Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 96

Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 96
Hársnyrtimeistarinn Hildur Ösp Gunnarsdóttir sýnir lesendum einfaldar og fal- legar hátíðargreiðslur sem gaman er að skarta yfir jólin og áramótin. Flétturnar segir hún vera klassískar eins og alltaf, en sleikt tagl að hætti Ariönu Grande er líka mjög vinsælt. johannamaria@frettabladid.is Að sögn Hildar er allt í tísku í dag í hári. „Mullett-klippingin hefur verið vinsæl og ljósa hárið er líka alltaf inn. Þá hafa hlýrri litir eins og hunangsgylltur og gylltur tekið við af hvítgráa tóninum sem hefur verið vinsæll lengi.“ Hildur er með sveinspróf í hársnyrtingu frá Hárakademíunni og meist- aragráðu úr meistaraskólanum. Hún starfar á hársnyrtistofunni Blondie í Síðumúla og Þjóðleik- húsinu. Þá kennir hún við Háraka- demíuna. Jólin eru að sögn Hildar annasamasti tími hársnyrta enda vill fólk vera upp á sitt fínasta yfir hátíðarnar. „Það er orðið full- bókað hjá mér og margir komnir á biðlista.“ Allt í tísku Hildur sýnir nokkrar hárgreiðslur í axlarsítt hár sem gaman er að prufa um hátíðarnar. „Flétturnar eru alltaf klassískar, en eins og í klippingum og hárlitun, er allt í tísku. Sléttar sleiktar greiðslur hafa komið sterkar inn. Hárið er sleikt frá andlitinu með geli í tagl. Svo eru rómantískir liðir klassískir og að taka hárið smá frá andlitinu. Eitthvað má gera í næstum allar klippingar og þá er alltaf fallegt að taka smá frá andlitinu, með hárskrauti eða spennu, og spenna toppinn aðeins frá. Ef hárið er nógu sítt er alltaf fallegt að setja smá liði í það.“ Hárskrautið segir Hildur að sé sívinsælt, hversdags og í fínni greiðslur. „Spennur með skrauti eru mikið inn í dag og líka hár- klemmurnar. Svo eru spangir með skrauti mjög vinsælar. Hárspennur og spangir eru mjög hentugar til að gera einfalda hárgreiðslu aðeins meira spennandi. Þá er flott að gera flókahnút og setja eina skrautspennu upp við hnútinn eða nota til að spenna upp litlu hárin í hnakkagrófinni.“ Vinsældir rasssíða hársins segir Hildur að fari minnkandi. „Í dag vilja stelpur frekar vera með fallegt og heilbrigt hár en rosalega sítt og slitið. Þá er herðablaðasíddin vinsæl. Hárið nær niður á bak, ekki niður fyrir mitti eða rass. Rosalega síða hárið kemur í tísku á nokk- urra ára fresti en svo fatta konur eftir smá tíma að heilbrigt hár er miklu fallegra en slitið.“ Sleikt tagl er alltaf smart Tónlistakonan Ariana Grande hefur haft mikil áhrif á hár- greiðslutískuna, en hún er þekkt fyrir að skarta sleiktu sléttu tagli hátt á höfðinu. „Hver vill ekki vera eins og Ariana Grande? Hún er náttúrulega geggjuð með sleikta taglið. Maður sér líka áhrifavalda á Instagram para skæran varalit með greiðslunni. Ég held það verði mjög mikið um sleiktar tagl- greiðslur í ár. Í taglgreiðslunni tek ég frá fremsta partinn af hárinu og skipti í tvennt. Svo sleiki ég afganginn í tagl með LabelM geli. Næst eru lokkarnir tveir sleiktir að taglinu, teknir undir taglið og snúið utan um sitt hvorum megin. Þetta lítur út fyrir að vera f lókin greiðsla, en er í raun sáraeinföld og brýtur upp á hefðbundna tagls- greiðslu. Því næst nota ég vaxstifti eða Texture wax stick frá LabelM, til að sleikja litlu hárin við and- litið inn í greiðsluna svo hún verði enn sléttari. Svo spreyja ég hárspreyi yfir í lokin fyrir aukið hald og vel af Shine Mist til að fá glansinn aftur.“ Rétt leið til að nota ömmuspennur „Ég nota alltaf ömmuspennur og hárnálar í svipuðum lit og hárið þegar ég spenni, og passa að þær sjáist sem minnst. Ég klíp saman hluta af hárinu sem þarf að spenna og hárinu við kollinn og spenni inn í taglið eða hnútinn. Þá sést spennan varla.