Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 64

Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 64
 Þessi terta situr fast í minningu minni um jólin og er ómissandi partur af jólahaldinu. Laufey Rós Hallsdóttir matartæknir starfar við matargerð á dvalarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði. Vegna starfs síns verður hún að fresta eigin jólum og færa þau til áramóta. Hún mun hins vegar elda jólamat fyrir íbúa í Hulduhlíð. elin@frettabladid.is Laufey Rós hefur einstaklega gaman af starfi sínu og finnst skemmtilegt að prófa sig áfram með uppskriftir. Íbúar á Hulduhlíð hafa fengið að njóta kræsinga hennar frá árinu 2016. Laufey hefur sett inn myndir á fjölmennum matar- síðum á Facebook og fengið mikið lof fyrir þann mat sem hún býður okkar elsta fólki. Hún segist hafa orðið mjög hissa á viðbrögðunum á Facebook þar sem hún taldi að þetta væri alls staðar svona. „Ég hef ánægju af starfi mínu þótt launin mættu vera betri, og reyni að bjóða alltaf upp á góðan mat, “ segir hún. „Íbúarnir eru 20 og hafa verið mjög ánægðir með matinn.“ Hafði aldrei komið á Eskifjörð Laufey Rós er Borgnesingur. Hún bjó í nokkur ár í Reykjavík en flutti þá austur á Eskifjörð, en þangað hafði hún aldrei komið. „Ég bjó í Reykjavík með tvö börn og mig langaði að breyta til. Þetta var blind ákvörðun. Úti á landi er mun minna stress en í borginni og húsnæðið ódýrara þótt það fari hækkandi. Eftirspurnin er meiri en framboðið,“ segir hún. „Það góða er að hérna virðast vera fleiri tímar í sólarhringnum en í borginni,“ segir hún. Laufey segist hafa verið alin upp við jólaskraut og bakstur. „Mamma bakaði alltaf 15-20 tegundir af smákökum fyrir jólin. Þrifið var hátt og lágt og allt tekið í gegn. Ég er aðeins rólegri fyrir jólin, baka svona 4-5 tegundir af smákökum og reyni að gera eitt- hvað skemmtilegt föndur með börnunum. Að auki skreytum við Jólin frestast til áramóta Laufey Rós Hallsdóttir eldar ofan í íbúa Hulduhlíðar á Eskifirði um jólin og verður því að vinna. MYND/AÐSEND Glæsileg möndluterta með mokkakremi en Laufey fékk uppskriftina frá móður sinni sem nú er látin. Uppskriftin hefur alltaf verið leyndó. Laufeyjarkökur sem eru ein- faldar í bakstri og má breyta að vild með súkku- laði, hnetum eða hverju því sem fólki dettur í hug. og ég er aðeins byrjuð að hengja upp jólaljós í gluggana til að lýsa upp skammdegið. Auk þess kveiki ég mikið á kertum,“ segir Laufey, sem verður að vinna öll jólin. Haldið í hefðirnar „Ég mun vinna á aðfangadag, jóladag og annan í jólum. Það er tólf tíma vakt á aðfangadag í eld- húsinu. Maðurinn minn starfar í álverinu á Reyðarfirði og hann verður líka að vinna öll jólin. Synir mínir eldri verða hjá föður sínum í Reykjavík um jólin og dóttir mín með ömmu sinni. Okkar jól verða síðan um áramótin og þá tökum við upp pakkana,“ segir Laufey. „Við vinnum yfirleitt önnur hver jól, en ég mun bjóða upp á glæsi- legan tvíréttaðan jólamat fyrir íbúa en við byrjum á skötunni á Þorláksmessu. Ætli ég verði ekki með hamborgarhrygg og létt- reyktan lambahrygg eða nýjan og síðan góðan eftirrétt. Á jóladag höfum við hangikjöt með tilheyr- andi og ris à l´amande. Við höldum í gamlar hefðir.“ Erfiðir tímar fyrir ári Laufey segir að það hafi verið ákaf- lega sorglegt um jólin í fyrra þegar allt var lokað vegna Covid. „Fólkið mátti ekki fara út og enginn koma í heimsókn. Það var erfiður tími fyrir alla,“ segir hún. „Venjulega er það þannig að nánustu aðstand- endur mega koma í heimsókn og vera í mat með þeim sem komast ekki úr húsi, en það gat ekki verið þannig í fyrra,“ segir Laufey. Eskifjörður er lítill bær og þar þekkjast nær allir. Laufey segir að íbúar á Hulduhlíð hafi þekkst frá því þeir voru börn. „Það er mjög gaman að heyra þau rabba saman um gamla tíma, gömlu skólasystk- inin,“ segir hún. Faðir Laufeyjar flutti til Eskifjarðar fyrir tveimur árum og mun verja jólunum með fjölskyldunni um áramótin. Terta frá mömmu Laufey Rós gefur okkur tvær uppskriftir, möndlutertu með mokkakremi, sem hún segist hafa alist upp við þar sem móðir hennar gerði hana fyrir hver jól, en hún lést árið 2015. „Þessi terta situr fast í minningu minni um jólin og er ómissandi partur af jólahaldinu,“ segir Laufey. „Ég hef haldið þessari uppskrift fyrir mig en líklega er kominn tími til að deila henni með öðrum. Hún er rosalega góð, líkist helst sörum. Smákökurnar hef ég prófað mig áfram með og prófað ýmsar útfærslur á þeim. Gott er að gera stóra uppskrift, frysta deigið og baka þegar manni dettur í hug. Mjög einföld og þægileg uppskrift sem má breyta og bæta eftir vild. Þær eru oft kallaðar Laufeyjar- kökur. Súkkulaðibitakökur 2 ½ bolli hveiti 1 tsk. matarsódi 1 tsk. salt 1 bolli smjörlíki ¾ bolli púðursykur ¾ bolli sykur 1 tsk. vanilludropar 2 egg 2 bollar súkkulaðibitar ½ -1 tsk. kanill 2 msk. smooth eða crunchy hnetusmjör eftir smekk (má sleppa) Hræra vel saman sykur, smjör, púðursykur og vanilludropa. Bæta þar næst eggjum við og hrærið saman, síðast er þurrefn- unum og súkkulaðibitunum bætt við. Hnoðaðar kúlur og f lattar örlítið út með lófanum, raðað á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakað við 180°C í um það bil 10-15 mín. Möndluterta með mokkakremi Botnar, 2 stk. 150 g hakkaðar möndlur eða möndlumjöl 200 g flórsykur 1 msk. kartöflumjöl 5 eggjahvítur Hökkuðum möndlum blandað saman við sykur og kartöflu- mjöl. Stíf þeyta eggjahvíturnar og blanda svo varlega þurrefnunum saman við. Sett í tvö vel smurð form (best að setja bökunarpappír í botninn svo það sé auðveldara að losa) og bakað þar til verður ljósbrúnt við 150°C. Taka svo strax úr formunum og kæla vel. Krem: 3-4 eggjarauður 1 ½ dl sterkt kaffi 100 g sykur 150 g smjör Ég geri alltaf 1 ½ uppskrift af kreminu. Kaffi og sykur soðið vel saman í síróp, eða þar til fer að mynda þræði í köldu vatni. Þeyta eggja- rauður og bæta svo sykurleginun saman við í mjórri bunu á meðan hrært er. Halda áfram að þeyta í nokkrar mínútur, bætið svo smjörinu við í nokkrum bitum á meðan hrært er. Sett á milli botnanna og ofan á og skreytt að vild. ■ Gleðileg jól 19. nóvember 2021 jól 2021 44 fréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.