Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 90
Við gerum
okkar
besta að
gera alla
glaða, svo
það er oft
ansi marg
réttað hjá
okkur.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Solla Eiríks, heilsu- og lífs-
stílsgúrú og matgæðingur
með meiru, er þekkt fyrir
sína ljúffengu og frumlegu
grænmetisrétti og ekki síst
fyrir að hafa auðgað matar-
flóruna þegar kemur að því
að nýta grænmeti í mat-
reiðsluna.
Solla heldur líka í ákveðnar matar-
hefðir sem tengjast jólunum í
bland við nýjungar. Þegar Solla er
spurð hver sé hennar uppáhalds-
jólamatur er því fljótsvarað. „Gott
Ris á l’amande með kirsuberjasósu
er alltaf í uppáhaldi hjá mér. Ég bý
það bara til um jólin og þá verður
það hátíðlegt og gleður bragðlauk-
ana. Það er auðvelt að taka gömlu
uppskriftina hennar mömmu og
skipta út mjólkinni og rjómanum
fyrir jurtamjólk og jurtarjóma.
Ég er með soldið sérkennilega
matarhefð. Ég bý alltaf til sérstakt
kartöflusalat og kaupi litlar grænar
baunir. Uppskriftin að kartöflu-
salatinu er komin frá Gunnlaugi
Þórðarsyni heitnum, sem lét fylgja
sögunni að það tæki því ekki að
gera minna magn en eitt baðkar,
og í það minnsta einn bala. Amma
mín byrjaði að gera sallatið, svo tók
mamma við og núna geri ég það.
Margréttað á aðfangadag
Við höfum verið með alla fjöl-
skylduna, foreldra, tengdaforeldra,
börn, tengdabörn og barnabörn, í
mat og þar er samankominn hópur
sem hefur alist upp við ólíkar
hefðir. Við gerum okkar besta til að
gera alla glaða, svo það er oft ansi
margréttað hjá okkur. Það hefur
fækkað í hópnum svo í ár verðum
við með réttina sem ég ætla að gefa
ykkur uppskrift að ásamt kartöflu-
salatinu og baununum forláta. Svo
á ég eftir að heyra hvort það séu
sérstakar óskir, sem ég reyni að
uppfylla eftir bestu getu.
Ég er ekki með neinar hefðir
varðandi gamlárskvöld, þá fær fjöl-
skyldan að ráða og ég elda sjaldan
það sama tvö ár í röð.“
Gamla perukakan breyttist
Uppskriftirnar að perunum og
sveppabökunni sem Solla deilir
með lesendum eiga sér smá sögu.
„Perurnar eru í rauninni gamla
perukakan sem mamma bakaði
nema það er enginn botn, heldur
nota ég bara perurnar og kremið til
að búa til desert.
Sveppabakan er uppskrift sem ég
Jólamatseðill
Sollu Eiríks
Solla Eiríks fullkomnar hér mat-
seðilinn fyrir aðfangadagskvöld á
listrænan og fagmannlegan hátt.
Sveppabakan
fræga sem á
ættir sínar að
rekja til sveppa-
hleifs.
Jólalegt gulróta-
salat með kínóa
að hætti Sollu.
Gómsætar bakaðar perur með súkkulaðirjóma með jólaívafi.
1 msk. ferskt rósmarín, saxað
1 tsk. sjávarsaltflögur
½ tsk. svartur pipar
¼ tsk. chipotle eða reykt paprika
1 rauðlaukur, skorinn í hringi
10 kirsuberjatómatar, helmingaðir
5-6 stk. timiangreinar
50 g vegan fetaostur
Sósa
1 msk. vegan smjör
200 g sveppir; þunnar sneiðar
2 hvítlauksrif
1 tsk. timian
¾ tsk. sjávarsalt
1 vegan sveppateningur
150 ml jurtarjómi
Setjið smjörið á pönnu og steikið
sveppina þar til þeir verða gylltir,
kryddið með hvítlauk, timian
og sjávarsalti og látið malla í 3-4
mínútur. Leysið teninginn upp
í jurtarjómanum og setjið út á
sveppina og látið malla við vægan
hita í 6-8 mínútur. Látið aðeins
kólna og setjið síðan í blandara.
Hitið ofninn í 200°C. Skerið
sveppina í fernt, graskerið og
tófúið í ca 2x2 cm bita, setjið í eld-
fast mót, skvettið smá olíu yfir og
kryddið með balsamediki, salvíu,
rósmaríni, sjávarsalti, pipar og chi-
potle/reyktri papriku. Notið hend-
urnar og blandið öllu vel saman
svo olían og kryddið blandist við
og húði hráefnið. Bakið í um 25-30
mínútur eða þar til allt er orðið
gyllt og vel bakað. Takið út úr ofn-
inum og látið kólna.
Setjið bökunarpappír í böku-
form (27 cm í þvermál) og látið
deigið þar í. Forbakið við 180°C
í 6-8 mínútur. Setjið fyllinguna í
bökuskelina, hellið sósunni yfir,
setjið laukhringi, kirsuberjatóm-
ata, timiangreinar og fetaost yfir
og bakið í 20–25 mínútur eða þar
til þetta er orðið gegnumeldað.
