Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 108
Þórunn Högna, stílisti með
meiru, er annálaður fagur-
keri og þekkt fyrir sínar fal-
legu uppstillingar á heimili
sínu og sumarhúsi, hvort
sem það er fyrir afmæli,
páska, jólahátíðirnar, áramót
eða hvers kyns viðburði.
sjofn@frettabladid.is
Þegar líður að jólum kemst hún
ávallt í skreytingagírinn og
skreytir heimili sitt og sumarhús
með sínu nefi og skortir aldrei hug-
myndaflugið þegar kemur að því
að fanga augað með glysi og glingri
og fallegum hlutum. Þemað hjá
Þórunni getur breyst frá ári til árs
þó að hún eigi sín sérkenni, enda
hefur hún ástríðu fyrir ákveðnum
litum og formum. En jólin eru
hennar uppáhaldsárstími og fyrir
aðventuna er Þórunn yfirleitt búin
að setja upp jólin.
Kransarnir í miklu uppáhaldi
„Jólin eru klárlega minn uphalds-
Gucci-grænn jólaliturinn í ár
Þórunn Högna er mikill fagurkeri og elskar að skreyta fyrir jólin enda er það
hennar uppáhaldsárstími. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Járnarinn sér-
smíðaður af
mági Þórunnar,
Marteini Karls-
syni, fæst í
Magnoliu,
svörtu kerta-
stjakarnir sem
koma svo
fallega út eru
frá Heimili og
hugmyndum,
aðventukertið
sem stendur
fyrir sínu og
hvíti vasinn
eru frá Tine K í
Magnoliu.
Gaman að sjá hvað glerkúplarnir
geta gert mikið þegar kemur að því
að leika sér með form og hluti. Þessi
stóri glerkúpull með Maríu mey er
frá Heimili og hugmyndum.
Kransarnir
hennar Þór-
unnar eru allir
virkilega fallegir
og Gucci-græni
liturinn kemur
vel út. Allir
kransarnir eru úr
Magnoliu.
Kransarnir eru mismunandi að gerð.
Svarti liturinn er ríkjandi á heimili
Þórunnar og klæðir hennar per-
sónuleika vel. Svarta skálin er frá
Verzlunarfélaginu, Keflavik.
árstími. Alveg frá því að ég var lítil
stelpa þá hef ég alltaf verið mikið
jólabarn. Það var alltaf mikil jóla-
stemning á heimili mömmu og
pabba í desember. Og gaman að
segja frá því að krakkarnir mínir
eru orðnir mikil jólabörn. Í byrjun
nóvember byrja ég að tína til jóla-
skrautið og mikið af því hefur fylgt
mér í gegnum tíðina, en annað er
nýlegt, ég kaupi alltaf eitthvað nýtt
fyrir hver jól. En auðvitað elti ég
strauma og stefnur í litum og öðru
í jólaskrauti líka. Kransarnir mínir
eru mikið uppáhalds, en ég hef átt
þá mörg ár, þeir eru aldrei alveg
eins þótt grunnurinn sé sami, en
þeir fá ávallt smá upplyftingu fyrir
hver jól.“
Ferskt greni ómissandi
Segðu okkur aðeins frá jólaþemanu
þínu í ár.
„Ég er oftast með svipaða lita-
tóna í jólaskrauti en finnst líka
gaman að breyta aðeins til. Jóla-
kransar í alls konar stærðum og
gerðum með mismunandi skrauti
finnst mér mjög jólalegt. Einn af
mínum uppáhaldslitum er þessi
fallegi græni litur, forest green eða
Gucci-grænn, einstaklega fal-
legur litur. Hann fer mjög vel við
litasamsetningu heima og gaman
að blanda honum saman við allt
hitt jólaskrautið. Ferskt greni í fal-
legum vasa finnst mér ómissandi
og falleg kerti hér og þar.
Mér finnst mjög gaman að nota
alls kyns bakka, kökudiska, og
skálar fyrir jólaskraut, núna í ár
notaði ég til dæmis alls konar gler-
kúpla sem ég setti ofan á kertaarin-
inn með alls konar skrauti inni í.
Nota sama skrautið aftur og aftur
Þórunn er dugleg að nýta það sem
hún á fyrir og reynir að nota hug-
myndaflugið með nýtinguna svo
ekki þurfi ávallt að kaupa allt nýtt.
Notar þú mikið sama skrautið?
„Já, að einhverju leyti nota ég sama
skrautið en reyni ávallt að breyta
aðeins til. Og spái mikið í það. Ég á
mögulega alltof mikið af jóladóti
en reyni að nýta það aftur og aftur,
er mjög góð með spreybrúsann,“
segir Þórunn og glottir. n
RYKLAUS FLÍSASÖG!
SKERIÐ FLÍSAR ÁN VATNS!
HÆGT AÐ SAGA INNAN-
DYRA UM VETUR!
SÍÐASTA SENDING
SELDIST UPP!
Ekkert ryk. Ekkert vatn. Engin vandamál
S J Á N Á N A R Á V I D D . I S
N Ý S E N D I N G !
19. nóvember 2021 jól 2021 88 fréttablaðið