Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 127

Fréttablaðið - 19.11.2021, Síða 127
Kvenfataverslunin Tískan og tískuverslunin Comma fluttu fyrir viku í glæsilegt 500 m2 verslunarhúsnæði við Ármúla 5. Áhersla er á fallegan vandaðan fatnað fyrir skvísur á öllum aldri. Verslunin Tískan var í Skipholti áður en hún f lutti í Ármúlann í síðustu viku, en verslunin hefur verið starfandi frá árinu 1963. „Áður en við f luttum í Skipholt- ið hét verslunin Parísartízkan, við ákváðum að uppfæra nafnið og ímynd okkar í f lutningunum því sumir töldu okkur vera eingöngu franska verslun fyrir eldri kyn- slóðina en verslunin er frá þeim tíma þegar öll helsta tískan kom frá París. Í dag eru tímarnir aðrir og við bjóðum upp á vörur meðal annars frá Ítalíu og Þýskalandi þar sem gæði og gott verð er í fyrir- rúmi,“ segir eigandi Tískunnar, Hjördís Sif Bjarnadóttir. Hjördís hefur verið viðloðandi verslun- ina frá því hún var lítil stelpa, en móðir hennar rak hana í aldarfjórðung. Í dag rekur Hjördís báðar verslanirnar, Tískuna og Commu ásamt eiginmanni sínum Hilmari Þórarni Hilmarssyni. Hafa afgreitt þrjá ættliði „Tískan leggur áherslu á fatnað fyrir konur 20 ára og eldri. Við seljum mikið fyrir útskriftir úr háskólum og menntaskólum og líka fyrir brúðkaupin. Við höfum alveg verið að afgreiða þrjá ættliði í einu, sem er ekki eitthvað sem ég held að margar verslanir geti sagt,“ segir Hjördís hlæjandi. Hjá Tískunni fást þýskar og ítalskar vörur frá merkjum eins og Max Mara, Marina Rinaldi, Weekend, Penny Black, Person by Marina Rinaldi, Brax og Basler, svo þau helstu séu nefnd. „Við erum með fjölbreyttan fatnað. Kjóla, dragtir, kápur, boli og buxur á breiðu stærðarbili. En við erum með stærðir frá 34 til 48,“ segir Hjördís. Fágað og töff Verslunin Comma var áður í Smáralind, en hún var opnuð þar haustið 2014. Comma er alþjóðleg kvenfataverslun með búðir í yfir 20 löndum. Comma hefur verið eitt stærsta tískuvörumerki í Evr- ópu undanfarin ár. Í versluninni er lögð áhersla á að bjóða upp á hágæða vörur á viðráðanlegu verði. „Við erum með tvær línur í versluninni. Önnur heitir ein- faldlega Comma, einkunnarorð þeirrar línu eru fallegt, fágað og töff. Svo erum við með Comma Casual Identity. Í þeirri línu er boðið upp á þægilegri hversdags- föt sem eru þó falleg og klæðileg. Það var til dæmis vinsælt þegar Covid var að byrja að kaupa „fancy“ jogging buxur og fína skyrtu við,“ segir Hjördís. Bílastæði beint fyrir utan Tískan og Comma hafa nú f lutt saman í 500 fermetra verslunar- húsnæði í Ármúla 5. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja og segir Hjördís að það fari mjög vel um þau á nýjum stað. „Það er gott að vera með verslun í sérhúsnæði. Í nýja húsnæðinu er gott loftræstikerfi og nóg pláss til að skoða. Það eru líka 27 bílastæði beint fyrir utan verslunina, en fólki finnst æðislegt að geta lagt beint fyrir utan,“ segir Hjördís. Verslanirnar voru opnaðar á nýjum stað á föstudaginn fyrir viku og Hjördís segir kúnnana ánægða með breytinguna. „Við erum með mikið af fasta- kúnnum, bæði hjá Tískunni og Comma. Án þeirra værum við ekki á þessum stað í dag,“ segir hún. Fjölbreytt opnunartilboð eru í verslununum þessa dagana og býður Hjördís bæði gamla og nýja viðskiptavini velkomna að koma og kíkja á úrvalið. n Hægt er að fylgja verslununum á Facebook undir nöfnunum Tískan og Comma Iceland. Tískan og Comma flutt í glæsilegt húsnæði Hilmar Þórarinn og Hjördís Sif eru ánægð með nýja húsnæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Tískan og Comma eru fluttar í stórt og gott húsnæði í Ármúla. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Fjölbreytt opnunartilboð eru í verslunum Tískunnar og Comma í Ármúlanum. Í Tískunni og Comma fást vandaðar flíkur við allra hæfi.Falleg og vönduð taska frá Basler. Nýja húsnæðið er bjart og rúmgott og nóg pláss til að skoða úrvalið. Fötin í Tískunni henta konum á öllum aldri í ólíkum stærðum frá stærð 34 upp í stærð 48. ALLT kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2021
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.