Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 86
Ég er með þá reglu
að ég má kaupa eitt
stórt og dýrt skraut á
hverju ári og svo leyfi ég
mér að kaupa lítið skraut
í IKEA og Costco til að
fylla upp í.
Guðfinnur Ýmir Harðarson
Aðfanga-
dagur var
því alltaf
besti dagur
ársins fyrir
mér. Þá var
allt fullt af
gjöfum,
góðum
mat, fólki
og skrauti.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Guðfinnur Ýmir Harðarson
ólst upp við að fara til ömmu
sinnar á jólunum í mikið
skreytt hús og þó að hann
sé ekki kristinn heldur hann
hefðinni við og skreytir
íbúðina sína af miklu kappi
um hver jól.
Guðfinnur Ýmir Harðarson jóla-
skreytingahetja er mjög mikið
jólabarn og skreytir heimilið af
miklum krafti fyrir hver einustu
jól, þrátt fyrir að geta bara skreytt
innandyra því hann býr í fjölbýlis-
húsi.
„Þegar ég var lítill bjó ég með
mömmu minni í Noregi en kom
svo alltaf til Íslands til að vera
með fjölskyldunni um jólin. Þá fór
ég til ömmu minnar og hitti alla
fjölskylduna. Amma hélt alltaf
rosalega stór jól og hún átti börn,
barnabörn og barnabarnabörn,
svo húsið var alltaf troðfullt af
fólki,“ segir Guðfinnur. „Aðfanga-
dagur var því alltaf besti dagur
ársins fyrir mér. Þá var allt fullt
af gjöfum, góðum mat, fólki og
Jesús er uppáhaldsofurhetjan mín
Guðfinnur Ýmir Harðarson skreytir íbúðina hátt og lágt með alls konar fallegu
jólaskrauti fyrir hver jól og hefur gert það árum saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Allar hillur og laus pláss stútfyllt af
alls konar skrauti og lít.
Þessi klukka var keypt í Costco fyrir
þessi jól.
Guðfinnur á fjölbreytt úrval af fal-
legu skrauti sem hann hefur safnað.
Það er afskaplega jólaleg stemmn-
ing heima hjá Guðfinni.
Guðfinnur er með kirkju sem skraut
þó að hann sé ekki kristinn.
Hann þarf að hemja sig í innkaupum
á jólaskauti.
skrauti. Allir voru glaðir og það var
alltaf rosalega gaman hjá okkur.“
Guðfinnur segist ekki vera krist-
inn, en að hann hafi miklar mætur
á Jesú.
„Mér líkar rosa vel við Jesú og
dæmisögurnar um hann. Hann var
frábær gaur,“ segir hann. „Hann
er uppáhaldsofurhetjan mín og
mér finnst gaman að halda upp á
afmælið hans á jólunum.“
Eitt stórt skraut á ári
„Þegar ég var lítill leið mér alltaf
eins og það væri allt skreytt frá
gólfi til lofts hjá ömmu. Fyrir um
sjö árum síðan fór ég svo að taka
þessa hefð upp,“ segir Guðfinnur.
„Ég bjó í mjög litlu rými en ég átti
eitthvert skraut, meðal annars frá
ömmu, en miðað við hvað rýmið
var lítið var ég með ótrúlega mikið
skraut. Svo þegar ég flutti í stærra
rými bætti ég við skrauti til að
halda hlutföllunum svipuðum.
Svo færðist meiri alvara í skreyt-
ingarnar eftirt að Costco kom til
landsins. Þá varð mögulegt að fá
stórt skraut fyrir eðlilegt verð,“
segir Guðfinnur. „Ég er með þá
reglu að ég má kaupa eitt stórt og
dýrt skraut á hverju ári og svo leyfi
ég mér að kaupa lítið skraut í IKEA
og Costco til að fylla upp í eins og
mér finnst þörf á. Það er bókhaldið
sem setur reglurnar, ég myndi fara
á hausinn ef ég sleppti mér alveg.
Ég kaupi jólaskraut líka bara
alls staðar þar sem ég finn það
yfir árið. Ég finn til dæmis oft
skraut í Kolaportinu, Jólabúðinni,
Góða hirðinum og stundum í
útlöndum,“ segir Guðfinnur. „Ég
hef líka gert mjög góð kaup á tom-
bólu þar sem krakkar eru að selja
eitthvað úr geymslunni á sumrin.
