Fréttablaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 98
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Lára Margrét Traustadóttir
er með einstaklega fagurt
auga þegar kemur að jóla-
skreytingum, en þar er
íslensk vetrardýrð oft í
hávegum.
„Íslenskur skógur og náttúra varð
mér að yrkisefni þegar ég sótti
hugmyndir að borðskreytingu
jólanna í þetta sinn. Fegurð nátt-
úrulegra skreytinga hrífur mig
alltaf og ég ákvað að hafa rauða
litinn með því hann er svo jóla-
legur,“ segir Lára Margrét Trausta-
dóttir innanhússkreytir.
Lára lagði á borð fyrir lesendur
jólablaðsins, svo þeir mættu fá inn-
blástur að skreytingu.
„Allir geta skreytt veisluborð
jólanna með þessum hætti því
tilkostnaðurinn er lítill. Það eina
sem þarf til eru könglar og greinar.
Í borðskreytinguna notaði ég
tvær tegundir af greni, mikið af
könglum og falleg Eucalyptus
populus-ber.“
Mamma gaf tóninn
Lára Margrét hefur frá barnæsku
haft mikinn áhuga á skreytingum
og segist erfa það frá móður sinni.
„Ég er alin upp á fallegu heimili
og mamma mín heitin hafði
mikinn áhuga á að hafa fallegt í
kringum okkur heima. Á æsku-
árunum var heimilið alltaf mikið
skreytt fyrir jólin og áhugi minn
á skreytingum jókst enn meira
þegar ég fór að búa sjálf, en ég bý
svo vel að fá að ráða flest öllu sem
er inni á heimilinu,“ segir Lára og
hlær, komin í jólaskap.
„Mér finnst alltaf jafn gaman að
nostra við jólin, sama hvort það er
jólaborðið eða annað sem tengist
jólahaldinu á heimilinu. Margir
myndu eflaust telja mig pínu
klikkaða í þessu en ég tek niður
flesta hluti sem ég er vanalega með
uppi við yfir árið og set jólaskraut
í staðinn. Þá fer ég ófáar ferðir út
í skóg til að sækja mér greinar og
fleira fallegt til skreytinga, en ég
nota alltaf mikið af náttúrulegum
efniviði í jólaskreytingar.“
Heimilislegt jólahald
Heimili Láru Margrétar ber þess
merki að hún hefur gott auga.
„Ég legg mikið upp úr því að hafa
fallegt í kringum okkur heima, en
þó vil ég að það sjáist vel að hér
býr fólk með öllu sem því fylgir.
Stelpurnar mínar eru duglegar
að koma með ýmislegt fram sem
ætti kannski frekar heima inni hjá
þeim, en mér er alveg sama þar
sem þetta er þeirra heimili líka.“
Lára er eigandi Skreytinga-
Hrífandi fögur skógarferð við hátíðarborðið
Lára Margrét
Traustadóttir
sækir sér oft
innblástur í
náttúruna, ekki
síst þegar hún
fer í vetrarbún-
ing og verður
jólaleg. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Það þarf ekki að fara lengra en í stutta skógarferð til að finna jólaskraut náttúrunnar, svo sem
sígrænt greni, köngla og ber. Útkoman er hlýleg, falleg, vistvæn og hagstæð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rautt og grænt
eru sígildir litir
jólanna og tóna
sérstaklega vel
saman í nátt-
úrulegu greni
með jólarauðum
borða.
Yfir jólaborði Láru grúfir rökkur skammdegisins, en kerta- og jólaljós veita yl.
Lára fléttar greni og köngla fallega utan um sérvéttur jólaveislunnar.
Dásamlega lekkert og jólalegt.
Könglar eru íðilfagurt sköpunarverk
náttúrunnar og sóma sér alltaf vel.
þjónustunnar og tekur að sér að
skreyta fyrir veisluhöld af öllu tagi
árið um kring.
„Skreytingaþjónustunni fylgir
oft mikið umstang og dót sem
lendir oft á hinum ýmsu stöðum
heima en það er bara í góðu lagi,
eðlilegt og heimilislegt. Það á
öllum að líða vel heima hjá sér og
andrúmsloftið á að vera afslappað.
Eins finnst mér mikilvægt að þeim,
sem koma í heimsókn til okkar,
líði vel hjá okkur og upplifi sig ekki
eins og í líflausri húsgagnaverslun.
Ég fylgist svo vitaskuld vel með því
sem er í tísku hverju sinni, en oftar
en ekki fer ég mínar eigin leiðir í
skreytingum og vel frekar það sem
mér finnst fallegt og passa hverju
tilefni, í stað þess sem er kannski
hæstmóðins akkúrat þá.“ ■
SMIÐJUVEGI 44-46
sími 414-2700
sala@idnvelar.is
www.idnvelar.is
allt fyrir iðnaðinn....
19. nóvember 2021 jól 2021 78 fréttablaðið