Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 66
Einn vinsælasti eftirréttur á
Ítalíu heitir tiramisù. Höf-
undur hans, veitingamaður-
inn Ado Campeol, lést um
síðustu mánaðamót, 93 ára.
Tiramisù er á eftirréttaseðl-
um á öllum helstu veitinga-
stöðum á Ítalíu.
elin@frettabladid.is
Tiramisù samanstendur af Lady fin-
gers-kökum sem eru vættar í kaffi
og mascarpone-osti. Eftir því sem
BBC greindi frá, fann Ado réttinn
upp fyrir tilviljun þegar kokkurinn
hans gerði mistök í eldhúsinu við
gerð vanilluíss. Kokkurinn Roberto
Longuanotto setti mascarpone í
skál með eggjum og sykri af slysni.
Mascarpone átti ekki að vera í
uppskriftinni af ísnum. Blandan
bragðaðist vel þannig að þau settust
yfir framhaldið á þessum nýja eftir-
rétti. Þau fullkomnuðu síðan rétt-
inn með því að bæta Lady fingers
sem dýft var í kaffi við blönduna
ásamt kakódufti sem stráð var yfir.
Þau nefndu réttinn tiramisù.
Það er almennt viðurkennt að
tiramisù hafi orðið til á veitinga-
stað Ado Campeol, sem nefnist La
Beccherie og er staðsettur í Treviso.
Staðurinn var opnaður árið 1939
og hefur alltaf verið í eigu sömu
fjölskyldunnar. Eftir lok seinni
heimsstyrjaldarinnar tók Ado við
rekstrinum. Árið 1972 kom tira mi-
sù fyrst á matseðilinn og er í dag
einn þekktasti eftirréttur í heimi.
Við ætlum að heiðra minningu
Ados með því að birta uppskriftina
bæði með og án áfengis.
Gott tiramisù hefur fullkomið
jafnvægi á milli þess að vera sætt
og beiskt. Flestir setja örlítinn
Amaretto-líkjör út í kaffið sem
gefur gott bragð. Þess má geta
að tiramisù varð mjög vinsælt í
Bandaríkjunum á 10. áratugnum.
Ekki síst vegna þess að rétturinn
kom fyrir í kvikmyndinni Sleep-
less in Seattle, frá árinu 1993
með Tom Hanks og Meg Ryan í
aðalhlutverkum. Stærsta tiramisù
sem gert hefur verið var þrjú tonn
og var gert í borginni Gemona del
Friuli á Ítalíu árið 2015.
Albert Eiríksson ástríðukokkur
hefur gert tvær mismunandi teg-
undir af tiramisù. Hann segist fyrst
hafa verið upptekinn af því að nota
Amaretto-líkjör en vera hættur
því núna. „Mér finnst best að hafa
bara sterkt kaffi og dýfi kökunum
eldsnöggt í kaffið. Vil ekki hafa þær
gegnblautar,“ segir hann.
„Tiramisù er mjög auðveldur
réttur og það er hægt að útbúa
hann með góðum fyrirvara, til
dæmis að morgni ef von er á
gestum í kvöldmat. Svo elska eigin-
lega allir þennan rétt,“ bætir hann
við. „Þetta er einn af uppáhalds-
réttunum hér á heimili og ég geri
hann reglulega.“
Albert ætlar að uppljóstra einu
leyndarmáli, sem hann hefur
fundið út að er mjög gott þegar
tíramisù er útbúið. „Ég strái salti
yfir kökurnar þegar ég hef lagt þær
í formið, um það bil 1/3 úr teskeið,“
segir hann.
Albert gefur hér uppskrift að
tíramisù sem hann fékk í Róm og
segir það eitt það besta sem hann
hafi smakkað. Hann fékk upp-
skriftina, en rétturinn var borinn
fram í litlum skálum.
Tiramisù frá Róm
Lady fingers
2 dl espresso-kaffi
4 eggjarauður
50 g sykur (ca 2 msk.)
1 dós mjúkur Mascarpone
ca 1 msk. kakó
Vætið Lady fingers upp úr espresso-
kaffi (þær þurfa ekki að blotna
í gegn) og leggið í form. Þeytið
eggjarauðurnar ljósar og léttar með
sykri. Bætið mascarpone út í og
þeytið áfram. Hellið yfir kökurnar
og sigtið kakó yfir. Best er að láta
þetta standa í klukkkustund í
ísskáp. Tilbúið. Og stendur fyrir
sínu í öllum sínum einfaldleika. ■
Sá vinsælasti á Ítalíu
Tiramisù hentar
vel um jól og
áramót sem
eftirréttur. Það
er hægt að gera
hann í eina stóra
skál eða nokkrar
litlar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Albert Eiríksson fékk sitt uppáhalds-
tiramisù í Róm og eins og sést er
hann kátur með réttinn. MYND/AÐSEND
Glæsilegar
jólagjafir
Selena undirfataverslun, Bláu húsunum við Faxafen, sími: 553 7355.
Vefverslun Selena.is - Frí heimSending um land allt
undirföt | náttföt | náttkjólar | Sloppar
www.selena.is
19. nóvember 2021 jól 2021 46 fréttablaðið