Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 46

Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 46
Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is Bryndís Óskarsdóttir, jafnan kölluð Dísa, hefur alltaf verið afar umhverfisvæn og passað upp á að lágmarka sóun. Hún er grafískur hönnuður, matartæknir, markþjálfi auk þess að reka eigin ferðaþjónustu stutt frá Akureyri. Dísa heldur úti heimasíðunni disaoskars.com þar sem hún er með margvísleg námskeið í boði, til dæmis nokkur áhugaverð jóla­ námskeið. Hún kennir fólki meðal annars að pakka inn jólagjöfum á umhverfisvænan sniðugan hátt. Dísa pakkaði inn nokkrum gjöfum fyrir Jólablaðið þar sem hún notar eingöngu dagblöð, tímarit, bækur og skraut úr náttúrunni. Eins og sjá má á myndunum gefur þetta gjöfunum skemmtilegt yfir­ bragð. Könglar, gamlar blúndur, þurrkaðir ávextir og greinar gera pakkana einstaklega jólalega. „Ég geri líka heilu pappírsrúllurnar úr tímaritablöðum eða blaðsíðum sem ég svo mála og jafnvel stimpla. Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að útbúa pakkana á þennan hátt,“ segir hún. Úr geymslu í gersemi „Ég hef verið að klippa og líma síðan ég man eftir mér. Finnst ein­ staklega skemmtilegt að föndra og finna sniðugar umhverfisvænar lausnir og hef alltaf verið mjög skapandi, mála og bý til allt sem ég mögulega get. Ég hef verið með alls kyns námskeið í raunheimum í gegnum tíðina en undanfarin tvö ár hef ég verið að útbúa net­ námskeið og áskriftarklúbb sem nefnist Úr geymslu í gersemi. Þeir sem eru í klúbbnum fá aðgang að eigin svæði þar sem eru margvísleg Illt í hjartanu við mikla sóun Dísa Óskars er skapandi og hefur mikla ánægju af því að skreyta á umhverfisvænan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Eins og sjá má eru pakkarnir mismunandi skreyttir. Dísa notar alls kyns pappír. Bækur, blöð og innkaupapokar úr pappír eru meðal þess sem skreytir jólapakkana, ásamt greinum og könglum úr náttúrunni. myndbönd, uppskriftir og leið­ beiningar og nýtt efni í hverjum mánuði. Þar sem ég er grafískur hönn­ uður þá er líka efni til að prenta út, meðal annars Gjafabréfavefbók sem fólk getur prentað út úr heima rétt áður en það fer í afmæli eða í annan viðburð. Í henni er hægt að finna alls kyns hugmyndir að gjöfum, til dæmis sniðugum upp­ lifunargjöfum,“ segir hún. Dísa kennir fólki að útbúa góm­ sætar gjafir sem eru þá matarkyns, sultur, ristaðar hnetur eða þess háttar og síðan að pakka þeim inn á umhverfisvænan en fallegan hátt. Og svo er eitt jólanámskeið enn þar sem Dísa kennir fólki að búa til aðventudagatöl, „en síðan faðir minn lést hef ég oftast útbúið aðventudagatal handa móður minni, það er gaman að gleðja þá sem eru einir og vantar skemmtun í hversdaginn,“ segir hún. Ljós úr gömlum gardínum „Ég er alltaf að hugsa um hvernig við getum gert daginn skemmti­ legri og átt betri stundir án þess að eyða einhverju í umhverf­ inu. Ég reyni af fullum krafti að vera umhverfisvæn fyrir utan ferðagleðina sem er mitt helsta áhugamál,“ segir Dísa, en hún lætur umhverfissjónarmiðin líka ráða í ferðaþjónustunni og gætir að matarsóun eins og hægt er. „Húsgögnin eru mikið endurnýtt og margt búið til úr gömlu, eins og ljósin í matsalnum sem búin eru til úr gömlum blúndugardínum,“ segir hún. „Mér verður illt í hjart­ anu að sjá mikla sóun, oft er þetta bara svo mikið hugsunarleysi. Það er líka svo gaman og nærandi að búa hlutina til sjálfur. Jólatréð úr Hálsaskógi Ég skreyti heimilið mitt ekki mikið en mér finnst undirbúningur jólanna mjög skemmtilegur tími. Sérstaklega er gaman að finna leiðir sem kosta ekki mikið. Það er hægt að gera svo ótrúlega fal­ legt hjá sér án þess að missa sig í glysi. Aðalskrautið á mínu heimili er stórt lifandi jólatré sem við sækjum í skóginn okkar, Hálsa­ skóg. Og helstu jólahefðirnar hjá mér eru þær að stórfjölskyldan sker út laufabrauð saman í byrjun aðventu og þá byrja jólin hjá mér. Svo borðum við alltaf saman skötu í hádeginu á Þorláksmessu. Ég stússa síðan alltaf í matnum mest allan aðfangadag og nýt mín í botn,“ segir Dísa. Reyndar höfum við fjölskyldan oft verið í burtu á jólunum og haldið þau annars staðar, enda ferðumst við mest yfir vetrar­ tímann þar sem lítið er hægt að komast frá ferðaþjónustunni á sumrin. „Við veljum að fara í sólina. Við verðum þó heima um þessi jól en förum líklega í janúar. Ég hef hvatt fjölskyldu mína til að gefa upplifun í jólagjöf.“ Dísa segist ekki vera föst í hefðum þegar kemur að jólamatn­ um. „Hann er bara sá sem við erum í stuði fyrir hverju sinni. Ég er mjög nýjungagjörn og alltaf að prófa eitthvað nýtt í matargerðinni. Síðan finnst mér mjög gaman að skreyta jólaborðið fallega.“ n 19. nóvember 2021 jól 2021 26 fréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.