Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 95

Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 95
Með gjafakorti gefur maður þeim sem manni þykir vænst um ávísun á ógleyman- lega stund. Magnús Geir Þórðarson Magnús Geir Þórðarson segir að það sé mikill kraftur í Þjóðleikhúsinu þessa dagana og það sé algerlega frá- bært að finna þær góðu viðtökur sem dagskráin er að fá meðal leikhúsgesta. MYND/AÐSENDGjafakort Þjóðleikhússins eru frábær jólagjöf fyrir hvern sem er og í raun gjöf sem heldur áfram að gefa. Vertu úlfur hefur slegið í gegn og sópaði til sín öllum aðalverðlaununum á Grímuhátiðinni í vor. Leikritið Ásta var frumsýnt í byrjun september, en það byggir á ævi og höfundarstarfi Ástu Sigurðardóttur. Jólaboðið er frumsýnt í kvöld, en verkið byggir á þekktu leikverki eftir Thornton Wilder. Þeim merka áfanga var fagnað í október að Karde- mommubærinn var sýndur í 50. sinn og að sjálfsögðu var það fyrir fullu húsi, eins og alltaf. Nashyrningarnir í leikstjórn Benediks Erlingssonar hlaut mikið lof gagnrýn- enda og leikhúsunnenda þegar sýningin var frumsýnd í vor. Í vor frumsýnir Þjóðleikhúsið glænýjan söngleik, Sem á himni. Það er langt síðan nýr söngleikur af þessari stærðargráðu hefur verið frumsýndur hér á landi, en 14 manna hljómsveit flytur tónlist sýningarinnar ásamt leikurunum. Jólasýningin Framúrskarandi vinkona verður einn af hápunktunum í leikhúslífinu í vetur. lífi. Við höfum leyft okkur að kalla Kjallarann „klassabúllu“ og það lýsir ágætlega framboðinu sem þar er boðið upp á. Nú sitja áhorfendur við borð og njóta veitinga meðan á sýningum stendur og eru í mikilli nálægð við leikara og listamenn,“ segir Magnús Geir. Í kjallaranum er boðið upp á kabaretta, uppistönd, spunasýn- ingar Improv-hópsins, sýningar af ýmsu tagi að ógleymdu hinu nýja Hádegisleikhúsi. „Hádegisleik- húsið hefur farið frábærlega af stað og nýlega frumsýndum við Rauðu kápuna, en svo koma tvö ný verk eftir áramót. Í Hádegisleikhúsinu getur fólk skotist í hádeginu og á innan við klukkustund notið stuttrar, skemmtilegrar leiksýn- ingar og fengið hádegismat. Þetta er tilvalið fyrir vinahópa, vinnu- staði og fólk sem vill brjóta upp hversdaginn,“ segir Magnús Geir. Góðan daginn, faggi, er nýtt verk Bjarna Snæbjörnssonar í leik- stjórn Grétu Kristínar en verkið hefur hlotið frábærar viðtökur og er sýnt fyrir fullu húsi. Sömuleiðis hefur sketsasýningin Kanarí notið mikilla vinsælda. Örn Árnason er nýbúinn að frumsýna verk sitt, Sjitt ég er sextugur, sem er persónuleg, fjörug og einlæg, en umfram allt bráðskemmtileg sýning. Til viðbótar við þetta fjölbreytta úrval leiksýninga í Þjóðleikhúsinu, þá fer leikhúsið í leikferðir um allt land með leiksýningar, meðal annars í skóla og leikskóla. Þá er leikhúsið að þróa mörg ný verk sem eru sýnd á Loftinu sem „verk í þróun“ og undir vorið verður nýtt íslenskt leikrit, Prinsinn, eftir Maríu Reyndal og Kára Viðarsson frumsýnt á Rifi og svo sýnt um allt land. Tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar „Það er mikill kraftur í Þjóðleik- húsinu þessa dagana og alger- lega frábært að finna þær góðu viðtökur sem dagskráin er að fá meðal leikhúsgesta. Það er aug- ljóst að fólk er spennt fyrir því sem fram undan er. Gjafakort eru auðvitað frábær jólagjöf – í raun gjöf sem heldur áfram að gefa. Með gjafakorti gefur maður þeim sem manni þykir vænst um ávísun á ógleymanlega stund,“ segir Magnús Geir. „Gjafakortin okkar eru opin og renna aldrei út. Þannig getur sá sem kortið fær valið þá sýningu sem hann sjálfur vill helst sjá og þegar hann vill. Við höfum séð að sumir bjóða allri fjölskyldunni saman í leikhús, sem mér finnst ótrú- lega fallegt. Í haust höfum við séð stóra fjölskylduhópa koma á Kardemommu bæinn þar sem afar og ömmur hafa boðið allri stór- fjölskyldunni í leikhús og þannig skapað sameiginlegar minningar. Ég gæti trúað því að margar slíkar fjölskyldur kjósi líka að koma saman á söngleikinn Sem á himni,“ segir Magnús Geir. Fleiri spennandi jólatilboð Til viðbótar við hin hefðbundnu opnu gjafakort, þá er boðið upp á sérstaka tilboðspakka á til- teknar sýningar. Þannig er hægt að fá ítalska leikhúsveislu sem samanstendur af miðum á Framúr- skarandi vinkonu og ítalskar veitingar til að njóta fyrir sýningu og í hléi. Sams konar tilboð er á miða og veitingar á Sem á himni. Að endingu er hægt að fá miða og geisladisk með nýjum, ferskum útsetningum á lögunum í Karde- mommubænum. Leikhúsunnendur hafa úr fjöl- breyttu úrvali sýninga að velja í Þjóðleikhúsinu í vetur og eflaust eru margir sem vilja gjarnan upp- lifa leikhústöfrana. „Leikhúsið er list augnabliksins. Leiksýningarn- ar eru síbreytilegar og engar tvær sýningar eru eins. Töfrarnir gerast hér og nú, fyrir augum okkar og með þátttöku okkar. Þegar vel tekst til er ekkert stórkostlegra en gott leikhús. Það er heilandi og sameinandi, “ segir Magnús Geir. „Hver sýning er einstök og við stefnum að því að hreyfa við hverjum einasta leikhúsgesti, þannig að stund hans í leikhúsinu sé ógleymanleg í alla staði. Við hlökkum mikið til að taka á móti leikhúsgestum okkar á næstu mánuðum og lofum þeim einstöku leikhúsi.“ ■ 19. nóvember 2021 jól 2021 fréttablaðið 75
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.