Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 88
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Jólakúla með mynd af
Donald Trump var fyrsta
jólakúlan í safni Guðríðar
Haraldsdóttur sem inni-
heldur margar skrýtnar og
skemmtilegar jólakúlur.
Það var fyrir hálfgerða tilviljun
sem Guðríður Haraldsdóttir, sem
alltaf er kölluð Gurrí, hóf að safna
öðruvísi jólakúlum. Upphaflegt
plan var að safna ljótum jóla-
kúlum en það breyttist fljótlega
að hennar sögn. „Ég var stödd í
Flórída rétt fyrir jólin 2018 þegar
ég rambaði inn í jólabúð. Þar sá
ég jólakúlu með mynd af Donald
Trump, þáverandi Bandaríkjafor-
seta, og á því andartaki ákvað ég
að byrja að safna ljótum jóla-
kúlum. Ég setti mynd af henni
inn á Facebook þar sem fólk lýsti
yfir hryllingi sínum, nema einn
frændinn: „Taktu aðra handa mér,“
sem ég gerði auðvitað.“
Tilefni Flórídaferðarinnar var
sextugsafmæli hennar og hélt
hún jólin á skemmtiferðaskipi í
Karíbahafinu í boði ástkærra vina
og vandamanna. „Það var afar gott
að gera eitthvað algjörlega öðruvísi
fyrstu jólin án sonar míns sem lést í
bílslysi í janúar sama ár.“
Trump-kúlan í uppáhaldi
Ljótukúlusöfnunin gekk hins vegar
einstaklega illa og þróaðist yfir í
söfnun á öðruvísi jólakúlum eftir
að Gurrí sá verk Tinnu Royal sem
er búsett á Akranesi eins og Gurrý.
„Tinna býr til litlar jólakúluútgáfur,
meðal annars af ýmsu þjóðlegu
eins og dós af Ora-grænum, Royal-
búðingspakka og bláum Ópal.
Af öllum kúlunum mínum er þó
Trump-jólakúlan í uppáhaldi, þá
Áhugamál
sem krefst
áskorunar
Guðríður Haraldsdóttir safnar skemmtilegum jólakúlum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hér má sjá hluta safns Guðríðar Haraldsdóttur.
Svona leit jólatréð út á síðasta ári. Sannarlega óvenjuleg
og skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnu jólaskrauti.Fyrirmyndin að jólakúlunum eru landsþekktar vörur. Tvær kunnuglegar kvikmyndastjörnur sem flestir þekkja og tengja við jólin.
Kókosbollujólakúlan er með þeim
óvenjulegri sem Guðríður á.
Fyrsta jólakúlan sem kom öllu af stað er með mynd af
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
helst fyrir að vera fyndin og vera
sú fyrsta í safninu, auk þess sem
allar kúlurnar eftir Tinnu veita mér
mikla gleði.“
Hún segir fólk almennt hafa
sýnt þessu nýja áhugamáli hennar
skilning en hún hafi hins vegar ekki
beðið neinn um að kaupa handa
sér ljóta jólakúlu. „Það er af því að
smekkur fólks er misjafn. Það yrði
hræðilegt að sitja kannski uppi
með flottar jólakúlur. Planið er að
safna áfram jólakúlum eftir Tinnu
sem nú er loks hægt að kaupa á net-
inu gegnum tinna royal.store. Svo
bæti ég bara í ljótukúlusafnið ef ég
rekst á eitthvað. Ég fer samt sjaldan
til útlanda og það finnast vart ljótar
jólakúlur á Íslandi sem gerir þetta
áhugamál að gífurlegri áskorun. Ég
gefst samt ekki upp!“ n
VERSLAÐU
HEIMA Í STOFU
Á forlagid.is er auðvelt að kaupa jólabækurnar í
rólegheitum, þú getur valið innpökkun, fengið sent
heim eða sótt. Þægilegra verður það ekki.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is
19. nóvember 2021 jól 2021 68 fréttablaðið