Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 125

Fréttablaðið - 19.11.2021, Side 125
Eldhústöfrar ehf. er umboðs- og dreifingaraðili Thermo- mix á Íslandi. Thermomix er framleitt af þýska fyrirtæk- inu Vorwerk, sem er þekkt fyrir hönnun og framleiðslu á hágæða heimilistækjum. Thermomix léttir fjölskyldulífið, stuðlar að góðri næringu og bætir neysluvenjur. Vélin er einstök matvinnslu- og eldavél og vinnur á við tuttugu og fjögur hefðbundin eldhústæki. „Viðtökurnar á Íslandi hafa farið fram úr okkar björtustu vonum og viðskiptavinir eru gríðarlega ánægðir með tækið,“ segir Berglind Ósk Haraldsdóttir, annar eigandi Eldhústöfra. „Við- skiptavinir Eldhústöfra eru bæði einstaklingar sem búa sjálfstætt og smáar sem stórar fjölskyldur. Thermomix saxar, malar, hakkar, þeytir, hrærir, blandar, hnoðar og maukar auk þess sem það steikir, sýður, gufusýður, hægeldar, eldar með sous vide-tækni og gerjar, svo eitthvað sé nefnt. Thermomix léttir undir með öllum sem þurfa að borða og allir þurfa jú að nærast. Innbyggðar uppskriftir fylgja vélinni og mögu- legur aðgangur að uppskrifta- banka sem hefur að geyma yfir 70 þúsund uppskriftir og er stærsti einstaki uppskriftavefur á netinu. Óhætt er að segja að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi þar. Nýlega bættist svo við sá mögu- leiki að setja sínar eigin uppskriftir inn í uppskriftabankann og vélina. Thermomix er með innbyggðri vigt og snertiskjá þar sem upp- skriftirnar birtast og vélin leiðir þig svo áfram. Vélin hentar öllum, fólki sem kýs hefðbundinn heimilismat, sætmeti, hráfæði eða vegan, fólki sem þarf að vera á maukfæði vegna veikinda, fólki með fæðuóþol eða ofnæmi og í raun er hægt að gera nánast hvað sem er í vélinni. Thermomix kom upphaflega á markað til að saxa, elda og mauka barnamat, en hefur þróast í þetta magnaða snjalltæki sem hentar öllum. Þess má geta að Thermomix kom fyrst á markað í Frakklandi árið 1971 og er innflutnings- og brúðkaupsgjöf númer eitt, tvö og þrjú í Mið- og Suður-Evrópu.“ Vélinni fylgir matreiðslunámskeið Kaupunum fylgir matreiðslunám- skeið þar sem farið er yfir alla notkunarmöguleika Thermomix og farið yfir uppskriftabankann, hráefni, vikumatseðil, innkaupa- lista og fleira. „Námskeiðið er tvær klukkustundir og er haldið í sýningareldhúsi okkar í Síðumúla, 29 einu sinni til tvisvar í mánuði. Við hvetjum eigendur til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að læra inn á og nýta sem flesta notk- unarmöguleika vélarinnar,“ segir Berglind. „Við viljum að fólk noti og elski vélina jafn mikið og við gerum.“ Þær mágkonur, Berglind og Rebekka, og fjölskyldur þeirra, hafa notað vélina við alla matseld í þrjú ár og gætu ekki án hennar verið. „Það er alveg magnað hversu léttari hversdagurinn verður og svo er bara ótrúlega valdeflandi að vita nákvæmlega hvaða hráefni eru í öllu sem við erum að borða. Það er nefnilega ekki það sama að nærast og að borða og það er alla vega mín reynsla að neysluvenjur verða meðvitaðri og betri. Það að borða hreint fæði og elda allt frá grunni er bara alls ekkert flókið, tímakrefjandi eða erfitt,“ bætir Berglind við. Thermomix auðveldar alla matvinnslu og eldamennsku auk þess sem það er hagkvæmara og næringarríkara að elda heima frá grunni, úr hráefnum sem maður velur sjálfur. Thermomix sparar mikinn tíma þar sem ekki þarf lengur að standa yfir pottum og hræra og þannig gefst meiri tími til að sinna sjálfum sér og/eða fjölskyldunni. Hráefnin eru alltaf elduð við kjörhita með nákvæmri hitastýringu og því tapast ekki mikilvæg næringarefni og vítamín úr fæðunni. Thermomix býður upp á svo marga