Þannig finn ég oft mjög gott skraut,
foreldrarnir vita ekki af hverju þau
eru að missa.“
Vill helst byrja í október
„Venjulega byrja ég að skreyta í
október. Þá fer ég að tína þetta
upp eitt og eitt og vil vera búinn að
skreyta snemma í nóvember. En
núna er hrekkjavakan orðin svo
stór viðburður að ég þurfti að gefa
börnunum leyfi til að halda hana
án þess að blanda jólunum í það,“
segir Guðfinnur. „Þannig að núna
byrja ég strax eftir hrekkjavöku.
Ef ég mætti ráða væri þetta samt
uppi allt árið og ekki tekið niður.
En fólk finnst það víst ekki smart,
ég veit ekki með það,“ segir Guð-
finnur léttur.
„Alla jafna er ég með fjölbreytt
skraut hér og þar í íbúðinni en ég
tek það allt niður til að setja upp
jólaskrautið og svo fylli ég alla
glugga og svalirnar með ljósum. Ég
reyni samt að gera það sem seinast,
til að gefa nágrönnunum frið. En
ljósin er mikilvæg út af myrkrinu,
þetta er líka hátíð ljóssins,“ segir
Guðfinnur. „Ég stútfylli bara
allar hillur og öll pláss sem eru
til af körlum, húsum, klukkum,
jólasveinum, jólaseríum og öllu
öðru sem ég finn. Það er heil hilla í
geymslunni sem fer undir jóla-
skraut og það eru bara tvær hillur í
geymslunni, þannig að þetta fyllir
helminginn af henni.“
Vill skreyta eins og Griswold
Guðfinnur segir að skrautið sem
hann fékk hjá ömmu sinni sé í
mestu uppáhaldi en að hann sé
líka alltaf spenntur fyrir stóra
skrautinu sem hann kaupir fyrir
hver jól. „Núna var ég að kaupa
mér hrossagauksklukku í Costco
sem ég er spenntur að setja í gang,“
segir hann.
Guðfinnur segir að þessari
jólaskreytingagleði sé tekið vel af
sambýliskonunni.
„Svo lengi sem ég fylgi reglunni
um að taka þetta niður fljótlega
eftir þrettándann. Ég væri samt til
að hafa skrautið uppi út febrúar. Ég
leyfi ljósunum að vera lengur, en
skrautið sjálft fer aftur í geymslu,“
segir hann. „Ég hef aldrei fengið
neina gagnrýni fyrir að skreyta
svona mikið eða byrja snemma, en
besta vinkona mín hatar reyndar
jólin og hún hneykslast pínu á
þessu, þannig að ég forðast að ræða
þetta við hana. En stóra mark-
miðið er samt að eignast hús og
skreyta það eins og Griswold-fjöl-
skyldan í Christmas Vacation og
gera allt vitlaust.“
Aðstoðar annan við skreytingar
Guðfinnur er samt ekki bara að
huga að sínum eigin skreytingum
í ár, heldur er hann líka að aðstoða
mann á Stokkseyri við að skreyta
hús.
„Hann var að kaupa sér hús
þarna og nágrannar hans eru búnir
að setja ljósin upp svo hann þarf að
gera það líka. En hann ratar ekki
í Costco og hefur ekki mikið vit á
þessu þannig að ég fer með honum
og ætla að skreyta húsið hans,“
segir Guðfinnur kíminn. „Þetta er
svona gæluverkefni hjá mér og smá
undirbúningur fyrir það þegar ég
eignast mitt eigið hús.
Ég ætla að hjálpa honum að
kaupa það rétta, réttu lengdir af
ljósum og svona hitt og þetta. Það
er auðvelt að klúðra þessu með
því að kaupa of stuttar snúrar eða
vanta framlengingar. Þá getur
þetta orðið ljótt eða bara algjört
vesen,“ segir Guðfinnur. „Svo þarf
líka að passa að vera með nóg, til
að klæða ekki bara helminginn af
húsinu, það er asnalegt. Ég held
að það sé hins vegar aldrei hægt
að gera of mikið, það þarf bara að
taka þetta alla leið.
Þetta er fyrsta „námskeiðið“ sem
ég held, en hver veit nema þeim
fjölgi eftir þessa umfjöllun,“ segir
Guðfinnur að lokum og hlær. ■
Vorhús Hafnars t ræt i 71 Akureyr i www.vorhus . i s . . .
ÞÚ FINNUR GJÖFINA Í VEFVERSLUN VORHÚS
VIÐ PÖKKUM INN, SKRIFUM ÞÍNA KVEÐJU Á KORTIÐ
OG SENDUM BEINT TIL VIÐTAKANDA.
19. nóvember 2021 jól 2021 66 fréttablaðið