með allt
en þá er um að gera að byrja undir-
búning fyrr. Ef börnin finna að þú
elskar þennan tíma og nýtur þess
að undirbúa hann, verður hann
töfrandi fyrir þau líka.“
Hún segir jólaföndur barna
gjarnan dýrmætasta jólaskraut
margra.
„Sjálf held ég mikið upp á það
sem börnin hafa gert. Það er líka
gaman að taka það upp. Börnin
muna eftir að hafa búið það til og
koma með sögur um liðna tíma
sem tengjast skrautinu. Ég hef sjálf
skapað ýmislegt í gegnum tíðina
og gefið fólki í kringum mig og
það gleður mig alltaf að sjá það
njóta sín á heimilum þeirra. Þegar
amma mín dó fékk ég til baka dót
sem ég hafði skapað handa ömmu,
gömul kort og myndir sem ég hafði
teiknað í heimsóknum og hún
geymdi.“ n
Fylgist með Unni Gígju á Instag-
ram @Sveinka um jólaboðskap,
föndur og samveru og @Gigi.is um
textíl og kennsluefni.
verkfaeralausnir.is Borvélar | Bora- og verkfærasett | Verkfæratöskur og margt fleira
Jólagjöfina færðu hjá okkur
vefsala@vv.is | Skútuvogi 1c
verkfaeralausnir.is
frettabladid_jolablad_vv.indd 1 11/16/2021 9:32:45 AM
19. nóvember 2021 jól 2021 58 fréttablaðið