Bakaðar perur með
súkkulaðirjóma
4 perur
½ dl hlynsíróp
1 msk. engiferskot
1 msk. rifið mandarínuhýði
Safi úr 1 mandarínu
1 tsk. vanilludropar
¼ tsk. sjávarsaltflögur
Smá biti ferskur chili
Ristaðar pístasíuhnetur, gróft
saxaðar
Hitið ofninn í 180°c. Skerið
perurnar í tvennt, kjarnhreinsið og
setjið í eldfast mót. Hrærið saman
hlynsírópi, engiferskoti, mandar-
ínuhýði og mandarínusafa, sjávar-
salti og smá chili og hellið yfir
perurnar. Bakið í 25 mín., takið
formið út og snúið perunum svo
sárið snúi niður og klárið að baka
í 10 mín. Raðið perunum á disk,
setjið súkkulaðirjómann ofan á og
stráið ristuðum hnetunum yfir.
Súkkulaðirjómi
140 ml jurtarjómi sem þeytist
150 g dökkt súkkulaði
Þeytið rjómann og bræðið súkku-
laðið í skál yfir vatnsbaði. Blandið
varlega saman. Notið ískúluskeið
til að setja rjómann á perurnar. n
gerði á sínum tíma og ætlaði að búa
til innbakaðan sveppahleif, mjög
flottan með alls konar tímafrekum
krúsídúllum utan á deiginu. Það
vildi ekki betur til en að hleifurinn
datt á gólfið korter í jólaklukku-
hringingu. Ég átti nóg af fyllingunni
og mjög góða sósu, svo ég reddaði
mér með því að henda í bökudeig
og úr varð þessi sveppabaka. “
Vegan sörur í uppáhaldi
Þegar að jólasmákökum og
sætindum kemur segist Solla halda
mest upp á vegan sörurnar. „Við
mæðgurnar höfum hist og bakað
vegan sörur fyrir undanfarin jól og
ég held að þær séu mest uppáhalds
núna. Mér finnst skemmtilegt að
gera konfekt með barnabörnunum
og það sem við gerum hverju sinni
er uppáhalds.“
Hér ljóstrar Solla upp matseðl-
inum á aðfangadagskvöld.
Sætkartöflugratín
2 sætar kartöflur í þunnum
skífum, gott að nota mandolín
200 ml kókosmjólk + 3 msk.
2 msk. fínt malað spelt
50 g rifinn vegan parmesan
125 g rifinn vegan ostur
Safi og hýði af 1 límónu
1 tsk. engifer, malað
1 tsk. múskat, malað
1 tsk. rósmarín, þurrkað
1 tsk. sjávarsaltflögur
1 tsk. malaður svartur pipar
Byrjið á að skera sætu kartöflurnar
í mjög þunnar skífur, mér finnst
best að nota mandolín. Setjið
200 ml af kókosmjólk í skál, bætið
rifnum parmesan og rifnum vegan
osti út í ásamt límónusafa, límónu-
hýði, spelti og kryddi, hrærið
saman. Smyrjið eldfast mót, setjið
3 msk. af kókosmjólk í botninn og
setjið síðan 1 lag af sætum kart-
öflum, 3 msk. af osta/kryddblönd-
unni – setjið til skiptis og endið á
3 msk. af osta/kryddblöndunni.
Bakið við 180°C, fyrst í 40 mínútur
með loki/álpappír yfir og síðan í
30 mínútur án loks. Látið standa í
10-15 mínútur áður en borið fram.
Jólalegt gulrótasalat með
kínóa
10 litlar gulrætur, skornar í tvennt
ef smælki, annars skornar í strimla
1 rauðlaukur, skorinn í báta
5 hvítlauksrif, skorin í tvennt
1 tsk. cuminfræ
1 tsk. kóríanderfræ
1 tsk. fennelfræ
2 msk. ólífuolía
75 g spínat
10 ólífur
100 g vegan fetaostur
50 g ristaðar pístasíuhnetur
Granateplakjarnar úr ½ granatepli
Hýði og safi úr 1 sítrónu
Fersk minta
Hitið ofninn í 200°C. Setjið
bökunarpappír á bökunarplötu,
látið gulræturnar og laukinn þar
á, kryddið með cumin-, kóríander-
og fennelfræjum og skvettið ólífu-
olíu yfir. Bakið í 10 mín., hrærið í
eftir 5 mín. Setjið spínat á fat/skál,
og raðið hráefninu fallega á fatið,
notið líka fræin sem bökuðust með
grænmetinu. Endið á að kreista
sítrónusafa yfir ásamt sítrónuhýði
og ferskri mintu.
Sveppabaka
1 pakki tilbúið vegan smjördeig
500 g blandaðir sveppir
200 g grasker
120 g tófú
100 g ristaðar heslihnetur, gróft
saxaðar
2 msk. balsamedik
1 msk. avókadóolía
1 msk. fersk salvía, smátt söxuð
PREN
TU
N
.IS
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
TARTALETTUR
Íslenskar hátíðar
................................................
19. nóvember 2021 jól 2021 70 fréttablaðið