notkunarmöguleika og spar- ar mikla fjármuni sem annars færu í kaup á mörgum smátækjum af misjöfnum gæðum með mislanga endingu. Einnig sparast mikið í orkunotkun miðað við notkun á helluborði og þannig sparast nokkrir þúsundkallar á hverju ári. Þá er einnig er ótrúlega gaman að nýta sér snjalltæknina í eldhús- störfin og gera daglegt líf léttara. Fólk getur gert allt í Thermomix sem það hefur t.d. gert í pottum fram til þessa á svo miklu skemmti- legri hátt og reyndar getur fólk gert svo miklu meira með Thermomix en það hefur gert áður. Jólaundirbúningurinn verður léttari „Að elda með Thermomix sameinar fjölskylduna, það geta allir tekið þátt. Ef þú ert læs þá ertu nokk- urn veginn fær um að geta unnið rétt með Thermomix, svo þetta er öruggt fyrir stálpaða krakka undir eftirliti og þannig geta fleiri á heimilinu tekið þátt í eldamennsk- unni með góðum árangri.“ segja þær Berglind og Rebekka. Thermo- mix miðar að því að allt sé gert frá grunni á einfaldan og aðgengilegan hátt. „Við þurfum að hafa í huga að öll neysla okkar hefur áhrif, ekki bara á heilsu okkar og vellíðan heldur einnig jörðina okkar. Við mælum t.d. með heimagerðum jóla- gjöfum sem slá yfirleitt alltaf í gegn og framkvæmdin með Thermomix getur verið góð fjölskyldustund sem er auðvitað alger bónus og kannski það mikilvægasta af öllu.“ bætir Berglind við. Þá segja þær að jólaundirbún- ingurinn með Thermomix verði einnig allur einfaldari og léttari. Thermomix sér þannig t.d. um að hnoða piparkökudeigið, hræra í allar terturnar, þeyta rjómann, laga karamelluna fyrir brúnuðu kartöflurnar, heita súkkulaðið og hræra jafninginn svo eitthvað sé nefnt. Thermomix er afbragðs hrærivél, matvinnsluvél og blandari og það er t.d. alveg sérlega auðvelt að útbúa alla eftirrétti í Thermomix eins og t.d. súkku- laðimús, súkkulaðikökur, svamp- tertubotna, tiramisu og margt, margt fleira. Vélin er afar einföld í notkun, veitir gleði inn á öll heimili og er svo sannarlega jóla- gjöfin í ár. Viðskiptavinir okkar eru gríðarlega ánægðir með tækið,“ segir Berglind. Thermomix súkkulaðimús: 50 g sykur 200 g dökkt súkkulaði, í bitum 100 g rjómi 4 egg, skilin 1 hnífsoddur salt Setjið sykur í blöndunarskálina og malið 10 sek./hraði 10. Skafið hliðar skálarinnar með sleikjunni. Bætið við dökku súkkulaði og rjóma og bræðið 4 mín./50°C/hraði 2. Bætið eggjarauðum út í blöndunarskálina og hrærið 15 sek./hraði 4. Hellið blöndunni í skál og leggið til hliðar. Þvoið og þurrkið skálina vel.Setjið þeytarann í. Setjið eggjahvítur og salt í blöndunarskálina og þeytið 3 mín./hraði 3.5 eða þar til orðið stíft. Fjarlægið þeytarann, bætið síðan eggjahvítunum út í súkkulaði- blönduna og hrærið varlega saman með sleikju. Hellið í 6 desertskálar og kælið í a.m.k. 3 klst. áður en borið er fram. ■ Fleiri upplýsingar má nálgast á heimasíðunni eldhustofrar.is og á facebook: Thermomix á Íslandi. Að elda með Thermomix sameinar fjölskylduna Berglind og Rebekka segja það algjöra snilld að vera með snjallmatreiðslutæki í eldhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Tækið léttir lífið við allan bakstur. Einfalt er að gera boozt, smoothie eða aðra holla og góða drykki. Sætkartöflumús verður leikur einn þegar unnið er með Thermomix. Thermomix er meðal annars sous-vide græja og hrærir fullkomnar sósur með nákvæmri hitastýringu. MYNDIR/COOKIDOO.INTERNATIONAL Thermomix saxar, malar, hakkar, þeytir, hrærir, blandar, hnoðar og maukar auk þess sem það steikir, sýður, gufusýður, hægeldar, eldar með sous vide-tækni. ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2021
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.