Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 106

Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 106
Það er fátt notalegra á aðventunni en að slaka á yfir góðu sjónvarpsefni. Þegar búið er að horfa á allar uppáhaldsjóla- myndirnar er tilvalið að grípa í vel valinn þátt. Í mörgum af vinsælustu sjónvarpsseríunum er vanalega að finna að minnsta kosti einn jólaþátt, en Fréttablaðið tók saman nokkra af þeim eftiminnilegri. eddakaritas@frettabladid.is Gleðilegt sjónvarpsgláp Friends The One with the Holiday Armadillo Sería 7, þáttur 10 Í öllu jólastressinu, þegar stokkið er á milli jóla- boða og jólahlaðborða er upplagt að setjast að- eins niður, kasta mæðinni og setja á einn stuttan jólaþátt með Friends. Hátíðarþættir Friends eru fjölmargir en einn sá besti er þátturinn með jóla- beltisdýrinu. Ross, sem er af gyðingaættum, er með son sinn Ben hjá sér um jólin og þykir því upplagt að kenna honum hefðir gyðinga. Ben, sem heldur yfirleitt upp á jólin með mömmum sínum, sýnir ljósahátíðinni lítinn áhuga og bíður spenntur eftir jólasveininum. Þar sem Ross getur hvergi fengið jólasveinabúning að láni svo stuttu fyrir jól verður hann að láta sér nægja beltis- dýrsbúning. Ross gerir lokatilraun til að fá Ben til að hafa áhuga á ljósahátíðinni en það veldur miklu fjaðrafoki þegar Chandler ryðst inn í jóla- sveinabúningi og Joey þar á eftir sem Superman. Sannarlega undarlegustu hátíðahöld sögunnar. The X- Files How the Ghosts Stole Christmas Sería 6, þáttur 6 Ótrúlegustu sjónvarpsþátta- seríur eiga sína jólaþætti, en X-Files á einmitt nokkra slíka. Þættirnir X-Files fjalla um hið yfirnáttúrulega og er engin breyting hér á þó að um jólaþátt sé að ræða. Á aðfangadagskvöld læsast Mulder og Scully inn í húsi þar sem reynist vera reimt. Í húsinu eru tveir draugar sem eru staðráðnir í því að sanna fyrir Mulder og Scully hvað jólahátíðin getur í raun verið einmanaleg fyrir suma. The Office Christmas Party Sería 2, þáttur 10 Eins og í mörgum fyrirtækjum þá er hefð fyrir því að vera með leynivinaleik fyrir jólin þar sem vinnufélagar skiptast á gjöfum í nafnleynd. Hjá Dunder Mifflin er það engin undantekning. Hinn góðhjartaði en vitlausi yfirmaður, Michael Scott, reynir að fela sam- viskubit sitt yfir því að hafa þurft að reka einhvern á árinu og fengið vegna þess stóran jólabónus, með því að kaupa dýra gjöf fyrir sinn leynivin. Þegar Scott fær síðan gjöf sem honum þóknast ekki frá sínum leynivini, bregður hann á það ráð að fara í annan leik þar sem allir mega skiptast á að velja þá gjöf sem þá langar hvað mest í. Þessi viðsnúningur veldur vitanlega miklum usla á skrifstofunni. Simpsons Simpsons Roasting on an Open Fire Sería 1, þáttur 1 Fyrsti þátturinn af The Simpsons sem fór í loftið var einmitt jólaþáttur. Þættina átti upphaflega að frum- sýna snemma árs 1989 en vegna erfiðleika í framleiðsluferlinu var ákveðið að fresta frumsýningu til 17. desember árið 1989 og lá þá í augum uppi að hefja ævintýrið á jólaþætti. Í þessum allra fyrsta Simp- sons-þætti þarf Marge að eyða pening- unum sem ætlaðir voru fyrir jólainnkaup, í að láta fjarlægja húðflúr af Bart. Reiðir hún sig því alfarið á jólabónus Homers. Homer fær því miður engan jólabónus og gerir hann allt sem í hans valdi stendur til að vinna sér inn peninga fyrir jólahaldi fjölskyldunnar. Eins og flestir vita getur Homer verið algjör asni, en það er bersýnilegt í þessum þætti að hann er með hjartað á réttum stað. South Park It´s Christmas in Canada Sería 7, þáttur 15 Til eru nokkrir jólaþættir um grallarana í South Park og