Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 120

Fréttablaðið - 19.11.2021, Page 120
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun @frettabladid.is Hjá mörgum er það mikið tilhlökkunarefni þegar kveikt er á jólaljósunum í borginni. En færri hugsa kannski um undirbúninginn sem býr að baki skreyting- unum sem létta lund okkar í skammdeginu. Rebekka Guðmundsdóttir borgar- hönnuður og Hafsteinn Viktors- son, deildarstjóri vestursvæðis hjá skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlands, héldu sinn fyrsta fund í janúar til að undirbúa jólaskreyt- ingar borgarinnar í ár. „Jólaborgin er eitt af okkar árstíðabundnu verkefnum hjá deild borgarhönnunar, alveg eins og sumarborgin, þar sem mið- borgin og ásýnd hennar fellur undir borgarhönnun. En við vinnum náið með hverfastöðinni og Hafsteini og hans fólki. Án þeirra væri mið- borgin ekkert“ segir Rebekka. „Við hjá rekstri og umhirðu sjáum um að setja upp allar seríurnar,“ útskýrir Hafsteinn. Fyrsti fundur í janúar „Við héldum fyrsta fundinn okkar í janúar og síðan hefur þetta verið að malla í hausnum á okkur allt árið. Í september fórum við að taka fram allar seríur og fara yfir þær og laga það sem þurfti að laga. Seinni partinn í október byrjuðum við svo að setja fyrstu ljósin upp,“ bætir hann við. „Þegar við hittumst í janúar fórum við markvisst í gegnum alla miðborgina og gerðum pöntunar- lista. Við vorum að huga að við- bótum. Við erum með jólakransa á öllum staurum víða í miðborginni og vildum byggja ofan á það og mynda meiri þéttleika í jólalýsing- una,“ segir Rebekka. Hún bætir við að jólalýsingin sé alltaf svipuð og hún hafi verið í mörg ár, en þó er alltaf verið að bæta ein- hverju við. Í fyrra fékkst aukið fjár- magn frá borginni fyrir jólalýsingu og jólaljósum í borginni var fjölgað töluvert. Tilgangurinn var viðspyrna við Covid og að hvetja fólk til að vera meira úti og gera eitthvað skemmti- legt með sínum nánustu í fallegra umhverfi. „Við Hafsteinn bættum miklu við í fyrra. Á Hverfisgötu, í Lýðveldis- garðinum, á Arnarhóli og bláa trénu í Aðalstræti,“ segir Rebekka. „Við byrjuðum líka að skreyta í Laugardal og Elliðaárdal,“ bætir Hafsteinn við. „Við ætlum að halda áfram að skreyta Laugardal og Elliðaárdal í vetur. Það er gert í áföngum. Skreytingarnar verða auknar á þessum tveimur svæðum,“ segir Hafsteinn. Heybaggar vöktu lukku Ein nýjung í skreytingum hjá Reykjavíkurborg eru heybaggar sem var í fyrsta sinn í fyrra komið fyrir hér og þar í miðborginni. „Þessir heybaggar voru ekkert svo vinsælir í lok jóla. Þeim fylgdu mikil þrif,“ segir Rebekka, en hún náði tali af bónda í Biskupstungum í fyrra og ákvað að prufa að fá hey- bagga til að skreyta borgina. „Ég pantaði 50 stykki sem við komum fyrir á torgsvæðum. Þetta vakti mikla lukku og það var tekið mikið af myndum af böggunum. Það fyllti mann gleði þegar maður fór um miðborgina að sjá að börnin voru að hoppa og leika sér í þessu. Það er svo mikilvægt fyrir það sem við erum að gera fyrir miðborgina að sjá fólkið nota borgina, sérstaklega að sjá leik og gleði,“ heldur hún áfram. „Þó það sé ekki gaman að þrífa upp eftir baggana þá eru þeir súper mikilvægir svo núna fáum við fjór- falt magn. Við fáum 200 heybagga sem voru sérstaklega framleiddir fyrir okkur. Það er náttúrulega enginn að heyja bagga lengur, það er allt í rúllum. En núna verða baggarnir sem sagt sýnilegri í mið- borginni og færa sig inn á göngu- götur. Þetta er snilldar dvalar- Jólaljós lyfta andanum Hafsteinn og Rebekka sjá um jólaskreytingar fyrir Reykja- víkurborg. Í bakgrunni er verið að setja ljós í tré. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Bláa tréð við Aðalstræti var nýjung í fyrra. MYND/AÐSEND Jólakötturinn vekur lukku hjá borgarbúum og ferðafólki. MYND/AÐSEND Heybaggarnir voru nýjung hjá Reykjavíkurborg í fyrra. MYND/AÐSEND Jólabjallan milli Aðalstrætis og Hafnarstrætis er elsta götuskraut borgarinnar. MYND/AÐSEND Bankastræti og Austurstræti ljósum prýdd. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR Oslóartréð við Austurvöll lýsir fallega í snjónum. svæði. Það er hlýtt og gott að sitja á þeim ef það er ekki rigning.“ Rebekka segir að Reykjavíkur- borg hafi einnig verið að bæta við jólatrjám í borginni. „Við bættum við tré á Óðins- torg í fyrra og nú kemur tré á Reykjastræti við Hafnartorg og á nýendurgert torg við Tryggvagötu við Tollhúsið.“ Elsta jólaskrautið sem prýðir götur miðborgarinnar er bjallan sem hangir á mótum Hafnarstræt- is, Aðalstrætis og Vesturgötu. „Hún var einkaframtak í upp- hafi en núna á borgin bjölluna. Hún hefur alltaf verið á sama stað en fengið yfirhalningu,“ upplýsir Rebekka. Stefnt er að því að kveikja á síð- ustu ljósunum núna um helgina, fyrir utan ljósin á Oslóartrénu sem verða kveikt fyrsta sunnudag í aðventu að venju. 200.000 perur Hafsteinn skýtur á að jólaljósin sem Reykjavíkurborg setur upp fyrir þessi jól séu um 200.000 perur og 20 kílómetrar af seríum. Rebekka telur að ljósin skipti íbúa í borginni miklu máli í myrkrinu. „Við leyfðum ljósunum að vera uppi út janúar í fyrra. Það lyftir andanum, sem skiptir gríðarlega miklu máli. Þess vegna er áherslan á miðborgarsvæðið, því þetta er miðborgin okkar allra. Jólalýs- ingin þar er hugsuð fyrir gangandi vegfarendur svo þeir upplifi umhverfið og jólaljósin í augn- hæð,“ segir Rebekka. Hafsteinn bætir við að jólatrén sem eru hér og þar um borgina í úthverfum séu líka á vegum Reykjavíkurborgar. „Við setjum upp jólatré og skreytum um alla borg en við erum ekki að lýsa upp venjuleg tré annars staðar en í miðborginni,“ segir hann. „Trén fara í öll úthverfi og í f lest- um tilfellum marka þau innganga í hverfin svo þau eru áberandi fyrir alla sem eru að koma heim,“ bætir Rebekka við. Að lokum segir Rebekka að rekstraraðilar í borginni setji líka sinn svip á jólalýsinguna í Reykjavík. Hlýleg borg „Þegar gluggar verslana eru vel skreyttir og snyrtilegir verður borgin hlýleg og falleg. Við erum alltaf að reyna að bæta borgina og gera hana jólalegri, en þetta er beggja blands og það þarf að vera gott samtal á milli okkar og rekstraraðilanna. Við viljum þess vegna hvetja rekstraraðila til að taka höndum saman og skreyta fallega hjá sér, sérstaklega í úthverfum fyrir utan miðborgina þar sem er kannski erfiðara fyrir okur að skreyta,“ segir hún. Hafsteinn tekur undir þetta. „Við erum að þessu svo fólk geti notið, en við munum aldrei ná að skreyta alls staðar þar sem fólk og rekstraraðilar óska þess. Þess vegna er mikilvægt að rekstrarað- ilar taki höndum saman og við vinnum að þessu saman.“ n Það fyllti mann gleði þegar maður fór um miðborgina að sjá að börnin voru að hoppa og leika sér í þessu. 19. nóvember 2021 jól 2021 100 fréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.