“ Fléttuóð Hildur segist alltaf hafa verið mjög veik fyrir fléttum. „Fastar fléttur eru alltaf vinsælar og gefa mikið af fallegum smáatriðum og áferð í hárið. Fallegt er að blanda þeim við sléttað hár eða krullaða liði.“ Hér er fiskiflétta aðalmálið. „Fyrst skipti ég hárinu við koll- vikin svo að megnið af hárinu liggi í sömu átt, þeim megin sem fléttan á að vera. Svo tek ég hluta af hárinu upp við skiptinguna og skipti í tvennt. Þá tek ég smá hluta yst af öðrum lokknum, legg yfir lokkinn og sameina í hinn lokkinn. Svo tek ég hluta yst af hinum lokknum, legg yfir og sameina í hinn. Sama geri ég hinum megin. Þannig held ég áfram koll af kolli og fiskifléttan verður að fastri fiskifléttu. Hægt er að flétta hana alveg niður og setja teygju í endann.“ Föst fiskiflétta með messy bun „Einnig má hætta að flétta hárið niður við eyrað, búa til tagl og spenna hárið upp í snúð. Þá skipti ég taglinu í tvo hluta, spreyja áferðarspreyi, Texturizing Volume Spray frá LabelM, í hvorn lokkinn fyrir sig og spenni annan lokkinn í hnút. Svo móta ég hinn lokkinn og spenni í hnút utan um til að gera „messy bun“.“ Rómantísk half-updo greiðsla „Fyrst byrja ég að skipta hárinu við hvirfilsvæðið. Hárið efst á hvirf linum túpera ég og spenni niður til að fá lyftingu. Hárinu fyrir framan er skipt í tvo hluta og spreyjaðir með áferðarspreyi. Hlutarnir eru f léttaðir út í enda og festir með lítilli gúmmíteyju. Ég passa að f létta hárið í áttina sem ég vil að f léttan leiti, í áttina að hnakkanum. Ég f létta laust, tek hverja bungu og toga aðeins út svo f léttan verði meiri um sig. Þá legg ég aðra f léttuna undir þar sem ég var búin að túpera og festi með enni spennu upp á móti túperingunni. Næst set ég hina f léttuna yfir og festi eins. Þá tek ég ömmuspennu og smeygi í teygjuna sitt hvorum megin og festi undir hina f léttuna þannig að teygjan sjáist ekki. Svo enda ég á að krulla hárið sem fellur niður með keilujárni. Þá er alltaf vinsælt að nota fjar- kann, Rod VS4 krullujárnið frá HH Simonsen. Í öllum fléttugreiðsl- unum nota ég smá hársprey í lokin og spreyja létt yfir, frekar langt frá. Einnig nota ég Shine Mist til að fá smá heilbrigðan glans aftur í hárið.“ ■ Hátíðarlokkar í heillandi fléttum og tagli Hildur Ösp Gunnarsdóttir starfar sem hár- snyrtimeistari á hársnyrtistof- unni Blondie og segir jólin vera mjög annasöm í faginu. fréttablaðið/ valli Fínt í hárið fyrir jólin 1. Fiskifléttan samanstendur af tveimur hlutum. Hárlokkar frá ytri hluta fléttunnar eru lagðir yfir fléttunna og sam- einaðir inn í gagnstæðan hluta. Og svo koll af kolli. 2. Föst fiskiflétta er alltaf há- tíðleg. Takið eftir því hvernig endanum á hárinu er snúið utan um teygjuna neðst og fest með ömmuspennu. 3. Það er líka hægt að stoppa fiskifléttuna bak við eyrað, setja teygju og svo pinna taglið í hnút. 4. Gelið er nauðsyn til að slétta og sleikja niður og temja hár- lokka og fyrir Ariönu Grande- lúkkið. 5. Tveir partar eru teknir frá fremst og afgangurinn er sleiktur í tagl. 6. Bungurnar í fléttunum tveimur eru togaðar út til að gera flétturnar breiðari. Svo eru þær spenntar niður fyrir aftan og undir túperinguna. 7. Restin af hárinu fær fallega liði með heitu krullujárni. 8. Spreyjað svo létt yfir með hárspreyi og Shine Mist. 9. Hárið er sléttað og svo er hárspreyi og Shine Mist spreyjað yfir allt. 10. Sleikt tagl með „tvisti“ kemur fallega út og sómir sér vel yfir hátíðirnar. 1. 6. 2. 7. 3. 8. 4. 9. 5. 10. 19. nóvember 2021 jól 2021 76 fréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.