eru þættirnir hverjum öðrum svæsnari. Sá sem er hvað minnst ögrandi hlýtur að vera um jólin í Kanada. Í þessum þætti mæta blóðforeldr- ar Ike, sem er ættleiddur bróðir Kyle Broflovski, og taka hann með sér heim til Kanada. Þurfa vinirnir Stan, Kyle, Kenny og Cartman því að fara til Kanada, ná í Ike og bjarga þar með jólunum. Þátturinn minnir á Galdrakarlinn í Oz, þar sem Kanada er sýnt sem stórfurðulegt framandi land og allir Kanadamenn syngja og tralla líkt og íbúar Oz. Það er því töluvert um söng og dans í þessum þætti, en Stone og Parker hafa mikið dálæti á söngleikjum, enda hafa þeir unnið Tony verðlaun fyrir leikritið The Book of Mormons sem er stórskemmtilegur söngleikur. Seinfeld The Stike Sería 9, þáttur 10 Þessi Seinfeld jólaþáttur fjallar í raun meira um hátíðina Festivus en um jólin. Faðir George Costanza, Frank, fann upp hátíðina sem andsvar gegn kapitalískri hugsjón jólanna. George, sem vill ekki heyra á hátíðina minnst, brjálast þegar Elaine sér jólakort frá föður hans þar sem hann óskar George gleðilegs Festivus. Vinirnir verða vitanlega forvitnir og þá sérstaklega Kramer sem fer beint til Franks. Ákveða þeir í sameiningu að endurvekja hátíðina og bjóða í Festivus-fögnuð þann 23. desember. Gaman er að segja frá því að faðir eins handritshöfunda þáttarins fann í raun upp Festivus, því hann var kominn með nóg af neysluhyggjunni sem einkennir hátíðirnar. Þó undarlegt sé er eflaust sitthvað sem við getum lært af hátíðinni Festivus. Downton Abbey Christmas at Downton Abbey Sería 2, þáttur 9 Það verður að koma sér sérlega vel fyrir, helst með smákökur og heitt súkkulaði við höndina, ef horfa á á fyrsta jólaþátt Downton Abbey, en hann er rúmur 1 og hálfur tími að lengd. Herra- garðurinn iðar af jólaundirbúningi í þessum lokaþætti annarrar seríu. Í þættinum gerist fjöl- margt í lífi Crawley fjölskyldunnar og vinnufólks hennar. Það sem kemur meðal annars við sögu er óvænt ólétta, réttarhöld, samtal við framliðna, bónorð og leyndarmál sem koma upp á yfir- borðið. Það er svo sannarlega aldrei lognmolla í kringum Downton Abbey, allra síst á jólum. Everybody Loves Raymond The Toaster Sería 3, þáttur 12 Jólaþættirnir um Raymond og fjölskyldu eru þó nokkrir, en með þeim betri er eflaust sá um brauðristina. Raymond hefur aldrei verið sá besti í að gefa foreldrum sínum gjafir og lenda þær oftar en ekki í hrúgu niðri í kjallara. Í þessum þætti gefur hann þeim brauðrist með áletrun, en óafvitandi fara Marie og Frank með brauðristina og fá henni skipt. Þegar þau komast að sannleik- anum gera þau hvað þau geta til að endurheimta gjöfina með persónulegu skilaboðunum. Brooklyn 99 Yippie Kayak Sería 3, þáttur 10 Ef að Die Hard er uppáhaldsjólamyndin þín er þetta þáttur fyrir þig. Þegar Jake Peralta man að hann hefur ekki enn keypt jólagjöf handa besta vini sínum, Charles, þýtur hann í örvæntingu út í næstu verslun sem er í þann mund að loka fyrir jólin. Jake nær að smeygja sér inn í verslunina fyrir lokun en tekur eftir því að þar er ekki allt með felldu. Jake fær sannarlega jólaósk sína uppfyllta þegar hann kemst að því að það er verið að ræna verslunina og hefur loks lent í aðstæðum sem minna á Die Hard, sem er hans uppáhaldsmynd fyrr og síðar. Hann sýnir alla sína bestu John McClane takta til að bjarga deg- inum, en ekki fer allt eins og hann hefði kosið. Myndir/skjáskot Verslun Guðlaugs A Magnússonar Skólavörðustíg 10 101 Reykjavík sími 562 5222 www.gam.is Jólaskeiðin 2021 síðan 1946 19. nóvember 2021 jól 2021 86 fréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.