Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 84

Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 84
Það getur stundum verið flókið að finna út hvað eigi að hafa sem meðlæti með hátíðarmatnum. Hér eru uppskriftir sem vonandi geta hjálpað. Gratíneraðar kartöflur, spergilkálssalat og strengjabaunir með hnetum. elin@frettabladid.is Gratíneraðar kartöflur eru mjög góðar með veislumat. Flestum finnst rétturinn góður og hann getur líka litið fallega út. Kartöfl- urnar mega ekki vera of þurrar og þær eiga heldur ekki að drukkna í rjómanum. Gratíneraðar kartöflur 2 hvítaluksrif 1 meðalstór skallottlaukur 500 ml rjómi 1 tsk. Maldon salt ½ tsk. nýmalaður pipar 1 msk. ferskt timían 1 kg kartöflur, þvegnar 100 g rifinn ostur Hitið ofninn á 200°C. Veljið eldfast mót sem tekur minnst 2 lítra. Skerið smátt niður lauk og hvít- lauk. Setjið rjóma, hvítlauk, lauk, salt, pipar og timían saman við. Hitið upp og látið malla við vægan hita í 10-15 mínútur. Notið töfra- sprota og maukið. Skerið kartöflurnar í þunnar sneiðar. Gott er að nota mand- ólín við skurðinn ef slíkt tæki er til á heimilinu. Munið að passa fingurna þegar mandólin er notað. Raðið kartöflunum upp á rönd í formið. Hellið rjómablöndunni yfir. Setjið álpappír yfir formið og bakið í 30-40 mínútur eða þangað til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Dreifið ostinum yfir og bakið áfram án álpappírs þar til osturinn er orðinn fallega gylltur. Spergilkálssalat Spergilkál er ekki einungis ofur- fæða heldur er það mjög bragð- gott. Það er hægt að gera alls kyns útgáfur af þessu salati, til dæmis setja vínber í það, epla- eða beikonbita. Um að gera að láta hugmyndflugið ráða ferðinni. En hér er ein útgáfa sem er mjög góð. Það eru kjúklingabaunir í salatinu en þeim má skipta út fyrir eitthvað annað. 1 meðalstórt spergilkál ½ rauðlaukur, smátt skorinn 1 agúrka, smátt skorin 100 g þurrkuð trönuber 2 dósir kjúklingabaunir 1 msk. ólífuolía 1 tsk. sjávarsalt 1 msk. hunang Dressing Safi úr hálfri sítrónu 1 tsk. dijon-sinnep 1 tsk. hunang 3-4 msk. góð ólífuolía Smávegis salt Hitið ofninn í 200°C. Hellið leginum af baununum og skolið þær upp úr köldu vatni. Setjið baunirnar á bökunarplötu og bakið í 30 mínútur. Hrærið saman ólífuolíu, salti og hunangi og hellið yfir baunirnar. Veltið þeim upp úr leginum. Setjið aftur í ofninn og bakið í 10 mínútur í viðbót. Á meðan baunirnar eru í ofninum er salatið útbúið. Skerið spergilkálið niður og setjið í mat- vinnsluvél og hakkið smástund. Setjið í skál. Skerið agúrku og lauk. Blandið saman ásamt trönuberj- unum. Útbúið dressinguna. Hrærið saman sítrónusafa, hunangi og sinnepi. Bætið olíu við á meðan hrært er þannig að blandan þykkni. Bragðbætið með salti. Bætið hunangi við ef þið viljið hafa dress- inguna sætari. Hellið yfir salatið og blandið allt vel saman. Skreytið með kjúklingabaunum og setjið restina í skál sem höfð er til hliðar. Baunir með heslihnetum 400 g strengjabaunir Olía til steikingar 50 g smátt skornar heslihnetur 1-2 hvítlauksrif, rifin 1-2 msk. smjör ½ sítróna Skolið baunirnar og steikið þær í olíu. Steikið í 4-5 mínútur. Setjið hvítlauk, hnetur og smjör út á pönnuna og blandið öllu saman. Lækkið hitann svo hvítlaukurinn brenni ekki. Í lokin er safi úr hálfri sítrónu kreistur yfir og saltað. ■ Meðlæti á veisluborðið Gratíneraðar kartöflur eru algjör veislumatur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Sperkilkál er mikið lostæti og hentar vel í salat með ýmsu góðgæti. Strengjabaunir með hnetum er skemmtilega öðruvísi réttur. Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is MIYABI FRÁ ZWILLING VANDAÐIR JAPANSKIR HNÍFAR Fullkomin blanda af japönsku handverki og þýskum áreiðanleika. 19. nóvember 2021 jól 2021 64 fréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.