Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 66

Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 66
Einn vinsælasti eftirréttur á Ítalíu heitir tiramisù. Höf- undur hans, veitingamaður- inn Ado Campeol, lést um síðustu mánaðamót, 93 ára. Tiramisù er á eftirréttaseðl- um á öllum helstu veitinga- stöðum á Ítalíu. elin@frettabladid.is Tiramisù samanstendur af Lady fin- gers-kökum sem eru vættar í kaffi og mascarpone-osti. Eftir því sem BBC greindi frá, fann Ado réttinn upp fyrir tilviljun þegar kokkurinn hans gerði mistök í eldhúsinu við gerð vanilluíss. Kokkurinn Roberto Longuanotto setti mascarpone í skál með eggjum og sykri af slysni. Mascarpone átti ekki að vera í uppskriftinni af ísnum. Blandan bragðaðist vel þannig að þau settust yfir framhaldið á þessum nýja eftir- rétti. Þau fullkomnuðu síðan rétt- inn með því að bæta Lady fingers sem dýft var í kaffi við blönduna ásamt kakódufti sem stráð var yfir. Þau nefndu réttinn tiramisù. Það er almennt viðurkennt að tiramisù hafi orðið til á veitinga- stað Ado Campeol, sem nefnist La Beccherie og er staðsettur í Treviso. Staðurinn var opnaður árið 1939 og hefur alltaf verið í eigu sömu fjölskyldunnar. Eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar tók Ado við rekstrinum. Árið 1972 kom tira mi- sù fyrst á matseðilinn og er í dag einn þekktasti eftirréttur í heimi. Við ætlum að heiðra minningu Ados með því að birta uppskriftina bæði með og án áfengis. Gott tiramisù hefur fullkomið jafnvægi á milli þess að vera sætt og beiskt. Flestir setja örlítinn Amaretto-líkjör út í kaffið sem gefur gott bragð. Þess má geta að tiramisù varð mjög vinsælt í Bandaríkjunum á 10. áratugnum. Ekki síst vegna þess að rétturinn kom fyrir í kvikmyndinni Sleep- less in Seattle, frá árinu 1993 með Tom Hanks og Meg Ryan í aðalhlutverkum. Stærsta tiramisù sem gert hefur verið var þrjú tonn og var gert í borginni Gemona del Friuli á Ítalíu árið 2015. Albert Eiríksson ástríðukokkur hefur gert tvær mismunandi teg- undir af tiramisù. Hann segist fyrst hafa verið upptekinn af því að nota Amaretto-líkjör en vera hættur því núna. „Mér finnst best að hafa bara sterkt kaffi og dýfi kökunum eldsnöggt í kaffið. Vil ekki hafa þær gegnblautar,“ segir hann. „Tiramisù er mjög auðveldur réttur og það er hægt að útbúa hann með góðum fyrirvara, til dæmis að morgni ef von er á gestum í kvöldmat. Svo elska eigin- lega allir þennan rétt,“ bætir hann við. „Þetta er einn af uppáhalds- réttunum hér á heimili og ég geri hann reglulega.“ Albert ætlar að uppljóstra einu leyndarmáli, sem hann hefur fundið út að er mjög gott þegar tíramisù er útbúið. „Ég strái salti yfir kökurnar þegar ég hef lagt þær í formið, um það bil 1/3 úr teskeið,“ segir hann. Albert gefur hér uppskrift að tíramisù sem hann fékk í Róm og segir það eitt það besta sem hann hafi smakkað. Hann fékk upp- skriftina, en rétturinn var borinn fram í litlum skálum. Tiramisù frá Róm Lady fingers 2 dl espresso-kaffi 4 eggjarauður 50 g sykur (ca 2 msk.) 1 dós mjúkur Mascarpone ca 1 msk. kakó Vætið Lady fingers upp úr espresso- kaffi (þær þurfa ekki að blotna í gegn) og leggið í form. Þeytið eggjarauðurnar ljósar og léttar með sykri. Bætið mascarpone út í og þeytið áfram. Hellið yfir kökurnar og sigtið kakó yfir. Best er að láta þetta standa í klukkkustund í ísskáp. Tilbúið. Og stendur fyrir sínu í öllum sínum einfaldleika. ■ Sá vinsælasti á Ítalíu Tiramisù hentar vel um jól og áramót sem eftirréttur. Það er hægt að gera hann í eina stóra skál eða nokkrar litlar. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Albert Eiríksson fékk sitt uppáhalds- tiramisù í Róm og eins og sést er hann kátur með réttinn. MYND/AÐSEND Glæsilegar jólagjafir Selena undirfataverslun, Bláu húsunum við Faxafen, sími: 553 7355. Vefverslun Selena.is - Frí heimSending um land allt undirföt | náttföt | náttkjólar | Sloppar www.selena.is 19. nóvember 2021 jól 2021 46 fréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.